Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 6
Viðurkennt jurtalyf gegn
vægum gigtarverkjum
Fullorðnir: 2 hylki tvisvar á dag. Ekki nota Harpatinum ef þú ert með ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða ert með
sár í maga eða þörmum. Ef þú hefur gallsteina eða liðverki samhliða bólgum, roða eða hita, skaltu hafa samband við
lækni áður en þú notar Harpatinum. Leitaðu til læknis ef þú finnur fyrir aukaverkunum eða ef einkenni eru viðvarandi
eða hafa versnað (2 vikur við vægum meltingartruflunum, 4 vikur við vægum gigtarverkjum). Hvorki ætlað börnum
yngri en 18 ára né þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum
og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og
aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Fæst í öllum helstu apótekum án lyfseðils florealis.is/harpatinum
KirKjumál Biskup Íslands, Agnes
M. Sigurðardóttir, vísar gagnrýni
úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar,
um að hún sem biskup og fagráð
um meðferð kynferðisbrota innan
þjóðkirkjunnar hafi ekki farið að
settum reglum varðandi meðferð
í málum sem beindust gegn séra
Ólafi Jóhannssyni, á bug.
Að mati biskups er mikilvægt
að standa vörð um rétt brotaþola
og senda menn í leyfi hið snarasta,
leiki grunur á því að um kynferðis-
lega áreitni sé að ræða.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar
hefði gagnrýnt málsmeðferð fag ráðs
og biskups í einu málinu. Agnes,
sem yfirmaður sóknarprestsins og
annarra brotaþola, sendi prestinn
í leyfi á meðan kærur gegn honum
voru rannsakaðar.
Taldi úrskurðarnefndin að ekki
hefði verið farið eftir stjórnsýslu-
reglum. Séra Ólafur Jóhannsson,
sóknarprestur í Grensáskirkju, var
sakaður af fimm konum um að hafa
áreitt þær kynferðislega. Einnig
á hann sér sögu og hefur í tvígang
leitað sér sálfræðimeðferðar vegna
samskipta við konur.
„Mín afstaða er skýr. Biskup
hlýtur ávallt að taka ásakanir um
óviðeigandi háttsemi presta eða
annarra starfsmanna kirkjunnar
alvarlega. Það á sérstaklega við
þegar grunur leikur á áreitni af kyn-
ferðislegum toga eða öðru ofbeldi.
Það er í mínum huga óhugsandi, að
æðsti embættismaður kirkjunnar
stígi til hliðar og bregðist ekki við ef
einstaklingur leitar til embættisins
eftir hjálp við að leysa úr erfiðum og
viðkvæmum málum,“ segir Agnes í
yfirlýsingu sem birt var á heimasíðu
kirkjunnar.
„Samskipti presta við sóknarbörn
og samstarfsfólk á vettvangi kirkj-
unnar eiga að vera hafin yfir allan
vafa. Þar verður að ríkja algjört
traust,“ segir enn fremur í yfirlýs-
ingu biskups.
Líklegt þykir að einhverju mál-
anna fimm verði skotið á næstu
þremur vikum til áfrýjunarnefndar
kirkjunnar. Biskup hyggst nýta sér
það svigrúm til að útskýra mál sitt.
„Komi til áfrýjunar í umræddu
máli mun ég leggja mig fram um
að skýra aðkomu mína og afstöðu
fyrir áfrýjunarnefnd þjóðkirkj-
unnar, enda get ég engan afslátt
gefið þegar ásakanir um alvarlegan
trúnaðarbrest, áreitni eða ofbeldi
koma upp,“ segir Agnes.
sveinn@frettabladid.is
Biskupinn segist engan afslátt geta gefið
Agnes M. Sigurðardóttir biskup segist munu leggja sig fram við að skýra aðkomu sína að málum Ólafs Jóhannessonar sóknarprests
verði einhverju af fimm málum sem tengjast honum áfrýjað. Biskup hljóti ávallt að taka ásakanir um óviðeigandi háttsemi alvarlega.
Það er í mínum
huga óhugsandi, að
æðsti embættismaður
kirkjunnar stígi til hliðar og
bregðist ekki við ef einstakl-
ingur leitar til embættisins
eftir hjálp við að leysa úr
erfiðum og við-
kvæmum
málum.
Agnes M. Sigurðar-
dóttir, biskup
1 Gefur besta vini sínum nýra
2 Segja allt hafa verið betra í
gamla daga
3 Leiktæki lokað við Ísaksskóla:
„Ég vil gera allt rétt“
4 Heiðar kaupir fyrir 100
milljónir í Vodafone
5 Skrifaði frétt um „rígmontinn“
litla bróður sinn
Mest lesið
Stormurinn hrellir Evrópu enn
Óveður og kuldi halda áfram að hrella Evrópubúa og er tala látinna í álfunni undanfarna daga komin upp í 59. Þar af 23 í Póllandi einu. Röskun
hefur í þokkabót orðið á samgöngum. Til að mynda var öllum flugferðum til og frá Írlandi aflýst í gær. Stormurinn, sem hefur til að mynda verið
kallaður „Skepnan úr austri“, á uppruna sinn í Síberíu og hafa Evrópubúar alveg suður að Miðjarðarhafi fundið vel fyrir honum. Nordicphotos/AFp
dögg pálsdóttir
er formaður
úrskurðarnefndar
þjóðkirkjunnar.
3 . m a r s 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-B
D
7
8
1
F
1
D
-B
C
3
C
1
F
1
D
-B
B
0
0
1
F
1
D
-B
9
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K