Morgunblaðið - 16.09.2017, Page 6

Morgunblaðið - 16.09.2017, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Aðventuprýði í Prag Í þessari skemmtilegu aðventuferð gistum við í þremur heillandi borgum. Í hverri þeirra kynnumst við fagurlega skreyttum jólamörkuðum með fjölbreyttum varningi og sýnishorni af því dæmigerða í mat og drykk heimamanna.Við hefjum ferðina í Pilsen í Tékklandi, förum svo til heimsborginnar Prag og endum ferðina í Nürnberg í Þýskalandi. Verð: 186.600 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. 2. - 9. desember Fararstjóri: Pavel Manásek Ríkisstjórnin fallin Erlendir fjölmiðlar hafa margir fjallað um fall íslensku ríkisstjórn- arinnar. Á vef BBC segir að ríkis- stjórnin hafi fallið vegna reiði al- mennings yfir málum tengdum barnaníði. Þá fjallar NRK ítarlega um málið frá því þegar Björt framtíð kaus um að slíta samstarfinu vegna hneykslis sem tengist Benedikt Sveinssyni, föður forsætisráðherra. Franska fréttastofan AFP segir frá blaðamannafundi forsætisráðherra þar sem hann er sagður kalla eftir skyndikosningum og bent er á að að- eins sé um ár frá síðustu skyndi- kosningum sem komu til vegna Pan- ama-skjalanna. Þá segir að Björt framtíð hafi slitið samstarfinu því forsætisráðherra hafi ekki upplýst um það að faðir hans hafi skrifað undir meðmælabréf fyrir dæmdan barnaníðing, sem óskaði eftir því að fá glæpi sína afmáða af sakaskrá. Stjórnarslit í sviðsljósinu Morgunblaðið/Eggert Stjórnarslit Fall ríkisstjórnarinnar vekur nokkra athygli erlendis. Guðlaug Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, er ósammála for- sætisráðherra um að ekkert hafi kallað á að hlaupa til og slíta stjórnarsamstarfinu. „Stjórn Bjartrar framtíðar fór ítarlega yfir málið og það var ekki neinn vafi í okkar huga að það væri ástæða til að bregðast við.“ Guðlaug er jafnframt ósammála þeirri fullyrðingu að málið er varðaði Benedikt Sveinsson, föður forsætisráð- herra, hafi ekki fengið öðru- vísi meðhöndlun en önnur. Þá segir Guðlaug ekkert til í þeim orðrómi að Björt framtíð hafi hlaupið til og fundað seint í fyrrakvöld, í kjölfar fregna um að Við- reisn hafi ætlað sér að funda og slíta stjórnarsamstarfinu í gær, til að vera fyrri til með gott veganesti inn í kosn- ingar. „Við funduðum einfald- lega við fyrsta tækifæri eftir að þetta kom fram.“ Björt framtíð Guðlaug segir nauðsynlegt að hafa brugðist við. Snerist ekki um að vera fyrri til að slíta samstarfinu Þorsteinn Víglundsson, fé- lagsmálaráðherra og þing- maður Viðreisnar, segir að ekki hafi verið neinn annar kostur í stöðunni en að blása til kosninga. „Atburðarásin hefur verið gríðarlega hröð og nýjustu upplýsingar í þessu máli valda okkur mjög miklum vonbrigðum. Það er enginn annar kostur en að boða til kosninga sem fyrst.“ Hann segir nauðsynlegt að rannsaka málsmeðferð stjórnvalda í málum um upp- reist æru. „Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er eðlilega best til þess fallin að sinna því og kalla eftir öllum upp- lýsingum og fá þær allar upp á borðið.“ Spurður um hvort ríkistjórnin sé starfhæf næstu daga segir hann það koma í ljós. „Það er á ábyrgð allra flokka sem eiga fulltrúa á þingi núna með hvaða hætti unnið verði úr – þá með starfsstjórn – á næstu vikum fram að kosningum.“ Viðreisn Þorsteinn vill fá allar upplýsingar upp á borðið. Enginn annar kostur en að boða til kosninga Lilja Alfreðsdóttir, varafor- maður Framsóknar- flokksins, segir kosningar skynsamlegasta kostinn. Spurð um viðræður forystu flokksins við Bjarna Bene- diktsson forsætisráðherra og hvort Framsóknarflokknum hafi verið boðið til stjórn- arsamstarfs, segir Lilja að auðvitað hafi „allir talað saman og velt upp öllum möguleikum“. „En það vill auðvitað þannig til að við vorum í þessum æfingum alveg frá októberlokum og fram í byrj- un janúar. Þannig að mínu mati var búið að fullreyna allt,“ segir Lilja og rifjar upp aðdragandann að myndun stjórnarinnar sem er fallin. „Þetta stjórnarsamstarf skorti líka ákveðna stefnu- mótun og framtíðarsýn. Svo kemur svona erfitt mál og þá þurfti ekki meira til. Það segir svolítið mikið um hvar stjórnmálin eru stödd í dag,“ segir Lilja. Framsókn Lilja Alfreðsdóttir, vara- formaður Framsóknarflokksins. Framsókn taldi of mikið bera í milli til að fara í stjórn Katrín Jakobsdóttir, formað- ur Vinstri grænna (VG), kveðst ekki hafa séð aðra möguleika í stöðunni en að rjúfa þing og efna til kosn- inga. Að fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki hafi ekki verið inni í myndinni. Spurð út í afstöðu sína til síðustu daga segir Katrín ljóst að stjórnin hafi verið ósamstiga frá fyrsta degi. „Ég held að það sé morg- unljóst að þessi stjórn hefur verið ósamstiga frá fyrsta degi í mörgum málum. Ekk- ert bara þessum atburði. Ég vitna þá til umræðu um ýmis mál. Við höfum verið með málefni sauðfjárbænda, fjár- lög, hælisleitendur, þar sem stjórnarflokkarnir hafa ekki verið sammála.