Morgunblaðið - 16.09.2017, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
við úr upprunalegu lögreglurann-
sókninni gegni hlutverki bæði raun-
verulegra og ímyndaðra minninga.
„Við máluðum veggina gráa í
sýningarsalnum sem á að tákna að
þetta sé grátt svæði. Það eru ljós-
myndir af lykilstundum í málinu og
svæðum sem tengdust rannsókn-
inni, en það eru líka myndir sem
eru ekki tengdar málinu og hug-
myndin er sú að þegar þú gengur
um sýninguna, veistu ekki hvað er
satt og hvað er ósatt. Ég tók t.d.
mynd af gullfiskunum hennar Erlu
Bolladóttur og við tölum um gull-
fiskaminni. Ef þú hefur lent í því að
fá minnisvafaheilkenni er mjög ljóð-
rænt og áhugavert að eiga gullfiska
að gæludýrum; dýr með slæmt
minni sem er geymt í búri.
Það eru margar ljósmyndir á
sýningunni sem tengjast meira
fólkinu en málinu sjálfu, og það má
líka skoða dagbækur Guðjóns
Skarphéðinssonar sem aldrei hafa
verið sýndar áður. En þær eru
sönnun þess að þetta fólk var með
falskar minningar. Í upphafi veit
hann að hann er saklaus, en þeim
mun lengra sem líður á yfirheyrsl-
urnar í dagbókinni endar þetta á
því að hann heldur að hann sé sek-
ur.
Við unnum með lögreglunni í
Reykjavík sem hefur reynst okkur
alveg frábærlega og Þjóðskjalasafni
Íslands þannig að við gátum nálg-
ast upphafleg sönnunargögn; máls-
skjöl, upphaflegar ljósmyndir,
lögregluskissur auk þess sem
skúlptúrinn Leirfinnur verður einn-
ig til sýnis í fyrsta skipti,“ segir
Latham sem hlakkar til að hitta
sem flesta Íslendinga á sýningunni
til að ræða málið og myndirnar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vafi? Jack Latham spyr gesti sýningar sinnar hvað séu raunverulegar og hvað séu ímyndaðar minningar.
Nú liggur fyrir hvaða kvikmyndir
verða sýndar í flokknum Vitranir á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík, RIFF, sem hefst 28. sept-
ember nk. Í Vitrunum eru sýndar
myndir sem keppa um aðalverðlaun
RIFF, Gullna lundann, kvikmyndir
sem eru annaðhvort fyrsta eða önnur
mynd leikstjóra í fullri lengd en þess-
ar myndir „ögra viðteknum hefðum í
kvikmyndagerð og leiða kvikmynda-
listina á nýjar og spennandi slóðir“,
eins og segir í tilkynningu frá RIFF.
Þeirra á meðal er kvikmynd Hlyns
Pálmasonar, Vetrarbræður, eða Vin-
terbrødre, sem er dönsk-íslensk og
jafnframt opnunarmynd hátíð-
arinnar. „Kvikmyndin gerist í ein-
angraðri verkamannabyggð yfir
kaldan vetur. Þar fylgjum við tveim-
ur bræðrum í gegnum venjur þeirra
og hefðir og verðum vitni að því þeg-
ar ofbeldisfullar deilur brjótast út
milli bræðranna og annarrar fjöl-
skyldu á vinnustaðnum. Þetta er
saga um skort á ást með áherslu á
yngri bróðurinn og þörf hans fyrir að
vera elskaður,“ sagði Hlynur í viðtali
við Morgunblaðið á dögunum.
Sjálfsskoðun og ferðalög
Aðrar kvikmyndir í Vitrunum eru
eftirfarandi:
God’s own country frá Bretlandi,
eftir leikstjórann Francis Lee. Í
henni segir af ungum manni sem rek-
ur bóndabæ föður síns. Rúmeninn
Gheorge er ráðinn til starfa á bænum
og brátt myndast lostafullt samband
milli mannanna tveggja.
Bandaríska kvikmyndin The Rid-
er, í leikstjórn Chloé Zhao, segir af
kúreka sem stendur á tímamótum
eftir hörmulegt reiðslys sem gerir
hann ófæran um að sinna ástríðu
sinni. Brady leggst í sjálfsskoðun
sem leiðir hann á ótroðnar slóðir.
Gabriel e a montanha er frönsk-
brasilísk, eftir leikstjórann Fellipe
Barbosa, og segir af Gabriel nokkr-
um sem ákveður að ferðast um heim-
inn áður en hann hefur háskólanám í
Bandaríkjunum. Eftir margra mán-
aða ferð endar hann við Mulanje-fjall
í Malaví.
