Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 92
Hvert yrði þitt fyrsta verk ef þú vakn-a ð i r d a g e i n n sem konungur? – Endurskipuleggja herinn og bæta samgöngur í landinu? Já, mögu- lega. Gera nákvæma úttekt á stöðu heilbrigðis- og menntakerfisins og vinna metnaðarfulla umbótaáætlun? Jú, ekki slæmt. En svo væri líka bara hægt að taka að sér stjórn fótbolta- landsliðsins. Það er í það minnsta það sem Carol 2. Rúmeníukonungur ákvað að gera þegar hann komst til valda árið 1930. Og eftir á að hyggja var það kannski ein af hans skástu ákvörðunum. Stjórnmálasaga Evrópu á árunum milli heimsstyrjaldanna tveggja hefur að geyma marga kynlega kvisti. Stjórnarfar ýmissa ríkja var afar brothætt og þótt heita ætti að einhvers konar þingræðisstjórnarfar væri víðast hvar við lýði, voru gömlu konungsættirnar enn valdamiklar og tóku fullan þátt í stjórnmálalífinu. Carol annar (eða Karl annar eins og nefna mætti hann á íslensku) var þannig furðuleg blanda af nítjándu aldar kóngafólki og popúlískum fasistaleiðtoga millistríðsáranna. Út í þá skringilegu blöndu mátti svo hræra vænum skammti af kvensemi, glaumgosalíferni og já, fótbolta. Saga rúmensku konungsættar- innar er ekki ýkja löng og tengslin við Rúmeníu ekki mikil í fyrstu. Rúm- enar öðluðust sjálfstæði sitt undan Ottómanaveldinu á nítjándu öld, ekki hvað síst með stuðningi Frakka. Fengu Rúmenar margir hverjir sér- stakt dálæti á franskri menningu og sér þess enn stað í fána landsins sem er eins og sá franski nema með gulum lit í staðinn fyrir hvítan. Valdastéttin í Rúmeníu tileinkaði sér alla þá frönsku siði sem hún gat, talaði helst ekki nema frönsku og leit á París sem sína andlegu höfuðborg. Þjóðríkið Rúmenía stóð veikum fótum og logaði í illdeilum héraðs- höfðingja og ættarvelda. Nauðsynlegt var því talið að sækja þjóðhöfðingja út fyrir landið. Slíkt var raunar alsiða á þessum árum og ekki þótti verra að sækja slíkan konung inn í evrópska háaðalinn til að tryggja sér í leiðinni sambönd og ættartengsl. Napó leon III Frakklandskeisari mælti með hentugum þýskum prinsi, sem lá á lausu. Hann hlaut titilinn Carol fyrsti. Carol hafði varla heyrt um Rúm- eníu getið þegar hann var krýndur þar konungur. Sama má segja um bróðurson hans, Ferdínand, sem var gerður að krónprinsi þegar ljóst varð að kónginum yrði ekki sonar auðið. Ferdínand tók síðar við af frænda sínum og ríkti sem Ferdín- and fyrsti frá 1914 til dauðadags árið 1927. Báðir voru þeir frændur alla tíð útlendingar í sínu eigin ríki, án nokk- urra sérstakra tengsla við rúmenskt samfélag þótt þeir reyndu að stýra landinu eftir bestu getu. Öðru máli gegndi um Carol yngri, son Ferdínands og framtíðarerfingja konungsveldisins. Hann fæddist og ólst upp í Rúmeníu og sá hlutina með talsvert öðrum augum en faðir hans og frændi. Hafa ýmsir af ævisögu- riturum Carols annars viljað kenna uppvaxtarárum prinsins unga um margar af þeim ógöngum sem hann átti eftir að rata í á ævinni. Spjátrungur og gosi Carol fyrsti leit á nafna sinn sem soninn sem hann aldrei eignaðist og spillti honum með eftirlæti, en um leið fékk drengurinn ekki að eiga eðlilegt samband við sína réttu foreldra. Hjónaband þeirra stóð líka á brauðfótum, þar sem María, eiginkona Ferdínands, átti í ástar- samböndum