Morgunblaðið - 16.09.2017, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
2024 SLT
L iðLé t t ingur
Verð kr
2.790.000
Verð með vsk. 3.459.600
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þessi ríkisstjórn gaf upp öndina
einfaldlega vegna þess að límið sem
hélt henni saman var mjög veikt frá
upphafi – þrír flokkar, tveir þeirra
alveg nýir, óreynt fólk, eins manns
meirihluti og erfið mál fram undan.
Þeir voru því fáir sem veðjuðu á að
þessi ríkisstjórn myndi endast út
allt kjörtímabilið,“ segir Stefanía
Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur
við Háskóla Íslands, við Morgun-
blaðið.
Vísar hún í máli sínu til ríkis-
stjórnar Bjarna Benediktssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins, sem
óvænt féll seint í fyrrakvöld eftir til-
kynningu frá stjórn Bjartrar fram-
tíðar, en þar var „alvarlegur trúnað-
arbrestur“ innan ríkisstjórnarinnar
sagður ástæða slitanna.
Stefanía segir það hafa verið dýrt
á sínum tíma fyrir Bjarta framtíð að
ganga til samstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn og Viðreisn.
„Þeir misstu að mörgu leyti teng-
inguna við þá sem líta á sig sem
vinstrimenn,“ segir hún og bætir við
að flokkurinn, sem að undanförnu
hefur mælst lágt í skoðanakönn-
unum, gæti grætt á ákvörðun sinni
um að slíta samstarfi. „Þeir gætu
þess vegna rokið upp núna,“ segir
hún.
Á blaðamannafundi sem haldinn
var í Valhöll í gær sagðist Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra vilja
boða til kosninga sem fyrst og benti
á nóvember nk. í því samhengi. Að-
spurð segist Stefanía telja brýnt að
forysta Sjálfstæðisflokksins endur-
nýi umboð sitt fyrir komandi kosn-
ingar, en sjálfstæðismenn munu að
óbreyttu halda landsfund 3.-5. nóv-
ember. „Ég myndi halda að það
væri mikilvægt og þá einnig til að
þétta raðirnar,“ segir hún.
Ný stjórnmálaframboð hafa að
undanförnu skotið rótum og hafa
talsmenn sumra þeirra sagst vera
klárir í slaginn.
Erfitt fyrir litla flokka
Baldur Þórhallsson, prófessor við
stjórnmálafræðideild Háskóla Ís-
lands, segir það hins vegar vanda-
samt verk fyrir minni flokka að
ganga til kosninga til Alþingis með
skömmum fyrirvara.
„Ef kosið verður eftir fáeinar vik-
ur þurfa menn í nýjum flokkum
heldur betur að hafa hraðar hendur
til að ná að bjóða fram,“ segir hann.
Þá segir Baldur ljóst að sam-
félagsmiðlar hafi haft mikil áhrif á
nýliðna atburðarás og að hraði
ákvarðanatöku sé mun meiri nú en
áður. „Þessi breyting er, að ég tel,
svo byltingarkennd að líkja má við
þá breytingu sem varð í bandarísk-
um stjórnmálum þegar sjónvarpið
kom fyrst fram. Að sama skapi eru
stjórnmálamenn í meiri tengslum
við grasrótina,“ segir hann og bætir
við að grasrót stjórnmálaflokka geti
þrýst meira og mun fyrr á flokka nú
en áður. „Krafan er að hlutirnir ger-
ist hratt og það sem skýrir það að
mörgu leyti er sá andi sem nú er
uppi í samfélaginu.“
2003
28. október Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmir Hjalta í 5½
árs fangelsi fyrir brot
sín og til þess að greiða
stjúpdóttur sinni þrjár
milljónir í bætur.
2004
25. mars Hæstiréttur
staðfestir dóm Héraðsdóms.
Þyngsti dómur sem fallið
hafði í kynferðisbrotamáli á
þeim tíma. Hjalti afplánaði
þrjú og hálft ár í fangelsi.
2017
15. júníMál Roberts
Downeys kemst
í hámæli þegar
Hæstiréttur fellst á
beiðni hans um að fá lög-
mannsréttindi sín á ný.
16. júní Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Ís-
lands, sem skrifaði undir
uppreist æru Downeys,
segist vera ábyrgðarlaus á
stjórnarathöfnum samkvæmt
stjórnarskrá.
18. júlí Stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd Alþingis
kemur saman og ræðir regl-
ur um uppreist æru. Fyrir
nefndina komu fulltrúar
dómsmálaráðuneytisins og
Lögmannafélags Íslands.
11. ágúst Sig-
ríður Andersen
dómsmálaráð-
herra kynnir
frumvarp um
endurskoðun laga
um uppreist æru.
14. ágúst Fundur í stjórnskipun-
ar- og eftirlitsnefnd eftir að hluti
nefndarinnar hafði farið fram á
gögn um afgreiðslu uppreistar
æru Roberts Downeys,m.a. hverj-
ir hefðu veitt honummeðmæli.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
nefndinni gengu út af fundi og
töldu sig ekki þurfa að sjá gögnin.
25. ágúst Stundin
upplýsir að maður, sem
nauðgaði stjúpdóttur
sinni nánast daglega í
12 ár, hafi fengið upp-
reist æru. Síðar kemur í
ljós að það var Hjalti.
11. september
Bjarni Benedikts-
son greinirÓttari
Proppé og Benedikt
Jóhannessyni frá því að faðir hans,Benedikt
Sveinsson, hafi veitt dæmdummanni með-
mæli vegna umsóknar um uppreist æru.
