Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Blaðsíða 26
26 9. mars 2018fréttir
að Áslaugu hafi verið tilefnalaus,
hrottaleg og heiftúðug. Hann hafi
ekki skirrst við að ryðjast inn á
heimili hennar að næturlagi og
stinga hana margítrekað í höfuð,
háls, bringu og víða í líkama henn
ar þrátt fyrir að hún væri varnar
laus og nakin inni á baðherbergi.
Rúnar var ekki talinn eiga sér
neinar málsbætur og var dæmdur
til átján ára fangelsisvistar.
Heimild: Mbl.is 20. desember
2000
27. maí 2000
Áslaug Perla Kristjónsdóttir (1979–
2000) myrt af Ásgeiri Inga Ásgeirs-
syni
Áslaug Perla lést af áverkum
sínum eftir að hafa fallið af níundu
hæð fjölbýlishúss í Kópavogi. Ás
geir Ingi Ásgeirsson var ákærður
fyrir morðið en neitaði fyrst um
sinn sök. Fyrir rétti komu tvö
sjónar horn fram, sjónarhorn verj
anda var að um slys hefði verið að
ræða, sjónarhorn sækjanda var
að um morð hefði verið að ræða.
Ákæruvaldið taldi öll gögn benda
til að Ásgeir hafi ýtt Áslaugu yfir
handriðið. Hann hafði borið hjá
lögreglu að hann bæri ábyrgð á
dauða hennar en ekki viljað greina
frá hvernig það hefði borið að.
Talið er að hann hafi orðið Ás
laugu að bana því hún hafi neit
að honum um samfarir. Í lögreglu
bíl frá vettvangi hótaði Ásgeir að
myrða börn lögreglumanna eftir
að hann myndi losna úr fangelsi.
Ásgeir var dæmdur til fjórtán ára
fangelsisvistar.
Heimild: Dagblaðið Vísir 13.
desember 2000
4. júlí 2004
Sri Rahmawati (1970–2004) var
myrt af barnsföður sínum, Hákoni
Eydal
Hákon Eydal hlaut sextán ára
fangelsisdóm fyrir að myrða Sri
Rahmawati, barnsmóður sína.
Saman áttu Sri og Hákon eitt barn,
en fyrir átti Sri tvö börn. Sri var frá
Indónesíu en hafði ásamt systur
sinni og fjölskyldu hennar búið
að Íslandi. Hákon og Sri kynntust
fimm árum áður en hún lét lífið og
bjuggu saman í sex mánuði.
Sri hafði lagt fram kærur á
hendur Hákoni fyrir ofbeldisverk
og hótanir í hennar garð. Hákon
bar því við fyrir dómi að hann
hefði myrt Sri eftir að hún hefði
hótað að hann fengi ekki að sjá
dóttur þeirra aftur.
Dómarar töldu Hákon ósann
færandi og sögðu atlöguna að
Sri Rahmawati vera heiftarlega,
bersýnilega og hann hafi framið
verknaðinn af ásetningi.
Hákon myrti Sri með kúbeini
og taubelti. Hann bar lík hennar
inn í sturtuklefa og þreif það. Setti
svo í poka og bar það út í bíl. Hann
henti farsíma Sri í sjóinn og losaði
sig við lík
hennar í hraungjótu.
Lík Sri fannst í djúpri og
þröngri hraunsprungu í Almenn
ingi fyrir sunnan Hafnarfjörð 3.
ágúst, mánuði eftir að Hákon
myrti hana. Hákon var dæmdur í
sextán ára fangelsi.
Heimild: Fréttablaðið 19. mars
2005
1. nóvember 2004
Sæunn Pálsdóttir (1979–2004)
myrt af eiginmanni sínum, Magn-
úsi Einarssyni
Magnús Einarsson var dæmd
ur í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa
myrt eiginkonu sína, Sæunni Páls
dóttur. Magnús banaði Sæunni á
heimili þeirra í Hamraborg í Kópa
vogi aðfaranótt 1. nóvember 2004.