Spænska kvikmyndin Júlia ist eftir
leikstjórann Elenu Martín fjallar um
arkitektúrnemann Júlíu sem gerist
Erasmus-nemi í Berlín en lífið í Berl-
ín reynist langt frá því að vera æv-
intýri.
3/4 eftir Ilian Metev er búlgörsk-
þýsk kvikmynd sem fjallar um unga
stúlku, Milu, sem er píanóleikari og
undirbýr sig fyrir áheyrnarprufu er-
lendis. Niki, bróðir hennar, truflar
hana með óæskilegum og furðu-
legum uppátækjum og faðir þeirra
virðist ekki geta tekist á við kvíða
barna sinna.
Soldatii. Poveste din Ferentari er
rúmensk-serbnesk-belgísk fram-
leiðsla, eftir leikstjórann Ivönu Mla-
denovic, og fjallar um mannfræðing-
inn Adi sem flytur í fátækrahverfi í
Búkarest eftir að kærastan segir
honum upp og ætlar sér þar að skrifa
um manela-tónlist, popptónlist Róm-
afólks. Þar hittir hann fyrrverandi
fanga og Rómamann, Alberto, og
fljótlega hefst ástarsamband milli
þeirra tveggja.
M er frönsk kvikmynd eftir leik-
stjórann Söru Forestier og segir af
Lilu og Mo sem eru gjörólík en laðast
þó hvort að öðru. Mo lumar hins veg-
ar á leyndarmáli.
Ítalska kvikmyndin Disappearance
eftir íranska leikstjórann Ali Asgari
gerist í Teheran. Þar flakka ungir
elskendur milli sjúkrahúsa í von um
hjálp en brátt þurfa þau að horfast í
augu við hörmulegar afleiðingar
barnaskapar síns.
Miracle eftir leikstjórann Egle
Vertelyte er lithásk-búlgörsk-pólsk
og segir af Irenu, eiganda svínabús.
Hún er á barmi gjaldþrots en fær að-
stoð úr óvæntri átt.
Elliheimili í tveimur myndum
Dreams by the Sea eftir Sakaris
Storá er dönsk-færeysk og segir af
Ester sem lifir tilbreytingasnauðu lífi
á afskekktri eyju og hlýðir trúuðum
foreldrum sínum án mótmæla. Dag
einn flytur hin uppreisnargjarna
Ragna í bæinn og saman njóta þær
sumarnáttanna og láta sig dreyma
um eitthvað annað og betra.
Distant Constellation er tyrknesk-
bandarísk eftir leikstjórann Shevaun
Mizrahi og er í tilkynningu lýst sem
draumkenndri mynd sem gerist á
elliheimili í Istanbúl. Íbúar sem lifað
hafa tímana tvenna baða sig í athygli
myndavélarinnar. Þau eru stríðn-
ispúkar, sagnfræðingar og kvenna-
bósar, segir m.a. um myndina.
Að lokum er það svo ítalska kvik-
myndin Dove cadono le ombre eftir
leikstjórann Valentinu Pedicini sem
keppir um Gullna lundann. Í henni
segir af hjúkrunarfræðingnum Önnu
og aðstoðarmanni hennar, Hans. þau
vinna á elliheimili sem áður var mun-
aðarleysingjahæli, voru fangar á hæl-
inu sem börn og virðast enn vera
fangar í tíma og rúmi, eins og því er
lýst.
Kvikmyndirnar hafa flestar hlotið
verðlaun og þá m.a. á virtum hátíð-
um, t.d. í Cannes og Feneyjum.
Vitranir RIFF kynntar
Júlía Elena Martín í hlutverki Júlíu
í spænku myndinni Júlia ist.
Kvikmyndirnar sem keppa munu um Gullna lundann
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Sun 17/9 kl. 20:00 10. sýn Fös 6/10 kl. 20:00 17. sýn Sun 29/10 kl. 20:00 23. sýn
Fim 21/9 kl. 20:00 11. sýn Lau 7/10 kl. 20:00 18. sýn Lau 4/11 kl. 20:00 24. sýn
Fös 22/9 kl. 20:00 12. sýn Sun 8/10 kl. 20:00 aukas. Fös 10/11 kl. 20:00 25. sýn
Sun 24/9 kl. 20:00 13. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 19. sýn Sun 12/11 kl. 20:00 26. sýn
Fim 28/9 kl. 20:00 14. sýn Sun 15/10 kl. 20:00 20.
sýn
Þri 14/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 29/9 kl. 20:00 15. sýn Lau 21/10 kl. 20:00 21.
sýn
Sun 1/10 kl. 20:00 16. sýn Sun 22/10 kl. 20:00 22.
sýn
Sýningin sem sló í gegn síðasta vor snýr aftur.
