Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 44
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Emmelie Charlotte-Victoria de Forest heillaði Evrópubúa upp úr skónum með laginu
Only Teardrops árið 2013 sem hún
söng af einlægni á sviðinu í Malmö
í Svíþjóð og færði henni fyrsta
sætið fyrir hönd Danmerkur. Það
var í þriðja sinn sem Danir stóðu
uppi sem sigurvegarar Eurovison-
söngvakeppninnar. Svíar voru
einnig kátir með sigur Emmelie því
faðir hennar er sænskur en mamma
hennar er dönsk. Lagið náði vin-
sældum hérlendis en Íslendingar
gáfu því 12 stig í keppninni.
Líka lagahöfundur
Emmelie hefur náð góðum árangri
sem lagahöfundur en í fyrra samdi
hún lagið Never Give Up on You
sem Lucie Jones flutti fyrir hönd
Bretlands í keppninni sem fram
fór í Kíev í Úkraínu en það endaði í
fimmtánda sæti. Hún skrifaði undir
plötusamning við Universal Music
árið 2013 og fyrsta platan hennar
kom út það vorið en leiðir hennar
og útgáfurisans skildi fyrir nokkru.
Hún er núna með samning við
sænsku útgáfuna Cosmos Music.
Í febrúar kom út önnur platan
hennar, History, og hefur hún
þegar vakið athygli í Danmörku.
Emmelie segist hafa unnið lengi að
Stjörnufans í Höllinni
Úrslitin í Söngvakeppninni 2018 fara fram í Laugardalshöllinni í kvöld. Eurovision-stjörnurnar
Emmelie de Forest og Robin Bengtsson munu koma fram og syngja fyrir áhorfendur.
Emmelie Char-
lotte-Victoria de
Forest heillaði
Evrópubúa upp
úr skónum með
laginu Only
Teardrops árið
2013 sem hún
söng af einlægni
með fagurri
röddu.
Robin Bengtsson varð í fimmta sæti í keppninni í Kíev í fyrra.
þessari plötu og hún sé algjörlega
eftir hennar eigin höfði. Lögin á
plötunni má finna á Spotify.
Kom fyrst fram í Idol-
keppninni
Tónlistin hefur lengi leikið stórt
hlutverk í lífi Svíans Robins
Bengtsson. Hann vakti fyrst athygli
í Svíþjóð þegar hann tók þátt í
Idol-keppninni þarlendis árið
2008, 17 ára að aldri. Robin vakti
athygli fyrir flauelsmjúka, þroskaða
rödd og ekki spillti útlitið fyrir
honum en hann hafnaði í þriðja
sæti í keppninni. Robin varð faðir
tveimur árum eftir Idol-keppnina
þegar sonur hans William fæddist.
Hann deilir forræðinu með móður
hans og segist leiður yfir því að geta
ekki alltaf verið með hann.
Robin tók þátt í sænsku
útgáfunni af Wipeout-keppninni
í sjónvarpinu og varð þar í öðru
sæti. Hann tók svo þátt í Melodi-
festivalen 2016, sem er sænska
undankeppnin í Eurovison með
laginu Constellation Prize sem
varð númer fimm. Robin vakti
mikla athygli þegar hann tók þátt í
Eurovison-keppninni í Kíev í fyrra
og þótti afar sigurstranglegur en
fimmta sætið varð hans. Hann söng
lagið I Can’t go On en myndbandið
við lagið sló algjörlega í gegn.
Robin er mikill íþróttamaður,
stundar motocross og segir að með
þátttöku í Eurovison-keppninni
hafi gamall draumur úr æsku hans
ræst.
M a s a I n t e r n a t i o n a l - m a s a i c e l a n d @ g m a i l . c o m - w w w. m a s a i n t e r n a t i o n a l . i s
MASA International hefur starfað á fasteignamarkaði á Spáni frá árinu 1981
og hjálpað yfir 35.000 manns að finna sitt annað heimili í sólinni.
MASA International á Íslandi
Sími 555 0366
Hafðu samband við okkur hjá Masa International,
fáðu sendan bækling og kynntu þér möguleikana
í skoðunarferðum til Costa Blanca.
Viltu kaupa fasteign á Spáni?
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . m A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-0
7
8
8
1
F
1
E
-0
6
4
C
1
F
1
E
-0
5
1
0
1
F
1
E
-0
3
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K