Þau áttu tvö börn saman. Magnús
réðst að Sæunni og þrengdi að
hálsi hennar. Hann játaði verkn
aðinn bæði fyrir tengdaforeldrum
sínum og lögreglu.
Samkvæmt mati sálfræðings og
geðlæknis framdi Magnús verknað
inn þegar hann var í andlegu ójafn
vægi vegna afbrýðisemi. Hjóna
band þeirra hafði verið stormasamt
um langt skeið. Fimm dögum eft
ir að Magnús myrti Sæunni höfðu
þau ætlað að ganga frá skilnaði hjá
Sýslumanninum í Kópavogi.
Heimild: Fréttablaðið 24.
febrúar 2006
12. maí 2011
Þóra Elín Þorvaldsdóttir (1990–
2011) myrt af sambýlismanni sín-
um og barnsföður, Axel Jóhanns-
syni
Axel Jóhannsson varð Þóru El
ínu að bana í Heiðmörk. Hann
kyrkti hana í bíl sínum og kom líki
hennar fyrir í farangursgeymslu
bifreiðarinnar. Axel ók síðan á
Landspítalann í Fossvogi þar sem
hann gaf sig fram. Axel var úr
skurðaður ósakhæfur. Fyrir dómi
bar Axel fyrir sig minnisleysi og
því lá ekki hrein játning fyrir í mál
inu. Hann var vistaður á réttargeð
deildinni að Sogni. Axel og Þóra
Elín áttu saman tveggja ára dreng.
Heimild: Pressan 9. ágúst 2011
3. febrúar 2012
Þóra Eyjalín Gísladóttir (1976–
2012) myrt af unnusta sínum, Hlíf-
ari Vatnari Stefánssyni (1989–)
Þóra Eyjalín var stungin til
bana í Hafnarfirði af unnusta sín
um, Hlífari Vatnari. Hlífar kom
sjálfur á lögreglustöð og tilkynnti
um morðið. Þegar lögreglumenn
komu að heimili Hlífars fundu
þeir lík Þóru Eyjalínar sem hafði
verið stungin ítrekað. Hún hafði
verið látin í einn til tvo daga.
Sumir áverkanna voru veittir eft
ir andlát samkvæmt blóðmeina
fræðingi við réttarhöld. Vitnis
burður hans varð til þess að
nokkrir viðstaddir í réttarsalnum
fóru að gráta.
Hlífar játaði á sig morðið og
var metinn sakhæfur af geðlækn
um. „Ég ætlaði engan veginn að
drepa þessa manneskju. Þetta
skeði bara,“ sagði Hlífar fyrir dómi
og bar við minnisleysi. Hann var
dæmdur í sextán ára fangelsi.
Heimild: DV.is 22. júní 2012
21. september 2017
Sanita Braun myrt
Sanita Braun var myrt þann 21.
september 2017. Khaled Cario er
grunaður um verknaðinn og hefur
verið ákærður fyrir að hafa banað
Sanitu Braune á heimili hennar
við Hagamel. Kvöldið sem Sanita
var myrt skoðaði Khaled tölvu
hennar og sá þar að Sanita átti í
samskiptum við aðra karlmenn.
Hann hafi þá tryllst. Khaled ját
aði að hafa lamið Sanitu með gler
flösku og slökkvitæki en neitar að
árásin hafi leitt til dauða hennar.
Málið stendur enn yfir. n
Hlífar Vatnar Stefánsson Leiddur fyrir
dóm. Mynd Mynd: Sigtryggur Ari
Hlífar Vatnar Stefánsson
Þóra Elín Þorvaldsdóttir Skildi eftir sig
tveggja ára son.
Sanita Braune Var myrt
vegna afbrýðisemi.
Axel Jóhansson Leiddur fyrir dóm.
Sæunn Pálsdóttir
Þóra Eyjalín gísladóttir