Morgunblaðið - 16.09.2017, Page 52
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveifla Mikil tilþrif sáust hjá Valkyrjunum þegar þar æfðu fyrir leik Einherjanna sem verður í Kórnum í kvöld.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Á leikjum ruðningsliðsins Einherja
að undanförnu hefur klappstýru-
sveitin Valkyrjur vakið athygli fyrir
líflega framkomu og kröftuga fram-
komu. Leikir liðsins eru í Kórnum í
Kópavogi og fyrir þá og í hléi hafa
Valkyrjunar komið fram með fim-
leika- og dansatriði og sýnt turna og
píramída og fleira flott. Hefur þetta
þótt setja skemmtilegan svip á am-
erískan ruðningsboltaleik Einherja,
sem einkennist af hraða og miklu
kappi.
„Í fyrra hitti ég Bergþór Phillip
Pálsson sem er fyrirliði Einherjanna
sem þá fór að tala um hvað klapp-
stýrulið væru skemmtileg,“ segir
Ósk Tryggvadóttir sem er fyrirliði
Valkyrjanna. „Klappstýrulið fylgja
gjarnan til dæmis ruðningsliðunum
sem eru við marga háskóla í Banda-
ríkjunum. Sjálf var ég mörg ár í fim-
leikum, þekki til svona liða og fannst
því alveg tilvalið að safna saman hóp
og henda í eins og eitt lið. Þannig
náðum við að mynda tólf stelpna
hóp, en við höfum verið að koma
saman að undanförnu á æfingum
sem ganga talsvert út á að ná styrk
og liðleika. Þetta er mjög skemmti-
legt.“
Auglýsing og aðdráttarafl
Amerískur ruðningur nýtur vax-
andi vinsælda á Íslandi, en Einherj-
arnir eru þó eina íslenska liðið sem
fram hefur komið. Árangurinn hefur
líka verið ágætur, en liðið hefur unn-
ið tvo af þremur leikjum sínum til
þessa. Sá fjórði verður í Kórnum í
kvöld klukkan 20 en þar mæta Ein-
herjarnir, með fulltingi Valkyrjanna,
enska liðinu Exiles og má búast við
fjöri og góðri stemningu.
„Valkyrjurnar setja skemmtilegan
svip á leiki Einherjanna og eru mik-
ið aðdráttarafl. Þær hafa líka verið
duglegar að auglýsa sig á samfélags-
miðlum og annars staðar sem á sinn
þátt í því að áhugi almennings á
ruðningsbolta er að aukast,“ segir
Bergþór Phillip.
Fyrsta sýning Valkyrjanna var 11.
mars á þessu ári og það hafa verið
nokkrar síðan og fleiri eru fram-
undan svo sem 4. nóvember þegar
Einherjarnir eiga leik á móti þýsku
liði.
Íþrótt í sókn
Ruðningur er íþrótt í sókn, segir
Bergþór Phillip sem telur mikilvægt
að greinin verði kynnt fyrir ungu
íþróttafólki og því gefinn kostur á að
spreyta sig. Fari allt að vonum muni
ruðningur ná flugi á Íslandi – eins
og víða annars staðar.
Valkyrjur setja svip á leikina
Söfnuðu í hóp og hentu í lið Sýningar í ballett og dansi við upphaf ruðnings-
boltaleikja Einherjanna í Kórnum Íþróttin er í sókn og áhuginn að aukast
Fimi Hópurinn stillti sér upp saman fyrir framan myndavélina.
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Kaflaskiptur fyrsti hringur …
2. Bergur: Einhver samtrygging …
3. Viðbrögð forsætisráðherra …
4. Fórst í eldsvoða á Héraði
Kosning er hafin hjá meðlimum
ÍKSA um Óskarsframlag Íslands. Kos-
ið er á milli fjögurra mynda sem upp-
fylla skilyrði bandarísku kvikmynda-
akademíunnar og eru frumsýndar á
bilinu 1. október 2016 til 30. sept-
ember 2017. Myndirnar í stafrófsröð
eru A Reykjavik Porno, Ég man þig,
Hjartasteinn og Undir trénu. Kosn-
ingu lýkur á miðnætti 20. september.
Kosið um Óskars-
framlag Íslands
Skriftamál ein-
setumannsins er
yfirskrift dag-
skrár sem haldin
verður í minningu
Sigurjóns Frið-
jónssonar skálds í
Norræna húsinu í
dag milli kl. 15 og
17. Síðar í mán-
uðinum eru 150 ár liðin frá því Sig-
urjón fæddist. Af því tilefni kemur út
önnur prentun af annarri útgáfu bók-
ar hans Skriftamálum einsetumanns-
ins. Bókin kom fyrst út 1929 en var
endurútgefin af Hinu íslenska bók-
menntafélagi 1999.
Skriftamál einsetu-
mannsins í dag
15:15 tónleikasyrpan í Norræna hús-
inu hefur göngu sína að nýju á morg-
un, sunnudag, kl. 15.15. Þar leika Björg
Brjánsdóttir flautuleikari og Jane
Ade Sutarjo píanó-
leikari verk eftir
C. Ph. E. Bach,
Báru Gísladótt-
ur, Snorra
Sigfús
Birgisson
og César
Franck.
15:15 tónleikar í
Norræna húsinu
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjart með köflum á A-verðu landinu, en rigning V-til og einnig
sums staðar N-lands síðdegis. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á NA- og A-landi.
Á sunnudag Sunnan 5-10 m/s, en 10-15 V-lands. Súld eða rigning á SV- og V-landi, ann-
ars skýjað með köflum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á NA-verðu landinu.
Á mánudag Sunnan 5-10 m/s og víða rigning, en yfirleitt þurrt NA-til á landinu. Hiti 10 til
18 stig, hlýjast NA-lands.
„Mér hefur gengið vel að komast inn í
samfélagið í Ungverjalandi, er í góðu
húsnæði í ágætri borg. Tungumálið er
hins vegar mjög erfitt. Það kemur ekki
að sök í kringum handboltann því þjálf-
arinn er spænskur og samherjar mínir
eru af ýmsu þjóðerni. Öll samskipti okk-
ar á milli fara fram á ensku,“ segir Stef-
án Rafn Sigurmannsson, leikmaður
Pick Szeged í Ungverjalandi. »1
Stefán Rafn er ánægður
í Ungverjalandi
Fjölnir leikur í úrvalsdeild
karla í handknattleik í fyrsta
sinn á keppnistímabilinu
sem er nýhafið en 27 ár eru
liðin síðan félagið sendi fyrst
meistaraflokk karla til leiks
á Íslandsmóti. Morgunblaðið
mun á næstu vikum og mán-
uðum fjalla ítarlega um
keppnislið í ýmsum íþrótta-
greinum og karlalið Fjölnis í
handbolta er fyrst í röðinni.
»2-3
Fyrsta ár Fjölnis
meðal þeirra bestu
„Shahab býr yfir frábærum eig-
inleikum, hann er eldsnöggur og
fljótur og hefur smám
saman verið að læra á
okkur og við á hann.
Það var gott að sjá
hann spila vel gegn
KR og svo fylgdi
hann því eftir
með þessum
mörkum gegn
Grindavík. Þar
sýndi hann
hversu góður
hann er í að
nýta færin,“ seg-
ir Kristján Guð-
mundsson, þjálfari
knattspyrnuliðs ÍBV,
um Shahab Zahedi,
sóknarmann frá Íran,
sem tryggði liðinu
sigur á Grindavík í
fyrradag. »4
Shahab sýndi hve góður
hann er í að nýta færin