Morgunblaðið - 16.09.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.09.2017, Blaðsíða 11
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í vikunni voru haldnir á Suðurlandi fyrstu fundirnir með fulltrúum sveitarfélaga og íbúum á hverjum stað vegna nýrra almannavarna- áætlana fyrir landshlutann. „Hug- tökin eru skilgreind vítt og talsvert fleiri þættir en náttúruvá eru teknir inn í þessa vinnu,“ segir Víðir Reynisson sem stýrir þessu verkefni á vegum lögreglunnar og sveitarfélaganna á Suðurlandi. „Jarðskjálftar, eldgos, flóð og stórbrunar eru vissulega of- arlega á blaði og fyrsta hjálp þegar slíkir atburðir gerast. Nú horfum við til mun fleiri þátta, svo sem aðgerða ef veitu- og fjarskiptakerfi bresta, velferð- armálin koma inn í þetta og hvernig sveitarfélög geti unnið sig sem fyrst út úr áföllum. Sé ekki markvisst að málum staðið strax í byrjun geta eft- irköstin varað í mörg ár.“ Skjálftar og skæð veikindi Nú í vikunni settist lögreglan nið- ur með Hvergerðingum um al- mannavarnamálin. Þar var í fyrstu fundað með helstu stjórnendum sveitarfélagsins sem allir gegna ábyrgðarmiklu hlutverki í hættu- ástandi komi til þess svo og eftirmál- unum. Þá var rætt við stjórnendur slökkviliðs, sjúkraflutninga, björg- unarsveitar og Rauða krossins og að lokum var almennur íbúafundur. Þar flutti annarra erindi Kristín Jónsdóttir, sviðsstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, en eðlilega var jarðskjálftavá ofarlega í baugi í Hveragerði, svo illa varð bærinn úti í Suðurlandsskjálftanum vorið 2008. „Á fundunum í Hveragerði voru nefnd alls um 30 atriði sem talist gætu almannavarnamál, svo sem ef ný hverasvæði gætu myndast í bæn- um eða skæð veikindi kæmu upp. Frá því í síðasta mánuði var fólki í fersku minni veirusýkingin á Úlf- ljótsvatni, þaðan sem flytja þurfti um 180 manns til aðhlynningar í fjöldahjálparstöð í Hveragerði. Þeg- ar allt kemur til alls er býsna margt sem valdið getur víðtækri röskun í samfélagi og því þarf að vera hægt að bregðast fumlaust við,“ segir Víðir. Hann er nú að vinna almanna- varnaáætlanir fyrir sveitarfélögin á Suðurlandi sem eru alls fjórtán. Þar við bætast áætlanir vegna sértækra atriða, svo sem eldgosa í Heklu, Eyjafjallajökli og Kötlu, skipskaða við suðurströndina og hugsanlegra flugslysa á Hornafjarðarflugvelli. Með náttúruhamförum á Suður- landi á undanförnum árum hefur skapast margþætt þekking sem nýt- ist vel í núverandi áætlanagerð. „Hjá stofnunum hvers sveitarfé- lags þarf hlutverk hvers og eins starfsmanns að vera skýrt afmarkað og til skráð á einu A4-blaði. Fyrstu stundirnar skipta mestu en síðan verða líka að vera til skýrir ferlar fyrir framhaldið. Menn verða líka að huga að mikilvægum þáttum í flóknu samfélagi, til dæmis að ef rafmagn fer af þá detta fjarskipti út, greiðslu- miðlunarkerfi og fleira. Við þurfum í sem flestu að hafa plan B,“ segir Víðir Reynisson sem á næstu vikum mun funda um almannavarnamál í öllum sveitarfélögunum og næst á Flúðum, það er Hrunamannahreppi. Auk sveitarstjórna og björgunarliða þar stendur svo til að eiga samtöl við fulltrúa ferðaþjónustu. Þekkir ekki aðstæður „Aukinn ferðamannastraumur hefur breytt samfélaginu. Mun fleira fólk á ferðinni sem þekkir ekki til aðstæðna og náttúru á hverjum stað og er því útsettara en ella fyrir hættu,“ segir Víðir sem telur mik- ilvægt að áætlanir um almannavarn- ir séu endurskoðaðar á þriggja til fjögurra ára fresti og æfingar haldn- ar árlega. Sveitarfélög vinni sig fljótt út úr áföllunum  Almannavarnir á Suðurlandi  Hlutverk fólks séu skýr Morgunblaðið/Sigurður Bogi Náttúruhamfarir Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 olli usla víða um lönd. Víðir Reynisson Fæst íapótekum,Hagkaup,Fjarðarkaup, NettóogGrænheilsa. Bragðlaust duft í kalt vatn 5 mán skammtur Styður: Efnaskipti og öflugri brennslu Minni sykurlöngun Slökun og svefn Vöðva og taugastarfsemi Gott á morgnana og kvöldin 1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð Mikil virkni Náttúrulegt Þörungamagnesíum ENGIN MAGAÓNOT Nýjar umbúðir sömu gæði Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið í dag 11-16 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 8.500 100% bómull Str. S-2XL - Fleiri litir Síðar peysur Searching for Heiða Jónsdóttir who attended I.P.C. in Denmark in ‘67 - ‘68. At one time lived at Fellsmúla 5 in Reykjavík. Please contact kristine.harder@gmail.com HAUSTYFIRHAFNIR Dúnúlpur - Ullarkápur Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 • laxdal.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.