Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Stefán Broddi Guðjónsson, for- stöðumaður greiningardeildar Arion banka, segir að markaðir hafi brugðist harkalega við fregnum af falli ríkisstjórnarinnar. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,9% í gær og gengi krónunnar veiktist um 1,5% gagnvart evru. „Þá lækkaði verð óverðtryggðra ríkisskulda- bréfa í talsverðri veltu,“ segir Stef- án Broddi. „Það leiddi til þess að ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hækkaði um liðlega 50 punkta en í því felast talsvert harkaleg neikvæð viðbrögð við þessum alvarlegu frétt- um úr íslensku stjórnmálalífi og endurspeglar hækkun á verðbólgu- væntingum á markaði. Sama þróun átti sér stað á hlutabréfamarkaði þar sem lækkun á verði stærstu fé- laga hefur verið á bilinu 1,8-5,1%,“ segir hann. Óvissa um framhaldið „Harkaleg viðbrögð eru í sam- ræmi við það hversu óvænt og dap- urleg atburðarásin hefur verið. Við tekur óvissa um framhaldið. Hvern- ig mun fjárlagafrumvarpi reiða af? Hvers konar ríkisstjórn tekur við? Hvaða stefnu mun ný ríkisstjórn fylgja í ríkisfjármálum, skattamál- um, peningamálum, uppbyggingu innviða og í málefnum sem snúa að gjaldtöku fyrir nýtingu auðlinda? Svo ég nefni dæmi um þá óvissu sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Stefán Broddi. Krónan oft veikst svipað Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans, vekur athygli á því að frá því að fjármagnshöftum var aflétt í vor hafi verið mikið flökt á krónunni. Hún hafi oft veikst með sambæri- legum hætti og í gær án þess að sérstök tíðindi hafi borist þann dag. Ekki væri hægt að sjá mikil bein áhrif á fréttum gærdagsins á gjald- eyrismarkaði í gær enda var veltan ekki mjög mikil. „Fjárfestar eru ekki að fara með fjármagn úr landi í stórum stíl út af þessu,“ segir hann. „Hreyfingar innan dags á hluta- bréfamarkaði þurfa ekki alltaf að vera rökréttar. Krónan veiktist en samt sem áður lækkaði Marel um rúmlega 3%. Það vekur athygli því félagið nýtur góðs af veikingu krónu og erfitt er að ímynda sér að póli- tískt umrót hér á landi hafi mikil áhrif á alþjóðlegan rekstur þess. Til dæmis eru aðrar skýringar en frétt- ir gærdagsins að Eik lækkaði mest allra hlutabréfa. En þetta endur- speglar að eignamarkaðir kunna af- ar illa við óvissu,“ segir hann. Óvissa einkenndi markaði Morgunblaðið/Kristinn Óvissa Harkaleg viðbrögð eru í samræmi við óvænta atburðarás, segir forstöðumaður greiningar Arion banka.  Úrvalsvísitalan féll um 2,9% í gær  Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hækkaði um liðlega 50 punkta  Endurspeglar hækkun á verðbólguvæntingum á markaði Eik leiddi lækkunina » Fasteignafélagið Eik lækk- aði um 5,1% í gær. » HB Grandi lækkaði um 3,8%. » N1 lækkaði um 3,6%. » Icelandair, Hagar og Síminn lækkuðu um 3,4%. » Gengi krónu veiktist um 1,5% gagnvart evru í gær. eignarhlut í Arion banka með beinni hlutdeild. Trinity fer með um 9,99% hlut í bankanum auk 4,7% hlutar í Kaupþingi, eða sem nemur um 2,7% óbeinum hlut í bankanum. Þá lagði Fjármálaeftirlitið mat á hæfi tengdra aðila til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka með óbeinni hlutdeild, þeirra á meðal sjóðinn Attestor Value Master Fund LP á Caymaneyjum sem fjármagnar Trinity Invest- ments. Fjármálaeftirlitið hefur metið Attestor Capital LLP og tengda aðila hæfa til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka sem nem- ur allt að 20%, samkvæmt tilkynn- ingu sem sett var á vef eftirlitsins síðdegis í gær, föstudag. Attestor Capital stýrir fjárfest- ingum og eignum Trinity Invest- ments DAC og Attestor Value Master Fund LP. Í tilkynningu FME kemur fram að eftirlitið hafi einnig lagt mat á hæfi Trinity In- vestments til að fara með virkan Attestor metinn hæfur eigandi Arion  Má fara með allt að 20% virkan hlut Morgunblaðið/Ómar FME Vogunarsjóðirnir Attestor og Taconic eiga hvor um sig 9,99% hlut í Arion. ● Fiskafli íslenskra skipa í ágúst var 120.627 tonn sem er 1% meiri afli en í ágúst 2016. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þar segir einnig að botnfiskafli hafi numið rúmum 39 þús- und tonnum og hafi aukist um 18%, þar af nam þorskaflinn ríflega 21 þúsund tonnum sem er 25% meiri afli en í ágúst 2016. Uppsjávarafli nam rúmum 77 þúsund tonnum í ágúst og dróst saman um 7%. Flatfiskaflinn nam um 3 þúsund tonnum sem er 16% aukning miðað við ágúst 2016. Skel- og krabba- dýraafli nam 1.273 tonnum samanborið við 1.493 tonn í ágúst 2016. Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá september 2016 til ágúst 2017 var 1.120 þúsund tonn sem er 7% aukning. Fiskaflinn í ágúst jókst um 1% milli ára 16. september 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.36 106.86 106.61 Sterlingspund 140.41 141.09 140.75 Kanadadalur 87.32 87.84 87.58 Dönsk króna 17.005 17.105 17.055 Norsk króna 13.47 13.55 13.51 Sænsk króna 13.259 13.337 13.298 Svissn. franki 109.97 110.59 110.28 Japanskt jen 0.9625 0.9681 0.9653 SDR 150.85 151.75 151.3 Evra 126.55 127.25 126.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 155.3405 Hrávöruverð Gull 1325.0 ($/únsa) Ál 2064.0 ($/tonn) LME Hráolía 55.02 ($/fatið) Brent ● Tap Sjóklæða- gerðarinnar 66°norður af áframhaldandi starfsemi var tæp- lega 38,8 milljónir króna á síðasta ári, miðað við rúmlega 6,6 millj- óna króna tap árið áður. Rekstrartekjur jukust um 3% á milli ára og námu lið- lega 3,6 milljörðum króna. Rekstr- arhagnaður ársins var tæp 141 milljón króna. Eigið fé í árslok var tæplega 275 milljónir króna og eiginfjárhlutfall var 11%. Tap 66°norður tæplega 40 milljónir króna í fyrra Sjóklæði Tekjur jukust um 3%. STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.