12. september Gögn um
umsókn Roberts Downeys um
uppreist æru birt á vef dóms-
málaráðuneytisins í kjölfar
niðurstöðu úrskurðarnefndar
upplýsingamála og tilkynnt
að samskonar gagna væri að
vænta um aðra sem fengið
hefðu sömumeðferð.
14. september Benedikt Sveinsson
sendir fjölmiðlum tölvupóst þar sem
hann segist hafa veitt Hjalta meðmæli
vegna umsóknar um uppreist æru.
Dómsmálaráðherra segir að hún hafi vitað af
meðmælumBenedikts frá því í lok júlí og að
hún hafi upplýst Bjarna umþað samdægurs.
15. september Skömmu eftir mið-
nætti berst fjölmiðlum tölvupóstur
frá Guðlaugu Kristjánsdóttur,
stjórnarformanni Bjartrar framtíð-
ar, um að flokkurinn hafi ákveðið
að slíta samstarfi við ríkisstjórn
Bjarna Benediktssonar. Ástæða
slitanna er alvarlegur trúnaðar-
brestur innan ríkisstjórnarinnar.
1988 eða 1989
MisnotkunHjalta Sigurjóns
Haukssonar á stjúpdóttur
sinni, sem þá var 5-6 ára,
byrjar, samkvæmt því sem fram kemur
í dómsskjölum.Ofbeldið stendur yfir á
næstum því hverjum degi næstu 12 árin.
2016
16. september Forseti Íslands skrifar undir
beiðni Hjalta um uppreist æru. Benedikt Sveins-
son, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra, veitti meðmæli með umsókn hans. Annar dæmdur
kynferðisbrotamaður,Robert Downey, sem áður hét
Róbert Árni Hreiðarsson, fékk einnig uppreist æru.
14. júlí Sigríður
Andersen dóms-
málaráðherra segir
í viðtali í Morgun-
blaðinu að hún hyggist kynna
frumvarp um endurskoðun
laga um uppreist æru.
13. júlí Bergur
Þór Ingólfsson
og Þröstur Leó
Gunnarsson, feður
tveggja fórnarlamba Downeys,
hvetja í pistli til þess að hafa hátt.
Myllumerkið #höfumhátt verður til.
30. ágúst Bergur Þór
Ingólfsson tjáir sig á
opnum fundi allsherjar-
ogmenntamálanefndar.
Áður hafði ÁslaugArna Sigur-
björnsdóttir, formaður nefndarinnar,
farið fram á það við nefndarmenn að
ekki yrði rætt efnislega um uppreist
æru Downeys á fundinum.
9. ágúst Brynjar
Níelsson, formað-
ur stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar,
segir í samtali við mbl.is að
nokkrir einstaklingar, sem
hafi brotið alvarlegar á börn-
um en Downey, hafi fengið
uppreist æru.
2. ágúst Bjarni Bene-
diktsson tjáir sig um
uppreist æru í facebook-
færslu og segir að
breytt viðhorf kalli á að
framkvæmdin verði tekin
til endurskoðunar.
Atburðarás sem leiddi til falls ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar
Ríkisstjórnin veik frá upphafi
Stjórnmálafræðingur segir fáa hafa veðjað á gott gengi ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar og að
samstarfið hafi reynst Bjartri framtíð dýrt Samfélagsmiðlar og hraði samfélagsins áhrifavaldar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórnarflokkur Nokkrir þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
þungir á brún á blaðamannafundi forsætisráðherra í Valhöll í gær.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og
faðir eins brotaþola Róberts Dow-
ney, segir atburðarás síðustu daga
eitthvað sem ómögulegt væri að
ímynda sér. „Þetta er eitthvað sem
maður hefði aldrei getað ímyndað
sér, frekar en annað, síðustu þrjá
mánuði,“ segir Bergur. „Eins fárán-
legt og það er. Af því að þarna eru
samflokksmenn fráfarandi for-
sætisráðherra, sem ganga mjög
hart gegn því að við fáum upplýs-
ingar.“
Lög um uppreist æru gölluð
„Ég er á því að flest lög í landinu
virka en ekki þau um uppreist æru.
En það voru þarna lög sem virkuðu
þannig að við fengum að sjá þessar
upplýsingar og þetta kemur í ljós.
Þetta er algjörlega …,“ segir hann
og þegir stutta stund. „Ég hafði ekki
ímyndunarafl til að sjá að þetta væri
ástæðan fyrir þessu öllu saman.“
Margir hafa þakkað Bergi fyrir
framgöngu hans og jafnvel viljað
eigna honum að sprengja ríkis-
stjórnina. Sjálfur segist hann telja
að fólk sé einfaldlega búið að fá nóg.
„Ég hef náttúrlega stigið fram og
verið andlit fyrir dóttur mína og
fjölskylduna og brotaþola Róberts
Downey, og ég er þakklátur fyrir öll
þessi skilaboð sem fólk er að senda
mér. En ég held að þetta sé deigla
og ég held að nýfemínisminn sé stór
hluti af þessu; það að stelpur eru að
rífa kjaft og rífa niður akkúrat það
sem ég var að tala um áðan, þennan
menningarkima hrútanna. Þær hafa
oft hlotið bágt fyrir en það er alveg
satt að það er risastór þáttur í
þessu máli,“ segir Bergur Þór Ing-
ólfsson.
Menningarkimi hrútanna
Bergur Þór þakkar nýfemínistum og stelpum sem „rífa
kjaft“ fyrir að opnað umræðuna Fólk er búið að fá nóg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hefur hátt Bergur telur að fólk sé
einfaldlega búið að fá nóg.
Ríkisstjórnin fallin