við ýmsa menn, meira og minna fyrir opnum tjöldum. Upplifði Carol ungi þetta sem mikla niðurlægingu föður síns og lagðist það þungt á hann. Óánægjan með framhjáhalds- ævintýri móðurinnar varð þó ekki til þess að gera soninn að sérstökum siðapostula. Strax á táningsárum var Carol orðinn alræmdur fyrir svall og kvennafar. Hann eignaðist börn utan hjónabands, en það olli þó Rúmenum mun minna hugarangri en barnið sem hann tók upp á að eignast í hjónabandi! Sumarið 1918 stakk krónprinsinn af úr herþjónustu og hélt til Úkraínu með dóttur rúmensks hershöfðingja og kvæntist henni á laun. Carol var þá 24 ára en unnustan, „Zizi“, tví- tug. Fyrir utan þá lítt konunglegu hegðun að stinga af úr hernum, var hjúskapurinn reginhneyksli. Zizi var fjarri því nógu ættgöfug til að giftast krónprinsi, auk þess sem stjórnar- skrá landsins bannaði það hrein- lega að þjóðhöfðinginn kvæntist Rúmena. (Þessi sérkennilega regla hefur væntanlega átt að tryggja valdajafnvægi milli helstu valdaætta landsins.) Vorið eftir tókst fjölskyldu Carols að fá hann ofan af þessu gönuhlaupi sínu og hjónabandið var úrskurðað ógilt. Rétt rúmum níu mánuðum síðar eignaðist Zizi þó dóttur og sá rúmenska ríkið um að greiða fram- færslu þeirra beggja. Um tíma virtist Carol ætla að snúa baki við glaumgosalífinu þegar hann varð ástfanginn af Helen frænku sinni, systur Alexanders Grikklands- konungs. Þau giftust í skyndi vorið 1921 eftir stutt kynni og sjö mán- uðum síðar eignuðust þau soninn Mikael. Allt fór þó fljótlega í sama farið hjá Carol prins. Hann svallaði, naut lífsins og eignaðist nýjar og nýjar ástkonur. Hafa sagnritarar prinsins bent á að Carol virðist fremur hafa leiðst stúlkur úr sinni eigin stétt, en þess í stað fallið fyrir konum af „lægri“ stéttum, þar sem þær hafi verið óheflaðri, hispurslausari og líflegri í háttum. Að lokum kynntist hann svo konu sem átti eftir að fanga hjarta hans til æviloka, hún hér Elena Lupescu. Elena, sem raunar var kölluð „Magda“, var lyfsaladóttir úr efri millistétt. Faðir hennar var gyð- ingur, en hafði snúist til kaþólskrar trúar. Gyðinglegi uppruninn átti þó eftir að reynast afdrifaríkur. Ítalskt hneyksli Sagnfræðingar sem kannað hafa sögu Rúmeníu á þriðja og fjórða ára- tugnum viðurkenna að nær vonlaust sé að draga upp óbrenglaða mynd af Mögdu Lupescu. Svo miklu hefur verið logið um hana, jafnt til lofs eða lasts. Lengi vel var henni lýst sem ein- hvers konar norn sem hefði getað stjórnað ástsjúkum unnusta sínum eins og strengjabrúðu og ráðið öllu sem hún vildi. Í dag er þó fremur litið á hana sem lífsnautnakonu sem notaði hvert tækifæri til að maka krókinn en kærði sig að öðru leyti lítið eða ekkert um stjórnmál. Samband prinsins og Mögdu vakti almenna hneykslan við hirðina í Búkarest, en almenningur hafði litla hugmynd um hvað gekk á. Opinber- lega var allt í himnalagi í hjónabandi Carols og Helenar. Blaðamenn vissu svo sem eitt og annað, en ströng rit- skoðunarlög í landinu komu í veg fyrir að fregnir af opinberu framhjá- haldi krónprinsins rötuðu á prent. En í loks árs 1925 varð fjandinn laus. Alexandra Bretadrottning, eiginkona Játvarðs sjöunda, lést og var jarðsungin í Lundúnum. Hún var náskyld meira og minna öllu kónga- fólki Evrópu og var Carol krónprins sendur í útförina