Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2018, Blaðsíða 37
Brot af því besta 9. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Skemmtilegu tómstundagræjurnar
og frábærar fermingargjafir
PINGPoNG.Is
Eitt það jákvæðasta sem fólk sér við að gefa krökkunum sínum þessi tæki er sú að þau
fá krakkana frá tölvuskjánum og til
að hreyfa sig,“ segir sigurður Valur
sverrisson, eigandi verslunarinnar
Pingpong.is en þar er mikið úrval af
klassískum tómstundatækjum, til
dæmis billjardborð, borðtennisborð,
pílukastsvörur, fótboltaspil og þyt
hokkíborð. Mörg af þessum tækjum
henta vel til fermingargjafa og þeim
fylgir allt sem sem þarf til að stunda
þessa leiki, svo sem spaðar og kjuðar.
Ein afar vinsæl græja í Pinpong.is
er hinn stórskemmtilegi Borðtennis
vinur (Buddy), tæki sem dælir borð
tenniskúlum út úr sér. Kostar aðeins
28.500 kr.
„Billjardinn er vinsælastur hjá mér
núna en ég er með gott úrval af billj
ardborðum, meðal annars meðfæri
leg borð sem henta í heimahús og eru
góðar fermingargjafir. Ég er til dæmis
með sex feta eða 180 cm billjardborð
sem hægt er að reisa upp að vegg
þegar það er ekki í notkun og því fylgir
líka borðtennisplata, þannig að þetta
er sambyggð billjard og borðtennis
græja. Í settinu er allt meðfylgjandi
sem þarf, til dæmis billjardkjuðar og
borðtennisspaðar. Þessi græja kostar
73.000 krónur,“ segir sigurður.
Pingpong.is er með toppmerki í
billjardvörunum, til dæmis Riley og
Buffalo.
Pílukast er afar vinsæll leikur sem
hefur verið að sækja mjög í sig veðrið
aftur á undanförnum árum. Ping
pong.is er með pílukastsskífur frá
hinum þekkta framleiðanda Unicorn.
Pílukastsskífur eru fyrirferðarlitlar
og auðvelt að festa upp í heimahús
um en Pingpong.is býður líka upp á
frístandandi skífur sem ekki þarf að
festa á vegg. Pílukastssettin
(spjald og pílur) kosta á
bilinu 12–30 þúsund
krónur. Borðtennisborð
og meðfylgjandi sett
kosta síðan á bilinu 50
til 140 þúsund.
Gömlu fótboltaspilin
með stöngunum eru
sígild og njóta enn mik
illa vinsælda.
sigurður Valur er fyrrverandi
formaður Borðtennissambandsins
og hefur góð tengsl inn í íþrótta
hreyfinguna. „Pingpong er með mjög
breytt úrval af borðtennisvörum
sem henta fyrir jafnt byrjendur sem
keppnisfólk en flest keppnisfólk hér á
landi kaupir spaðana sína í Pingpong.
is enda erum við með mjög góð og
þekkt merki – Butterfly sTIGA DHs
og JooLA.“
Pingpong.is hefur starfað í yfir
30 ár og hefur þann tíma ávallt lagt
áherslu á að hafa allt
fáanlegt sem þarf í
félagsmiðstöðvar.
Félagsmiðstöðvarn
ar eru góðir kúnnar
verslunarinnar og
kunna jafnframt vel að
meta það sem þar er á
boðstólum og ekki síður
þjónustuna, en hægt er að
fá varahluti í þau tæki sem bila,
til dæmis stangir í fótboltaspilin og ef
kúlan týnist færð þú nýja í Pingpong.
is Það er líka hægt að fá nýjan dúk
á billjardborðið og margt fleira sem
kann að slitna og skemmast eftir
mikla notkun.
Pingpong.is er til húsa að Síðu-
múla 35 (gengið inn að aftanverðu).
Verslunin er opin virka daga frá kl.
12.30 til 18. Símanúmer er 568-3920
og netfang pingpong@pingpong.is.
Vefsíða er á slóðinni pingpong.is.
Hvað er rómantískara en rauðar rósir?
sEGIR DIDDA Í 18 RAUÐUM RÓsUM
18 Rauðar Rósir er gamalgróin blómaverslun í hjarta Kópavogs. Búðin var
stofnuð þann 20. október árið 2006
og varð því 11 ára á dögunum. Af því
tilefni er tilboð á íslenskum rósum í
versluninni út mánuðinn.
„Hvað er rómantískara en rauðar
rósir?“ spyr sigríður I. Gunnarsdótt
ir, eða Didda eins og hún er oftast
kölluð. „Almennt eru Íslendingar að
verða rómantískari og gefa gjarnan
rósir og allavega blóm, jafnvel líka
konfekt, enda varla hægt að hugsa
sér rómantískari gjafir.“
18 Rauðar rósir býður einnig upp
á heimsendingarþjónustu á höfuð
borgarsvæðinu. Hverjum þykir
ekki gaman að fá óvæntar blóma
sendingar?
Didda býr yfir áratugareynslu í
blómabransanum. „Við höfum alltaf
lagt ríka áherslu á að bjóða upp á
glæsilegt úrval á íslenskum blóm
um og gjafavöru sem hentar við öll
tækifæri,“ segir Didda. Ásamt því
sem starfsmenn kappkosta að veita
viðskiptavinum sínum persónulega og
faglega þjónustu, býður búðin upp á
fjölbreytta og glæsilega gjafavöru.
Meðal þeirra íslensku hönnuða sem
18 Rauðar rósir selur vörur fyrir eru:
AUNTs DEsIGN, Flóki & Co., IHANNA
HoME, heklaíslandi, sveinBjörg, Þóra
sigurþórs, Jónsdóttir & Co., Magga
myndlist, Elísabet Ásberg, Krista Des
ign, JB art, Hjartalag og hið sívinsæla
konfekt frá Hafliða Ragnarssyni í
Mosfellsbakaríi. Fuzzykollurinn fæst
einnig í 18 Rauðum rósum. Að auki
er að finna stórbrotið úrval erlendra
framleiðenda og þar á meðal eru
gómsætar franskar sælkeravörur frá
Nicolas Vahé.
18 Rauðar rósir er til húsa að
Hamraborg 3, 200 Kópavogi. Hafa
má samband í síma 5544818 eða
í gegnum tölvupóst í 18raudarros
ir@18raudarrosir.is.
Nánari upplýsingar má nálg-
ast á vefsíðu 18 Rauðra rósa,
www.18raudarrosir.is og á Facebook-
síðu verslunarinnar.