Fréttablaðið - 01.05.2018, Side 38
Snyrtileg inn-
rétting en plast-
notkun mjög
áberandi. Mjög
þægileg opnun á
skottrými.
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
KoStir og gallar
Ford
EcoSport
l 1,0 lítRa bensínvél
l 125 hestöfl
l fRamhjóladRif
eyðsla frá: 5,3 l/100 km í bl. akstri
mengun: 119 g/km CO2
hröðun: 10,1 sek. í 100 km hraða
hámarkshraði: 190 km/klst.
verð frá: 2.750.000 kr.
Umboð: Brimborg
l Vel búinn tæknilega
l Verð í öllum útgáfum
l Útlit
l Efnisnotkun í innréttingu
l aksturseiginleikar
l Eyðsla
Það er ekki óalgengt að smáir jepplingar séu smíðaðir upp úr vinsælum fólksbílum og
þeir settir á „stultur“ en innviðirnir
séu svo til alveg eins. Þannig er því
farið með Ford EcoSport en hann
er smíðaður á grunni Fiesta-fólks-
bílsins. Það sama á t.d. við Mazda
CX-3 sem er smíðaður á grunni
Mazda2-fólksbílsins. Einmitt það
sama ætlar Volkswagen að gera
með tilvonandi T-Cross jeppling
sem byggður verður á Polo. Þessi
aðferð er kjörin að mörgu leyti, því
með því sparast mikið við hönnun
glænýs bíls og þar sem heims-
byggðin hreinlega öskrar á jepp-
linga um þessar mundir er þetta
líka aðferð til að koma slíkum
bílum fljótt á markað. Í sumum til-
vikum hefur tekist verulega vel til
með þessa aðferð er kemur að ytra
útliti slíkra bíla og er CX-3 bíllinn
frá Mazda þar besta dæmið, enda
fallegastur smárra jepplinga. Það
sama er þó ekki hægt að segja um
Ford EcoSport sem fellur ekki vel
að fegurðarsmekk greinarritara.
Ford Fiesta er mjög fallegur bíll og
vinsæll af skiljanlegum ástæðum,
en þessi bróðir hans sprengir
seint fegurðarskalann frómt frá
sagt. Samt er hér kominn ágætur
bíll á góðu verði og víst er að ekki
eru allir sammála þegar kemur
að fegurð bíla. Ástæðan fyrir lítt
aðlaðandi ytra útliti EcoSport
kann að liggja í því að hann var
teiknaður og smíðaður fyrir allt
annan markað en Evrópu og var
fyrst smíðaður fyrir markaði í Ind-
landi, Kína, Taílandi og Brasilíu frá
og með árinu 2013 og smíðaður í
verksmiðjum þar. Síðar var hann
boðinn í Evrópu með uppfærslu
á innréttingu bílsins og með fleiri
vélarkostum.
Ódýr bíll í öllum útgáfum
Nokkrar jákvæðar breytingar voru
gerðar á bílnum árið 2015 og enn
meiri með 2018 árgerðinni og er
bíllinn orðinn meira aðlaðandi en
ef til vill hefðu brýnustu breyt-
ingarnar átt að vera hvað varðar
ytra útlit hans. Bíllinn hefur með
þessum breytingum orðið mun
aksturshæfari þó svo hann nái alls
ekki aksturshæfni Fiesta-bróður-
ins. Betri einangrun, betri fjöðrun
og bætt stýring bílsins hefur lagað
hann mikið, en hann virkar samt
of þungur að ofan fyrir undirvagn
sinn. Ford EcoSport er boðinn hér
á landi með 1,0 lítra bensínvél í
125 og 140 hestafla útfærslum.
Í sinni ódýrustu útfærslu kostar
hann aðeins 2.750.000 kr. með
beinskiptingu, en með 140 hestafla
útgáfu hans kostar hann 3.290.000
kr. og þá í ST-line útgáfu. Sjálfskipt-
ur er hann ódýrastur á 3.350.000
kr. með 125 hestafla vélinni en í
ST-Line útgáfu á 3.490.000 kr. Ekki
telst þetta hátt verð fyrir ágætlega
útbúinn bíl. Akstur EcoSport er
alveg ágætur innanbæjar og hætt
er við því að þannig sé hann mest
notaður þó veghæð hans bjóði
upp á örlítið meiri vegleysur en
Ford Fiesta á stultum
Ford EcoSport er smíðaður á grunni Fiesta og með því fæst bíll í míní SUV-flokki þar sem ökumað-
ur situr hátt. Skiptar skoðanir eru um útlit hans, en hér er kominn vel útbúinn bíll á góðu verði.
Ford Ecosport er í raun háfætt útgáfa af Ford Fiesta
bíllinn fæst hins vegar ekki með
fjórhjóladrifi, er aðeins framhjóla-
drifinn.
Vel búinn en lítið skottrými
Að innan er EcoSport alls ekki
ólaglegur en mikil notkun plasts
skýrir að einhverju leyti lágt verð
hans. Ágætlega fer um framsætis-
farþega og vissulega er setið hátt
og útsýni úr bílnum því ágætt.
Fótaplássi í aftursætum er ábóta-
vant en höfuðrými ekki og gæti
stærri maður en 180 cm greinar-
ritari setið þar án vandkvæða.
Skottrými er ekki mikið fyrir bíl
í þessum flokki, en það er aðeins
355 lítrar og þar slá honum margir
keppinautarnir við. Hvað varðar
tæknibúnað er bíllinn ágætlega
útbúinn og stór aðgerðaskjár,
fínt hljóðkerfi með 7 hátölurum,
hitastýrð miðstöð, halogen-aðal-
ljós, upphitanlegir útispeglar, allar
mögulegar tengingar og margþætt
öryggiskerfi gleðja ökumann. Í
Titanium-útgáfu bætist mikið við í
útbúnaði bílsins og verðið hækkar
ekki mikið. Enn bætist mikið við
í ST-Line útgáfunni en ekki í verði
og því ef til vill bestu kaupin,
aldrei þessu vant, í þannig útfærslu
bílsins. Þá er líka komið leður-
áklæði á sætum og margt annað
góðgæti sem gleður.
Mikil eyðsla með lítilli vél
Oft vill það verða með bíla með
lítið sprengirými að eyðsla þeirra
er ekki með besta móti og hugsan-
lega betra að búa þá með öflugri
vélar. Það virðist eiga við EcoSport
því erfitt var að ná eyðslunni mikið
undir 11 lítra í borgarakstrinum og
mældist hann í reynsluakstrinum
vera í kringum 10,7 lítrana. Auð-
veldlega er hægt að gera þá kröfu
að ekki stærri bíll en þetta með
ekki öflugri vél eyði talsvert minna
eldsneyti. Því verður honum vart
hrósað fyrir litla eyðslu. Mikil
og jákvæð breyting hefur orðið
á fyrstu gerð EcoSport og er hér
kominn ágætlega búinn bíll en
hann stenst afar samkeppnisfær-
um bílum í sama míní SUV-flokki
ekki snúning, ekki hvað síst hvað
varðar útlit og útfærslu innan-
rýmis og efnisnotkunar. Er þá
helst að nefna gullfallegan Mazda
CX-3, Nissan Juke, Peugeot 2008 og
Renualt Captur.
1 . m a í 2 0 1 8 Þ R i Ð j U d a G U R10 b í l a R ∙ f R é t t a b l a Ð i Ð
Bílar
0
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
3
-7
F
0
8
1
F
A
3
-7
D
C
C
1
F
A
3
-7
C
9
0
1
F
A
3
-7
B
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K