Morgunblaðið - 16.09.2017, Síða 17
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Loftkæling
& varmadælur
Iðnaðareiningar
mikið úrval
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi-
og flutningabíla
Sala, uppsetning
og þjónusta á
kæli og frystibúnaði
Kæli- & frystiklefar
í öllum stærðum
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
Alls bárust 12 tilboð í niðurrif Sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi en
tilboð voru opnuð í síðustu viku.
Mikill munur var á lægsta og hæsta
tilboði eða 819 milljónir króna.
Eftirtalin tilboð bárust, raðað
eftir fjárhæðum. Work North ehf.
175.279 þúsund krónur, ABLTAK
ehf. 274.790, Ellert Skúlason ehf.
279.620, Skóflan hf. 378.000, G.
Hjálmarsson hf. 460.838, Háfell
ehf. 495.048, Þróttur ehf. 509.585,
Ístak hf. 556.088, Wye Valley
618.969, Íslandsgámar hf. 666.575,
Húsarif ehf. 794.210 og sérfélag
stofnað um verkefnið 994.790 þús-
und krónur.
Kostnaðaráætlun Mannvits var
rúmar 326 milljónir króna.
Næsta skref í málinu er að ganga
til samninga við verktaka. Reiknað
er með að niðurrif hefjist nú á
haustmánuðum og því ljúki haustið
2018.
Alls verða 16 mannvirki rifin en
önnur fá að standa, til dæmis sem-
entstankarnir og strompurinn, sem
setja mikinn svip á umhverfið.
Reiknað er með að alls verði rifnir
140 þúsund rúmmetrar af mann-
virkjum. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sementsverksmiðjan Mannvirkin verða rifin á næstu tveimur árum.
Mikill munur á
tilboðum í niðurrif
Sementsverk-
smiðjan verður rifin
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að veita
Mjólkursamsölunni vilyrði fyrir 40
þúsund fermetra lóð á Hólmsheiði
við Suðurlandsveg. Þarna hyggst
fyrirtækið reisa 11.000 fermetra
byggingu fyrir birgðahald, vöru-
dreifingu og skrifstofur.
Fram kemur í bréfi sem skrif-
stofa eigna og atvinnuþróunar ritaði
borgarráði að Mjólkursamsalan hafi
óskað eftir því að fá þessa lóð út-
hlutaða. Fyrirtækið starfi nú í 15
þúsund fermetra leiguhúsnæði á
Bitruhálsi 1, sem stendur á 65 þús-
und fermetra lóð. Vegna breytinga á
starfsemi Mjólkursamsölunnar sé
lauslega áætlað að húsnæðisþörf
fyrirtækisins sé um 11.000 fermetr-
ar.
Staðsetning lóðar á Hólmsheiði
verði nánar ákveðin í deiliskipulagi.
Mjólkursamsalan geti óskað eftir
úthlutun lóðar þegar deiliskipulagið
hafi tekið gildi með auglýsingu í
B-deild Stjórnartíðinda.
Mjólkursamsalan mun greiða
gatnagerðargjöld og markaðsverð
fyrir byggingarrétt á lóðinni. Verð
byggingarréttarins mun ráðast af
meðaltali mats tveggja löggiltra
fasteignasala á verðmæti hans.
Mjólkursamsalan er rekstrarfélag
mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í
eigu um 600 kúabænda um land allt.
Fyrirtækið er í eigu Auðhumlu
(90,1%) og Kaupfélags Skagfirðinga
(9,9%). Auðhumla er samvinnufélag
u.þ.b. 600 kúabænda og fjölskyldna
þeirra víðs vegar um landið. Fyrir-
tækið varð til við samruna félaga
innan mjólkuriðnaðarins, segir á
heimasíðu þess.
Höfuðstöðvar félagsins eru á
Bitruhálsi 1 í Reykjavík. Fyrirtækið
rekur fimm framleiðslustöðvar; í
Reykjavík, Búðardal, á Akureyri,
Egilsstöðum og Selfossi.
MS Reykjavík er aðalvöruhús fyr-
irtækisins sem geymir birgðir af öll-
um framleiðsluvörum MS, þar með
taldar allar tegundir ferskvöru, osta
og smjörvöru, auk geymsluþolinna
vara. Þar fer fram umfangsmikil
vörutiltekt og þaðan er stöðug dreif-
ing á mjólkurvörum um höfuðborg-
arsvæðið og stóran hluta landsins.
Alls eru 170 starfsmenn hjá MS
Reykjavík.
Mjólkursamsalan
fær lóð á Hólmsheiði
Fyrirtækið hyggst reisa þar 11.000 fermetra byggingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bitruháls Höfuðstöðvar MS hafa verið í þessu húsi um margra ára skeið.
Ævar Þór Benediktsson hlaut fjöl-
miðlaverðlaun umhverfis- og auð-
lindaráðuneytisins og Sigþrúður
Jónsdóttir fékk Náttúruverndar-
viðurkenningu Sigríðar í Brattholti
í gær. Verðlaunin voru veitt í
tengslum við Dag íslenskrar nátt-
úru, sem er í dag.
Ævar Þór hlaut verðlaunin fyrir
að hafa fjallað um umhverfið, nátt-
úruna og náttúruvernd í sjónvarps-
þáttum sínum Ævar vísindamaður
og útvarpsþáttunum Vísindavarpið
á Rás 1, veturinn 2016-2017.
Sigþrúður Jónsdóttir hlaut sína
viðurkenningu fyrir áralanga bar-
áttu fyrir verndun Þjórsárvera,
rekin áfram af hugsjón.
Náttúruverðlaun veitt
Fóru til Ævars
og Sigþrúðar
Náttúra Ævar Þór Benediktsson og Sigþrúður Jónsdóttir fyrir miðju með
verðlaunin, ásamt fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.