Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 60
Hársnyrtir óskast.
Vegna aukinna verkefna á ört stækkandi miðbæ vantar
okkur hársnyrti í stólaleigu á Rakarastofu Garðabæjar.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband
í síma 861-1286 eða á sensei@isl.is.
Þrjár stöður sérfræðinga
á sviði uppsjávarlífríkis
Breytingar á hafstraumum og sjávarhita við Ísland á undanförnum
áratugum hafa haft áhrif á göngur og útbreiðslu margra fiskistofna.
Þessi áhrif eru sérstaklega áberandi hjá uppsjávarfiskum og hefur
m.a. haft veruleg áhrif á göngumynstur og útbreiðslu loðnu. Ha-
frannsóknastofnun auglýsir því eftir sérfræðingum í neðangreindar
stöður. Um er að ræða fullt starf í öllum tilvikum með starfsstöð í
Reykjavík og heyra stöðurnar undir sviðsstjóra uppsjávarlífríkis.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og
viðeigandi stéttarfélags.
Sérfræðingur í uppsjávarfiskum
Starfið felst m.a. í gerð rannsóknaáætlana, umsjón með rannsók-
num, skipulagningu og þátttöku í rannsóknaleiðöngrum, úrvinnslu
gagna og skrifum um niðurstöður. Unnið er að mestu í teymisvinnu
en viðkomandi þarf einnig að geta unnið sjálfstætt við úrvinnslu og
greiningu gagna sem og greinaskrif.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa meistara eða doktorspróf í fiskifræði,
líffræði eða skyldum greinum. Æskilegt er að viðkomandi hafi
þekkingu og reynslu í notkun bergmálsmæla og úrvinnslu
bergmálsgagna sem nýtist við magnbundið mat á stofnstærð
fiskistofna (fisheries acoustics). Þá þarf umsækjandi að hafa
hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu og færni í mannlegum
samskiptum. Í umsókn skulu vera upplýsingar um menntun (afrit af
prófskírteinum) og fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda
sem leita má til varðandi frekari upplýsingar.
Sérfræðingur í bergmálstækni
Starfið felst í þátttöku og úrvinnslu gagna í leiðöngrum sem og
umsjón með viðhaldi og kvörðun bergmálsmæla sem notaðir eru
til rannsókna á lífríki sjávar. Einnig skal starfsmaðurinn annast
úrvinnslu gagna í landi, samantektir á niðurstöðum og skrifum. Í
starfinu felst jafnframt að fylgjast vel með þróun í mælitækni og
hugbúnaði og annast umsjón með nauðsynlegu viðhaldi mælitækja.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, Þá þarf umsækjandi að hafa
hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu og færni í mannlegum
samskiptum. Reynsla í notkun bergmálsmæla er mikill kostur. Í
umsókn skulu vera upplýsingar um menntun (afrit af prófskírtei-
num) og fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda sem leita
má til varðandi frekari upplýsingar.
Sérfræðingur í líkanagerð
Starfið felst meðal annars í gerð líkanna sem lýsa göngum og drei-
fingu uppsjávarfiskistofna, tengslum afræningja sem og áhrifum
annarra umhverfis- og vistfræðiþátta á fiskistofna. Viðkomandi
þarf einnig að taka þátt í teymisvinnu í rannsóknaleiðöngrum þar
sem söfnun gagna fer fram.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa doktorspróf í fiskifræði, stærðfræði,
líkanagerð, tölfræði, líffræði eða skyldum greinum. Nauðsynlegt er
að umsækjandi hafi mikla þekkingu á tölvuvinnslu og líkanagerð.
Æskilegt er að umsækjandi hafi einhverja þekkingu á uppsjávarfi-
skum. Þá þarf umsækjandi að hafa hæfni til að vinna sjálfstætt og í
teymisvinnu og vera góður í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars n.k. Umsóknir með ítarlegum
upplýsingum um menntun, starfsreynslu og nöfnum tveggja meðmælenda
skulu sendar á póstfangið umsokn@hafogvatn.is eða skilað á skrifstofu
Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Konur, jafnt sem
karlar eru hvattar til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri
(kristin.helgadottir@hafogvatn.is) og Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
uppsjávarlífríkis (thorsteinn.sigurdsson@hafogvatn.is)
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er
stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir
auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auð-
linda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við
erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva
í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rann-
sóknaskip og hefur að jafnaði um 190 starfsmenn í þjónustu sinni.
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef
Læknar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/498
Læknar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/497
Sérnámsst. í heilsugæsluhjúkrun Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri 201803/496
Hjúkrunarfræðingur, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri 201803/495
Ræstingar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/494
Hjúkrunarfræðingar, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/493
Starfsm. í aðhlynningu, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/492
Sjúkraliðar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/491
Hjúkrunarnemar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/490
Starfsmenn í eldhús, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkrókur 201803/489
Starfsmenn í ræstingu, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/488
Móttökuritarar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/487
Hjúkrunarfræðingar, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/486
Sjúkraliðar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/485
Starfsm. Í aðhlynningu, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/484
Hjúkrunarnemar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/483
Starfsmenn í eldhús, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík 201803/482
Hjúkrunarfræðingar, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduós 201803/481
Starfsm. í aðhlynningu, sumarafl. Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduós 201803/480
Sjúkraliðar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduós 201803/479
Félagsliðar, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri 201803/478
Heimahjúkrun, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Norðurlands Akureyri 201803/477
Sjúkraþjálfari, sumarafleysing Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfoss 201803/476
Markmið sérnáms
Efla hæfni hjúkrunarfræðinga, meðal annars í þverfaglegu samstarfi á heilsugæslustöð
Móta viðhorf og sýn til þjónustu heilsu-
gæslunnar í komandi framtíð
Veita nemendum tækifæri til að rýna í og innleiða gagnreynda starfshætti í daglegu starfi undir handleiðslu lærimeistara á
heilsugæslustöð
Menntunar- og hæfniskröfur
Almennt hjúkrunarleyfi, BS gráða
(lágmarkseinkunn 7)
Viðkomandi sé starfandi á heilsugæslustöð
Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
Nánari upplýsingar veita
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Þróunarsviði HH, s. 513-5044 eða roe@hg.is
Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdarstjóri
hjúkrunar HSN, s. 860-7750 eða gudnyf@hsn.is
Unnur Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri HSU, s. 432-2160 eða unnur.thormodsdottir@hsu.is
Nína H. Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar HSA, s. 470-3054 eða ninahronn@hsa.is
Nánari upplýsingar á www.starfatorg.is
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Sérnámsstöður í heilsugæsluhjúkrun
Lausar eru til umsóknar tíu sérnámsstöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun.
Stöðurnar eru sex við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), tvær við
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), ein við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU)
og ein við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA). Hver sérnámsstaða er 80% og
veitist frá 1. ágúst 2018 til eins árs.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2018
Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Námið samanstendur af fræðilegu námi við
Háskólann á Akureyri og klínískri þjálfun á heilsugæslustöð hjá HH, HSN, HSU eða HSA undir handleiðslu lærimeistara.
Námið er skipulagt til eins árs og lýkur með diplóma gráðu.
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-1
1
6
8
1
F
1
E
-1
0
2
C
1
F
1
E
-0
E
F
0
1
F
1
E
-0
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K