Morgunblaðið - 16.09.2017, Síða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 18. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem
vilja hafa fallegt í kringum sig, breyta og bæta heimilið.
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir
og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt
mörgu öðru sem er huggulegt fyrir veturinn.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 22. september
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ekki allt gull sem glóir og
margt reynist eftirsókn eftir vindi. Nýttu þér
lögmál aðdráttaraflsins. Enginn er fullkom-
inn og þú þarft líka á skilningi að halda.
20. apríl - 20. maí
Naut Að þrá er yndisleg tilfinning og að vita
hvað maður vill er jafnvel enn betra. Gættu
þess bara að ganga ekki of langt og brjóta
rétt á öðrum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er rétti tíminn til að hlaða raf-
hlöðurnar fyrir það sem eftir er af árinu. Eitt-
hvað vekur athygli á vandanum sem að steðj-
ar, svo mikið er víst. Ný kynni gætu verið á
næsta leiti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur löngun hjá þér til að gera
eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til
þess fyrr en síðar. Hjarta þitt er stórt og gal-
opið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að þú standir ekki í vegi fyr-
ir metnaðarfullum tilburðum samstarfs-
manns þíns. Talaðu skýrt og skorinort.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sjaldan er ríkari ástæða til að gæta
heilsu sinnar en þegar streitan er í algleym-
ingi. Bíddu með það að kynna nýjar hug-
myndir fyrir samstarfsfólki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Erfiðir einstaklingar og stormasöm sam-
bönd eru tækifæri til þroska. Stingdu upp á
að allir leggi sitt af mörkum við að skemmta
hópnum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú lítur feiknavel út í augum
annarra um þessar mundir. Gættu þess þeg-
ar þú talar að velja orð þín af kostgæfni ann-
ars geta þau haft óafturkræf áhrif.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki nóg að sjá bara hinar
breiðu línur því einnig þarf að skyggnast und-
ir yfirborðið eftir smáatriðunum. Líttu á nána
vini og maka sem spegil á hegðun þína.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ótti þinn við að rugga bátnum hef-
ur leitt til þess að sambandið hefur strandað
á skeri. Láttu einkamálin hafa forgang.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér gætu boðist nýir möguleikar
sem þú ert ekki viss um hvernig þú getur
notfært þér. Þvermóðska kallar bara yfir þig
vandræði.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert svo sannarlega í sviðsljósinu.
Vertu svo vakandi fyrir nýjum tækifærum.
Taktu vandamálunum af kæruleysi, þú hefur
bæði fagmennsku og reynslu og svona
ákvarðanir tilheyra ferlinu.
Verk í framkvæmd örðugt er.
Oft úr klípu bjargar sér.
Ábyrgð hvílir þung á þér.
Þú munt vera skyldur mér.
Færri svör bárust við gátunni envant er og kvartaði ég yfir því
við karlinn á Laugaveginum þar sem
ég hitti hann á Skólavörðustígnum
innan um ferðamennina. „Lát
heyra,“ sagði karlinn og ég fór með
gátuna. Hann velti vöngum, ská-
blíndi upp á kirkjuturninn og sagði:
Ekki milli mála fer
mér það skapar vanda
mín ef kerling úrill er
á mér spjótin standa.
Og var horfinn.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Leyst nú vandaverkið er.
Úr vanda oft má bjarga sér.
Vandi hvílir þungt á þér.
Þú ert vandabundinn mér.
Þá er limra:
Víða þó blasi vandi
við á þessu landi,
sem leysa má,
er langt í frá,
að Viðreisn sé viðbjargandi.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Morgunsólin gyllti grund,
gliti brá á lognvær sund,
gekk ég út með gæluhund
og gátu samdi í þann mund:
Svefnleysi það ástand er.
Er þá beðið fyrir sér.
Kvöldstund, meðan kveðið var.
Kvöldið fyrir hátíðar.
Lausnir á að senda á netfang mitt og
þurfa þær að berast ekki seinna en á
miðvikudagskvöld.
Filli, – Friðrik Steingrímsson, – sá fréttir
af setningu alþingis:
Þétt er setinn sýnist mér
salur fagurbúni,
það er fullt af fíflum hér,
fleiri en út á túni.
Seinna um kvöldið skrifaði Frið-
rik á Leirinn „nóg að gera“:
Þreyttur er og þyrfti blund
þó til verka fer ég,
ýsur dreg ég æðistund
á eftir hrúta sker ég.