1984 (Nýja svið)
Lau 16/9 kl. 20:00 2. sýn Sun 24/9 kl. 20:00 5. sýn Lau 30/9 kl. 20:00 8. sýn
Fös 22/9 kl. 20:00 3. sýn Fim 28/9 kl. 20:00 6. sýn Sun 1/10 kl. 20:00 9. sýn
Lau 23/9 kl. 20:00 4. sýn Fös 29/9 kl. 20:00 7. sýn
Stóri bróðir fylgist með þér
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 16/9 kl. 20:00 1. sýn Lau 30/9 kl. 20:00 3. sýn
Lau 23/9 kl. 20:00 2. sýn Lau 14/10 kl. 20:00 4. sýn
Sprenghlægilegur farsi!
Kartöfluæturnar (Litla svið)
Fim 21/9 kl. 20:00
Frumsýning
Fös 29/9 kl. 20:00 4. sýn Fös 13/10 kl. 20:00 7. sýn
Fös 22/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 6/10 kl. 20:00 5. sýn Sun 15/10 kl. 20:00 8. sýn
Fim 28/9 kl. 20:00 3. sýn Sun 8/10 kl. 20:00 6. sýn Fös 20/10 kl. 20:00 9. sýn
Fjölskyldukeppni í meðvirkni!
Brot úr hjónabandi (Litli salur)
Fös 10/11 kl. 20:00 1. sýn Mið 15/11 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/11 kl. 20:00 7. sýn
Lau 11/11 kl. 20:00 2. sýn Lau 18/11 kl. 20:00 5. sýn Fim 23/11 kl. 20:00 8. sýn
Sun 12/11 kl. 20:00 3. sýn Sun 19/11 kl. 20:00 6. sýn Fös 24/11 kl. 20:00 9. sýn
Draumur um eilífa ást.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 29/10 kl. 13:00 48. sýn Sun 5/11 kl. 13:00 49. sýn Sun 12/11 kl. 13:00 50. sýn
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 17/9 kl. 13:00 Sun 8/10 kl. 13:00 Sun 22/10 kl. 13:00
Sun 24/9 kl. 13:00 Sun 15/10 kl. 13:00 Sun 29/10 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Sun 17/9 kl. 19:30 8.sýning Sun 24/9 kl. 19:30 9.sýning Sun 1/10 kl. 20:00
Lokasýning
ATHUGIÐ SNARPUR SÝNINGARTÍMI. SÝNINGUM LÝKUR Í OKTOBER.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Sun 24/9 kl. 19:30 Sun 8/10 kl. 19:30 Sun 22/10 kl. 19:30
Lokasýning
Fös 29/9 kl. 19:30 Sun 15/10 kl. 19:30
Sun 1/10 kl. 19:30 Fim 19/10 kl. 19:30
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Eniga Meninga (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 13:00
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 27/10 kl. 19:30 3.sýning
Fim 26/10 kl. 19:30 2.sýning Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýning
Óvinur fólksins (Stóra sviðið)
Fös 22/9 kl. 19:30
Frumsýning
Fim 28/9 kl. 19:30 3.sýning
Lau 23/9 kl. 19:30 2.sýning Lau 30/9 kl. 19:30 4.sýning
Faðirinn (Kassinn)
Lau 7/10 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 20/10 kl. 19:30
4.sýning
Sun 29/10 kl. 19:30
7.sýning
Fim 12/10 kl. 19:30
2.sýning
Lau 21/10 kl. 19:30
5.sýning
Fös 3/11 kl. 19:30 8.sýning
Fös 13/10 kl. 19:30
3.sýning
Fös 27/10 kl. 19:30
6.sýning
Smán (Kúlan)
Lau 16/9 kl. 19:30 3.sýning Fös 22/9 kl. 19:30 4.sýning Fim 28/9 kl. 19:30
Aukasýning
Mið 20/9 kl. 19:30
Aukasýning
Lau 23/9 kl. 19:30 5.sýning Lau 30/9 kl. 19:30 6.sýning
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 4/10 kl. 20:00 Mið 18/10 kl. 20:00
Mið 11/10 kl. 20:00 Mið 25/10 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Hafið (Stóra sviðið)
Þri 26/12 kl. 19:30
Frumsýning
Fös 29/12 kl. 19:30 2.sýning Fim 4/1 kl. 0:30 3.sýning
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 14/10 kl. 13:00 Lau 21/10 kl. 15:00 Lau 4/11 kl. 13:00
Lau 14/10 kl. 15:00 Lau 28/10 kl. 13:00 Lau 4/11 kl. 15:00
Lau 21/10 kl. 13:00 Lau 28/10 kl. 15:00
Brúðusýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Hvað er í bíó? mbl.is/bio