Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Blaðsíða 28
28 9. mars 2018fréttir
Í
slendingar hafa alla tíð haft sér-
staklega gaman af erlendum
nöfnum sem hljóma einkenni-
lega á íslensku. Sem dæmi má
nefna um 100 brandara Bjarna Fel
um tyrkneska markvörðinn Engin
sem og gleði íslenskra íþrótta-
manna í hvert skipti sem tékk-
neski sóknarmaðurinn Pavel Kuka
snerti boltann.
Samfélagsmiðilinn Facebook
er sannkölluð fjársjóðskista varð-
andi leit að slíkum nöfnum og hér
deilir DV með lesendum sínum
nöfnum nokkurra einstaklinga
sem ættu erfitt uppdráttar hér á
landi ef búferlaflutningar væru
framundan. n
ritstjorn@dv.is
n Ein þekktasta markaðsherferð
landsins er Megavika Domino's
sem er haldin reglulega allt árið
um kring. Auglýsingar um til-
boðsvikuna tröllríða þá öllum
fjölmiðlum. Það er hætt við að
brandararnir sem myndu dynja
á hinni bandarísku Mega Vika
yrðu nánast óbærilegir. Á móti
kemur að Mega gæti eflaust haft
einhverjar tekjur af því að gerast
andlit herferðarinnar, nú eða fá
bara lífstíðarbirgðir af kanilgotti.
n Sú var tíðin að lífið var einfalt
og gott. Veðrið var betra, heimur-
inn friðsælli og Helga Steffensen
tryllti lýðinn með hliðarsjálfi sínu,
Lilla Apa. Lilli Api var helsta hetja
nokkurra kynslóða Íslendinga
sem nú eru komnir til vits og
ára. Það er því líklegt að franska
þokkadísin Lili Api þyrfti að þola
einhverjar háðsglósurnar fyrir að
deila nafni með goðinu.
n „Hvað heitir
finnska hór-
an? Nartí
Tillana“ var
brandari
sem fór sem
eldur í sinu
á sínum tíma.
Það skal látið
ósagt í hvað hin
finnska Maija nartar en eftirnafn
hennar, Typpi-Häkkinen, gerir
búsetu á Íslandi nokkuð flókna.
n Bandaríski tónlistarmaðurinn
Ras Gato frá Pittsburgh í Penn-
sylvaníu-fylki yrði seint tekinn
alvarlega hér á landi.
n Það sama gildir um hina ind-
versku Pungsi Pungsi sem býr í
borginni Seppa í Indlandi. Hún
ætti sér ekki viðreisnar von hér á
landi.
n Landi hennar Pikuna Pikuna
ætti ekki heldur séns. Bara þegar
hann myndi kynna sig á öldur-
húsum bæjarins yrði hann álitinn
hinn mesti dóni.
n Hin súdanska Kukandi
Manadi Almak ætti sömuleið-
is erfitt uppdráttar hér á landi.
Eiginmaður hennar Kuchi yrði
ekki í mikið betri málum.
n Þau gætu mögulega leitað sér
huggunar hjá þjáningarbróður
sínum, Fre Tar frá Chile.
n Í Varsjá í Pól-
landi býr síð-
an ungur
drengur,
líklega af
taílenskum
uppruna,
sem heitir
Kun Tan. Hann
valdi að læra eðlis-
fræði í bandarískum háskóla, sem
var líklega betra en að setjast á
skólabekk í Háskóla Íslands.
n Sú sem ætti erfiðast af öll-
um við flutning til landsins er
ung, ítölsk snót og það er vegna
þess að hún er nánast gangandi
morðhótun. Stúlkan er frá Napólí
og heitir Ariana Drepa.
n Í Bochum í Þýskalandi býr
glæsileg ung kona sem heitir
Katharina Hornef. Hún myndi
bera nafn með rentu í íslenskri
flensutíð.
Fólkið sem ætti ekki
að flytjast til Íslands
n Mega Vika og Pungsi Pungsi þar á meðal n Pikuna Pikuna yrði talinn dóni á Tinder
Pikuna Pikuna Indverski
sjarmörinn væri talinn hinn
mesti dóni á íslenska Tinder.
Gangandi morðhótun
Ariana Drepa frá Napólí
yrði hugsanlega litin
hornauga hér á landi.