sem fulltrúi rúm- ensku hirðarinnar. Hann fór einn í ferðina. Á bakaleiðinni ákvað prinsinn að rétt væri að staldra við á Ítalíu og gera sér glaðan dag. Og hver hafði komið þangað til fundar við hann önnur en Magda Lupescu? Skötuhjúin nutu tilverunnar á Ítalíu og sinntu næturlífinu af krafti. Þau gerðu enga tilraun til að leynast fyrir ítölskum blaðamönnum og ljósmyndurum og fljótlega kom í ljós að ritstjórum ítalskra blaða stóð hjartanlega á sama um rúmensk ritskoðunarlög. Allur heimurinn vissi nú af hinni föl- leitu, rauðhærðu og seiðandi ástkonu Carols krónprins. Rúmenía logaði stafnanna á milli þegar Carol sneri aftur heim úr fríinu. Leiðtogar valdaflokksins í landinu, Frjálslynda þjóðarflokksins, sem var hægrisinnaður flokkur borgara- stéttarinnar, kröfðust afsagnar krónprinsins. Höfðu flokksmenn og krónprinsinn raunar lengi eldað grátt silfur vegna annarra mála. Almenn- ingur hafði líka litla samúð með ríkis- arfanum sem hafði niðurlægt vinsæla eiginkonu sína með opinberu fram- hjáhaldi og þjóðernissinnarnir litu á það sem sérstaka synd að hjákonan væri gyðingur. Carol átti því þann kost einan að afsala sér ríkiserfðum til sonar síns og flytja úr landi. Hann fluttist til Par- ísar og bjó þar með Mögdu sinni án þess að gera minnstu tilraun til þess að fela samband þeirra. Að nafninu til stóð hjónaband hans og Helenar prinsessu þó til ársins 1928 þegar hún sótti um skilnað. Konungsskipti urðu í Rúmeníu um mitt ár 1927 þegar Ferdínand fyrsti lést. Við valdataumunum tók Mikael litli, þá rétt á sjötta ári. Drengurinn hélt þó ekki sjálfur um valdataum- ana, heldur var dagleg stjórn ríkisins í höndum þriggja manna ráðs, í þeim hópi var föðurbróðir hans, Nikulás. Stýrði ráðið í ágætri sátt við valda- flokk landsins, Frjálslynda þjóðar- flokkinn. Þegar skýjabakkar heimskrepp- unnar tóku að hrúgast upp jókst pólitískur óstöðugleiki í Rúmeníu og þegar formaður Frjálslynda þjóðar- flokksins féll frá, hrundi fylgi flokks- ins í kosningum. Bændaflokkurinn tók við völdum, en hann sótti fylgi sitt einkum til sveita, Stefna hans hvíldi á þjóðlegum rúmenskum gildum og tortryggni í garð yfirstétt- arinnar og dálæti hennar á vestur- evrópskum og þá einkum frönskum siðum. Við þessar aðstæður sá hinn útlægi fyrrverandi krónprins sér leik á borði. Sumarið 1930 sneri Carol aftur til heimalandsins og ruddi hinum barnunga syni sínum til hliðar með fulltingi nýju ríkisstjórnarinnar. Hann tók sér embættistitilinn Carol annar og hóf þegar að leggja drög að valdatíma sínum. En nú kynni einhver að spyrja: hvað með fótboltann? Átti þessi pistil ekki að fjalla um knattspyrnuóðan kóng sem hlutaðist til um fótbolta- landslið þjóðar sinnar? Jú, jú, en það verður ekki fyrr en í næsta hluta, eftir viku. Boltabulla á konungsstól Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um afleitan kóng. á táningSárum var Carol orðinn alræmdur fyrir Svall og kvennafar. KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A 3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 0 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :3 6 F B 1 2 8 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 1 E -0 7 8 8 1 F 1 E -0 6 4 C 1 F 1 E -0 5 1 0 1 F 1 E -0 3 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.