Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 68
Velferðarsvið
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki til forvarnar-
verkefna úr Forvarnarsjóði Reykjavíkur. Hægt er að sækja um
styrki til verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni.
Hverfisráð veita styrki til verkefna í hverfum, en velferðarráð til
almennra forvarnarverkefna í borginni.
Styrkirnir gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og
stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni.
Stofnanir Reykjavíkurborgar eða starfsmenn þeirra geta ekki
sótt um styrki í sjóðinn en geta verið samstarfsaðilar í verk-
efnum sem aðrir sækja um styrk fyrir.
Umsóknum um styrk skal skilað inn á Rafrænni Reykjavík;
http://reykjavik.is/thjonusta/minar-sidur-rafraen-reykjavik
Úthlutanarreglur má nálgast á heimasíðu sjóðins;
www.reykjavik.is/forvarnarsjodur
Opnað verður fyrir umsóknir 5. mars kl. 13:00 og
umsóknarfrestur er til miðnættis 2. apríl 2018.
Alls eru 10,5 milljónir króna til úthlutunar 2018.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félags-
auð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til
verkefna sem styðja:
• Forvarnir í þágu barna og unglinga
• Eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar
• Bætta lýðheilsu
• Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, og fyrirtækja í þágu
forvarna og félagsauðs
• Önnur verkefni sem mæta þeim markmiðum sem borgarstjórn
setur hverju sinni
Forvarnarsjóður Reykjavíkur
Mannvirkjastofnun
auglýsir eftir
umsóknum um
styrki úr Fræðslusjóði
brunamála
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu
þeirra sem starfa að brunamálum á sviði brunavarna
og slökkviliðsstarfa. Sjóðurinn greiðir styrki til rann-
sóknar- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða-
og dvalarkostnað, laun á námstíma og styrki vegna
námskeiða og endurmenntunar. Mannvirkjastofnun
annast úthlutun styrkja í samræmi við verklagsreglur
um sjóðinn. Sjóðurinn hefur til umráða 4,0 millj. kr. og
mun 60% til 90% verða ráðstafað til slökkviliða og til
einstakra slökkviliðsmanna. Aðrir aðilar sem vinna að
brunamálum eiga kost á 10% til 40% af ráðstöfunar-
fé sjóðsins. Verklagsregla Mannvirkjastofnunar um
afgreiðslu umsókna og úthlutun styrkja má nálgast á
heimasíðu stofnunarinnar.
Umsóknir merktar „Fræðslusjóður brunamála 2018“
skal senda til Mannvirkjastofnunar, Skúlagötu 21, 101
Reykjavík eða á netfangið petur@mvs.is, fyrir
26. mars á eyðublaði sem hægt er að nálgast á
heimasíðu stofnunarinnar. Athygli er vakin á því að
styrkveiting fellur úr gildi ef styrkur er ekki nýttur
innan tveggja ára frá veitingu.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Valdimarsson
(petur@mvs.is)
Mannvirkjastofnun
Skúlagata 21
101 Reykjavík
Sími 591 6000
Fax 591 6001
www.mvs.is
Skrifstofan er opin
kl. 8.30-16 virka daga.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
RÁÐNINGAR
Áskorun
frá óbyggðanefnd
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, fyrir hönd íslenska ríkisins,
afhent óbyggðanefnd kröfur ríkisins um þjóðlendur á svonefndu
svæði 9B, sem tekur til Snæfellsness ásamt fyrrum Kolbeins-
staðahreppi og fyrrum Skógarstrandarhreppi. Tilkynning um
kröfurnar var birt í Lögbirtingablaðinu 23. febrúar síðastliðinn og
er útdráttur úr efni hennar nú birtur hér í samræmi við 2. mgr. 10.
gr. laga nr. 58/1998.
Á svæði 9B eru eftirtalin sveitarfélög: Snæfellsbær, Grundar-
fjarðarbær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Stykkis-
hólmsbær, hluti Borgarbyggðar (fyrrum Kolbeinsstaðahreppur) og
hluti Dalabyggðar (fyrrum Skógarstrandarhreppur).
Þjóðlendu kröfur ríkisins ná til fimm sérgreindra hluta svæðisins,
það er 1) Eyrarbotns, 2) Snæfellsjökuls, 3) lands sunnan og austan
Snæfellsjökuls, 4) landsvæðis milli Hraunhafnardals, Mælifells
og Bjarnarfossdals og 5) fjalllendis milli Elliða og Lágafells, auk
Baulárvalla. Nánari lýsingu krafna og yfirlitskort er að finna á
vefsíðunni obyggdanefnd.is og á skrifstofum viðkomandi
sveitarfélaga og sýslumannsembættis.
Skorað er á þá er telja til eignarréttinda eða annarra réttinda
á þeim svæðum sem ríkið gerir kröfur til að lýsa kröfum sínum
skriflega fyrir óbyggðanefnd, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík, í
síðasta lagi föstudaginn 25. maí 2018. Með kröfunum þurfa að
fylgja þær heimildir og gögn sem aðilar byggja rétt sinn á.
Leiðbeiningar um frágang kröfulýsinga, þ.á m. korta, er að finna
á vefsíðunni obyggdanefnd.is og fást jafnframt á skrifstofu
óbyggðanefndar.
Óbyggðanefnd er úrskurðarnefnd á stjórnsýslustigi. Hlutverk
nefndarinnar samkvæmt 7. gr. laga nr. 58/1998 er að 1) kanna
og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk
þeirra og eignarlanda, 2) skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu
sem nýttur er sem afréttur og 3) úrskurða um eignarréttindi innan
þjóðlendna.
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998 verður
yfirlýsingu um þjóðlendukröfur ríkisins þinglýst á þær fasteignir á
svæðinu sem skráðar eru í þinglýsingabók og eru á viðkomandi
svæði.
Óbyggðanefnd
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
1
E
-0
2
9
8
1
F
1
E
-0
1
5
C
1
F
1
E
-0
0
2
0
1
F
1
D
-F
E
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K