Jón S. Bergmann var ölkær og þótti
gott að dveljast í sölum Bakkusar:
Þar er gestum greitt til máls,
glöggt er hvað þeir meina,
því að gleðigyðjan frjáls
gengur þar um beina.
Kristján Fjallaskáld orti:
Lát þá vinur áfengt öl
örva hjartadreyra.
Svo skal maður bæta böl
að bíða annað meira.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vandi er illt rétt að brúka
„ÉG SAMDI NÆSTA LAG SVO ÉG GÆTI
MUNAÐ PIN-NÚMERIÐ MITT.“
„GÆTIRÐU SLÖKKT Á ÞESSARI VIFTU?!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... sólskinið sem hann
færir þér á hverjum
degi.
ÉG HEF ÞVÍ MIÐUR
SLÆMAR FRÉTTIR
ÞÚ ERT MEÐ ALVARLEGT…
HNETUOFNÆMI NEEEEI!!
ERFIÐAR
FRÉTTIR FYR-
IR ÍKORNA
KARL, ÞÚ ERT EILÍFUR
BJARTSÝNISMAÐUR!
HEPPNI EDDI, HVAÐ ER
GOTT Í MATINN?
HRÓLFUR, ÞÚ ÆTTIR AÐ REYNA
AÐ HRÓSA ÁHÖFNINNI ÞINNI…
TIL AÐ LÉTTA LUND
ÞEIRRA! ÞAÐ ER
RÉTT!
SEGÐU ÞAÐ
BEINT ÚT,
LÆKNIR
Fyrir skemmstu var ákveðið aðlengja opnunartímann í Vest-
urbæjarlaug og Breiðholtslaug til 22
alla daga. Um 3.200 manns skrifuðu
undir áskorun leikarans Stefáns
Karls Stefánssonar um að lengja
opnunartíma Vesturbæjarlaugar og
tók Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur áskoruninni. Opn-
unartími hafði verið lengdur í sumar
í tilraunaskyni. Þórgnýr Thorodd-
sen formaður ráðsins sagði í samtali
við Fréttablaðið að aðsókn að Vest-
urbæjar- og Breiðholtslaug hefði
aukist með lengri opnunartíma í
sumar en sömu aukningu hefði ekki
mátt greina í öðrum laugum. Þetta
er sérkennileg athugasemd því ekki
hafði verið prófað að hafa opið til 22
alla daga í Árbæjarlaug og því óvíst
hver útkoman hefði orðið af því.
x x x
Með nýjustu ákvörðun ÍTR erverið að skilja Árbæjarlaug og
Grafarvogslaug útundan. Þar verður
aðeins opið til 20 á föstudögum og 18
um helgar. Talað er um að með
lengri opnun í Vesturbæ sé verið að
taka álagið af Laugardalslaug. Það
getur vel verið að það þurfi en búið
var að ákveða að bregðast við því.
Þórgnýr bendir á í sama viðtali að
þegar Sundhöll Reykjavíkur verði
opnuð verði hún sömuleiðis opin til
22 alla dag. Niðurstaðan er þá sú að
mjög stutt er á milli tveggja sund-
lauga, Vesturbæjarlaugarinnar og
Sundhallarinnar sem verða opnar til
22 alla daga.
x x x
Nú stendur yfir undirskriftasöfn-un um lengri opnunartíma Ár-
bæjar- og Grafarvogslaugar. Strax
hafa um 1.700 manns skrifað undir.
Hvernig ætlar ÍTR að bregðast við
þessari undirskriftasöfnun? Er það
nauðsynlegt að einhver frægur
standi fyrir undirskriftasöfnun með
tilheyrandi fjölmiðlaathygli til að
mark sé tekið á henni? Víkverja
finnst ÍTR hafa farið illa að ráði sínu
með því að láta undan þessum þrýst-
ingi. Ef það er ekki til peningur til
þess að hafa laugarnar í Vesturbæ,
Grafarvogi og Árbæ allar opnar
lengur hefði bara átt að sleppa
þessu. Þetta er mikið ójafnrétti og
skapar bara sundrungu og óánægju.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Betri er hnefafylli af ró en báðar hend-
ur fullar af striti og eftirsókn eftir
vindi. (Pred. 4.6)