Morgunblaðið - 16.09.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
Byggjumvon
umbetra líf
Það er erfitt að meta nákvæmlega hversu
margir einstaklingar búa við heimilisofbeldi á
Íslandi. Staðreyndin er samt sú að á síðasta
ári dvöldu 116 konur hjá Kvennaathvarfinu.
Stór hluti þeirra neyddist til að snúa aftur
heim í ofbeldið.
Á allra vörum safnar nú fyrir byggingu nýs
langtímahúsnæðis sem hjálpar konum að
taka næstu skref í átt að sjálfstæðri búsetu
með von um betra líf.
Leggðu átakinu lið og kauptu varasett á
aallravorum.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleði Hilmar brosmildur í hvíldardvöl í Álfalandi. Gleði barnanna og litlu
sigrarnir eru gefandi, að sögn Margrétar Lísu, forstöðumanns Álfalands.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Álfaland er fyrst ogfremst heimili þar sembörnum, foreldrum ogstarfsfólki líður vel. Það á
að vera betra að vera en fara í Álfa-
landi,“ segir Margrét Lísa Stein-
grímsdóttir, þroskaþjálfi og for-
stöðumaður Álfalands frá upphafi.
Fyrir 30 árum hóf Álfaland
starfsemi sína sem skammtímadvöl
fyrir fötluð börn í heimilislegu húsi í
Álfalandi í Smáíbúðahverfinu í
Reykjavík. „Við erum heppin með
nágranna. Það er ekki sjálfgefið,“
segir Margrét Lísa.
Að sögn hennar geta börn sem
falla undir sérstakan umönnunar-
flokk sótt um hvíldardvöl. Kostn-
aður við vistunina er greiddur af
Reykjavíkurborg. „Við höfum alltaf
átt stuðning Reykjavíkurborgar vís-
an og átt í góðu sambandi við vel-
ferðarsvið sem metur Álfaland mik-
ils. Velferðarsvið hefur skilning á
nauðsyn skammtímaþjónustu og
styður ráðstefnu sem ISBA, al-
þjóðleg grasrótarsamtök um
skammtímaþjónustu fyrir allan ald-
ur, halda á Íslandi haustið 2018,“
segir Margrét Lísa sem er í forsvari
fyrir ISBA.
Margrét Lísa segir að Álfaland
eigi marga hauka í horni sem komið
hafi færandi hendi. „Hringskonur
hafa verið ótrúlega stórtækar. Einu
sinni kom hópur nemenda úr Há-
skólanum í Reykjavík færandi hendi
og gaf sjónvarp með innbyggðum
DVD-spilara. Þau áttu afgang úr
sjóði og söfnuðu styrkjum til þess að
geta fært Álfalandi nýtt sjónvarp.“
Margrét segir að daglegt líf í
Álfalandi litist af því að staðurinn sé
ígildi heimilis. Þar gera börnin allt
það sem þau gera heima hjá sér.
Þau séu sótt í skóla eða leikskóla og
keyrð heim að þeim loknum. Þá taki
við einhver dagskrá eða kósíheit
fram að kvöldmat. „Allur matur er
eldaður heima af starfsmönnum
heimilisins sem sjá líka um þrif,
garðinn og allt það sem þarf að gera
á venjulegu heimili.“
Fánar, popp og partí
Margrét Lísa segir að um helg-
ar gefist tækifæri til að gera fleiri
skemmtilega hluti. „Ef það er lands-
leikur þá er mikil stemning, fánar,
popp og partí. Börnin fá líka kósíbað
og nudd. Þau geta líka legið og lesið
bók ef það er það sem þau langar að
gera.“
Margrét Lísa segir starfs-
mannaveltu í Álfalandi sama sem
enga og meðalstarfsaldur starfs-
manna sé sá hæsti á velferðarsviði.
„Ég þakka það samstarfsfólk-
inu sem allt leggur sig fram um að
gera vinnustaðinn góðan þannig að
öllum líði vel. Börnum, starfsfólki og
foreldrum. Við höfum lagt ríka
áherslu á að vinnuumhverfið sé í
lagi. Við erum sem dæmi með raf-
drifin baðkör og í öllum herbergjum
eru lyftur og hækkanleg rúm.“
Margrét Lísa segir að foreldrar
nýti sér skammtímadvöl í Álfalandi
til þess að hvíla sig og fjölskylduna.