“ Hún segir stöðu VG vera góða og margir hafi bæst við flokkinn á undanförnum ár- um. Spurð um möguleikann á vinstristjórn eftir kosn- ingar segir hún ótímabært að ræða slíka stjórn. Vinstri græn Katrín segir ljóst að ríkisstjórnin hafi verið ósamstiga. Ótímabært að ræða um vinstri- stjórn ennþá Logi Már Einarsson, formað- ur Samfylkingarinnar, segir atburðarás síðustu daga ekki endilega vera óvænta, enda hafi ríkisstjórnin staðið höll- um fæti í langan tíma. „Þessi ríkisstjórn er búin að leika á reiðiskjálfi frá því hún var stofnuð því það logar allt í innbyrðis átökum. Hún fellur auðvitað á máli sem er af allt annarri stærðargráðu og snýst um siðferði.“ Spurður um næstu skref segir hann Samfylkinguna hlakka til að taka þátt í kosningum. „Við erum ekki í þeirri stöðu að vera stórir gerendur í þessari atburða- rás en við bara hlökkum til að taka þátt, hvort sem það verður í kosningum eða ein- hverju samtali í framhald- inu.“ Spurður hvort eitthvað annað sé í stöðunni en kosn- ingar segir hann að það verði að koma í ljós. Segir hann að kosningar séu það líklegasta í augnablikinu. Samfylkingin Logi Már segist ganga brattur til kosninga í haust. Logaði í innbyrðis átökum allt frá stofnun stjórnar Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Pírata, segir at- burðarás síðustu daga vera lygilega en sýni nýtt and- rúmsloft í íslensku samfélagi. „Það virðist bara vera kom- ið þannig andrúmsloft í sam- félaginu að fólk sætti sig ekki við svona leyndarhyggju og pólitíska leiki. Því líkar ekki við þessa gömlu klíku sem hefur fengið að gera bara það sem henni sýnist.“ Birgitta segir atburði síð- ustu daga m.a. afleiðingu þess að ekki sé búið að lögfesta þær stjórnarskrárbreytingar sem séu í nýjum stjórnar- skrársáttmála. „Við þurfum að uppfæra lögin okkar svo við séum ekki alltaf að lenda í stjórnmálakreppum.“ Hún segir að nauðsynlegt að breyta stjórnarskránni. „Við þurfum að tala saman aftur um hvernig samfélag við viljum vera, taka aftur þjóð- fund og taka þessa samræðu um hvernig við viljum end- urspeglast í æðstu lögum.“ Píratar Birgitta segir þörf á að lögfesta stjórnarskrárbreytingar Nýr þjóðfundur og ný stjórn- arskrá nauðsyn Telja kosningar það eina rétta Talsmenn allra þingflokka segja að kosningar séu það eina í stöðunni. Öll möguleg stjórnarmynstur voru reynd í tilraunum á síðasta ári sem stóðu yfir frá októberlokum til janúar á þessu ári. Forsvars- menn flokkanna sammælast um að ríkisstjórnin hafi staðið höllum fæti löngu áður en Björt framtíð ákvað að slíta samstarfinu. Ríkisstjórnin er sögð ósamstiga og hafa skort stefnumótun og framtíðarsýn. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Dómsmálaráðherra, Sigríður Á. And- ersen, upplýsti fjölmiðla um það á fimmtudagskvöld að hún hefði greint Bjarna Benediktssyni forsætisráð- herra frá því í lok júlí sl. að faðir hans, Benedikt Sveinsson, hefði ritað undir bréf sem sent var með umsókn Hjalta Sigurjóns Hauks- sonar um upp- reisn æru sem af- greidd var í september í fyrra. Í kjölfarið hafa vaknað spurningar um hvort þessi miðlun upplýsinga frá dóms- málaráðherra til forsætisráðherra var yfirhöfuð heimil og einnig hvort bar þá að upplýsa aðra ráðherra í rík- isstjórn. Skýrt er kveðið á um það í lögum um persónuvernd að sá sem vinnur með persónuupplýsingar þarf að hafa til þess heimild. Á þeim tíma sem dómsmálaráðherra veitti forsætisráð- herra umræddar upplýsingar, þ.e. nafngreindi einn umsagnaraðila, lá ekki fyrir að úrskurðarnefnd upplýs- ingamála myndi veita heimild til þess að það yrði gert. Reynt getur á eðli upplýsinga Helga Þórisdóttir, forstjóri Per- sónuverndar, segir að margt þurfi að koma til skoðunar til að hægt sé að leggja mat á hvort miðlun upplýsinga milli ráðherra sé heimil. „Þegar ráðherra veitir samráð- herra upplýsingar getur reynt á ýmis atriði, m.a. hvort upplýsingar eru háðar þagnarskyldu eða ekki. Þá má einnig ætla að það skipti máli að inn- an ríkisstjórnar vinna ráðherrar sam- an og má gefa sér að upplýsa þurfi um atriði er varða stjórn landsins og að sama skapi getur reynt á eðli þeirra upplýsinga sem um ræðir. Við höfum ekki tekið þetta mál formlega fyrir og getum í raun ekki tjáð okkur frekar um þetta einstaka mál á þessu stigi. Sambærileg mál hafa ekki kom- ið inn á borð Persónuverndar og eng- inn úrskurður liggur því fyrir um sambærileg mál,“ segir Helga. Engin sam- bærileg mál  Óljóst hvort dómsmálaráðherra mátti deila upplýsingum með Bjarna Helga Þórisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.