Fá pössun þegar þau þurfa að kom-
ast út, því erfitt sé að fá pössun fyrir
börn með flogaveiki eða miklar
hegðunartruflanir til dæmis. Börnin
dvelji allt frá einum sólarhring og
upp í fimm.
„Það er ótrúlegt að við skulum
eiga 30 ára afmæli eins og við erum
ung öll og lítum vel út,“ segir Mar-
grét Lísa og hlær. „Við erum líka að
halda upp á það í dag að viðbygg-
ingin okkar er tilbúin. Það verður
mikið um dýrðir. Hoppukastali, and-
litsmálun, grillaðar pylsur og kaka.“
Allir þeir sem hafa verið í Álfa-
landi í gegnum tíðina og ættingjar
þeirra eru velkomnir. „Það væri
gaman að sjá þau öll,“ segir Margrét
Lísa og bætir við að hún sé mjög
þakklát fyrir að hafa kynnst öllum
þeim sem dvalið hafa í Álfalandi.
„Við höfum þurft að sjá á eftir mörg-
um og það er erfitt en það er gefandi
að veita börnunum þjónustu sem
lætur þeim líða betur.“
Margrét Lísa segir það ein-
kenna fötluð börn hversu fölskva-
laus og einlæg þau séu. „Þau eru
mörg mjög erfið og geta verið
hættuleg sjálfum sér og öðrum.
„Það á að vera betra
að vera en fara“
Álfaland, skammtímadvöl fyrir fötluð börn, fagnar 30 ára afmæli á þessu ári.
Starfsemi Álfalands miðar að því að veita foreldrum og systkinum fatlaðra barna
hvíld. Henni er líka ætlað að hjálpa börnum sem nýta sér dvölina til þess að leika
sér í frítíma og kynnast öðrum börnum utan leikskóla og skóla. Meðan á dvöl
stendur er lögð áhersla á að börnunum líði eins og heima hjá sér.
Ánægðar Harpa Dís Úlfarsdóttir, móðir Bryndísar Emmu, með Margréti
Lísu Steingrímsdóttur, þroskaþjálfa og forstöðumanni Álfalands til 30 ára.
Heimilislegt Guðfinnur í stofunni í Álfalandi, þar er áhersla lögð á að börn-
in séu eins og heima hjá sér og að aðstaða fyrir þau og starfsmenn sé góð.
Að dansa er ekki aðeins bráðhollt og
gott fyrir líkamann, heldur bætir það
geðið svo um munar, það vita allir
sem dansað hafa úr sér hverskonar
leiðindi. Nú er heldur betur lag að
liðka liðinn stirða, teygja sinn kropp
og toga í allar áttir, hnykkja til
mjöðmunum, brosa hringinn og læra
ný dansspor og dansstíla, því í dag,
laugardag, kl. 13 ætla Íbúasamtök
miðborgar og Kramhúsið að bjóða
upp í dans í Spennistöðinni, sem er
félags- og menningarmiðstöð mið-
borgarinnar við Austurbæjarskóla í
Reykjavík og stendur á Skólavörðu-
holtinu. Í tilkynningu kemur fram að
danssmiðja þessi sé liður í verkefni
Íbúasamtakanna Heil brú, og er að-
gangur ókeypis og heimill fólki á öll-
um aldri. Danssmiðjan er einstakt
tækifæri fyrir alla í fjölskyldunni til
að dansa saman.
Öllum íbúum hverfisins gefst
þarna tækifæri til að prófa dansa frá
Boðið upp á ókeypis danskennslu í dag í Spennistöðinni
Bollywood-dansar, Balkandans-
ar, breikdans og skapandi dans
Morgunblaðið/Ómar
Bollywood-dansar Margrét Erla Maack leiðir hér hóp í Bollywood-dansi fyrir
nokkrum árum, en slíkir dansar eru sérlega skemmtilegir og gleðjandi og dans-
ararnir klæðast gjarnan litríkum indverskum klæðum.