Morgunblaðið - 16.09.2017, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.09.2017, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslensk stjórn-mál eru kom-in í miklar ógöngur. Flokkum hefur fjölgað á þingi og nýliðunin orðin slík að varla er nokkur reynsla eftir í þing- húsinu. Þetta reynsluleysi bætist ofan á nýja og óburðuga flokka sem taka ákvarðanir um veigamikil mál sem varða mikla hagsmuni almennings án þess að ræða þau til hlítar. Alræmdur kvöldfundur Bjartrar framtíðar, haldinn í skyndi og að hluta til á netinu, er nýjasta og versta dæmið um þetta. Nokkur hópur kemur saman í mikilli geðshræringu kvöld eitt og ákveður að flokk- ur slíti stjórnarsamstarfi. Það er ekki rætt við samstarfs- flokka eða þá sem bornir eru þungum sökum, en þess í stað send út tilkynning eftir mið- nætti. Þá tekur annar rík- isstjórnarflokkur við og fund- ar fram á morgun og ályktar í óðagoti. Allt er þetta með miklum ólíkindum, ekki síst þegar haft er í huga að þetta fólk hefur kallað á vönduð vinnubrögð og mikilvægi þess að samtöl eigi sér stað á milli manna. Í stað þess að ræða málin er hlaupið upp til handa og fóta um miðjar nætur og samstarfi slitið. Þegar dagur rennur og efnislegar umræður hefjast um það sem olli slitunum má öllum vera ljóst að engin efni voru til slita. En þá er allt um seinan. Þá standa menn frammi fyrir orðnum hlut, vanhugsuðum augljóslega, en orðnum engu að síður. Og þá er farið að réttlæta endaleysuna með því að bæta í. Viðreisn- armegin er því haldið fram að ef Björt framtíð hefði ekki slitið um nóttina þá hefði Viðreisn gert það daginn eftir. Og Björt framtíð setur fram þá kröfu að tveir af ráðherrum samstarfslokks verði að segja af sér. Almenningur á betra skilið en þau upplausnarstjórnmál sem endurspeglast í orðum og gjörðum þessara tveggja flokka. Og það eru raunar ekki aðeins þessir flokkar sem þjóðin á ekki skilið. Leiðtogi Pírata, enn eins upplausn- arflokksins, úrskurðaði fyrir nokkrum mánuðum að ekki kæmi til álita að vinna með Framsóknarflokknum. Nú hefur sami foringi lýst því yfir að sama gildi um Sjálfstæð- isflokkinn. Auðvitað er það svo að á meðan slíkir flokkar og for- ystumenn hafa það vægi sem raun ber vitni í íslenskum stjórnmálum þá er hætt við að hér verði viðvarandi upplausn- arástand í stjórnmálunum. Þá eru líkur á að engar rík- isstjórnir haldi og að sífellt verði kosið til að þjóna hvik- lyndi veikburða flokka sem engan áhuga hafa á stjórn- festu en nærast á upplausn- inni. Nú stefnir í kosningar. Miklu skiptir að þá aukist vægi þeirra flokka sem treyst- andi er fyrir setu í ríkisstjórn en að hinum verði veitt verð- skuldað frí. Almenningur á betra skilið en þau stjórn- mál sem hann hefur þurft að horfa upp á} Ógöngur Tímamót urðu ísögu geimvís- indanna í gær þeg- ar Cassini- geimfarið lauk ferðalagi sínu og hvarf inn í lofthjúp Satúrn- usar, næststærstu reiki- stjörnu sólkerfisins. Tuttugu ár eru liðin frá því að leið- angur geimfarsins hófst og um sjö árum síðar settist það á sporbaug um Satúrnus. Frá því í júlí 2004 hefur Cassini-farið tekið ógrynni mynda og gagna af Satúrnusi og umhverfi reikistjörnunnar, og bætt gríðarlega miklu við þekkingu mannkynsins. Þökk sé Cassini-leiðangrinum vitum við til að mynda mun meira um hringina frægu, sem eru helsta einkenni Satúrnusar, auk þess sem geimfarið hefur opnað augu okkar fyrir þeim aðstæðum sem ríkja á tunglum plánetunnar. Geimfarið tók til dæmis ljósmyndir af stærsta tungli Satúrnusar, Títan, og sendi til jarðarinnar, en Títan er eina tungl sólkerfisins sem er með lofthjúp. Gögnin frá Cassini leiddu í ljós að „stöðuvötn“ finnast á Títan, og er tunglið eini staðurinn utan jarðar þar sem vitað er til að vökvi finnist á yfirborðinu. Meðal annars þess vegna hefur Títan vakið athygli sem staður, þar sem líf gæti mögulega þrifist. Nú hefur Cassini lokið hlut- verki sínu. Leiðangurinn þykir hafa heppnast með eindæmum vel og verður eflaust horft til hans í framtíðinni sem eins af þeim merkari sem menn hafa lagt í við könnun alheimsins. Cassini-geimfarið breytti skilningi okkar á Satúrnusi} Merku ferðalagi lokið U ppreist æru. Hvernig mál hafa þróast má í besta falli rekja til stórkostlegs dómgreindar- skorts. Að engum sem kvittaði upp á æruveitingarnar hafi dott- ið í hug að lögin væru úrelt; að ferlið væri mein- gallað. Að dómsmálaráðherra hafi fengið upp- lýsingar um gæðavottun föður forsætisráðherra fyrir iðrunarlausan barnaníð- ing og segja honum en engum öðrum frá. Að samflokksmenn beggja hafi ekki viljað kynna sér málin. Að nefndarformaður skuli ekki hafa upplýst að hann hafi varið umræddan níðing. Er nema von að menn velti því fyrir sér hvort um hafi verið að ræða kerfisbundna þöggun? Að því hafi e.t.v. verið hvíslað að út- völdum að það borgaði sig ekki að vita. Plaus- ible deniability heitir það á útlensku. Það má í besta falli segja að það hafi ekki verið fyrsta viðbragð að leggja öll spilin á borðið; opinbera gögn, ræða málin á opn- um fundum, draga það fram í dagsljósið sem orkað gæti tvímælis ef það hvíldi áfram í skugganum. Fyrsta við- bragð, þegar umræðan um uppreist æru fer af stað, virðist hafa verið að pakka í vörn, fela sig á bak við lög og reglur og bera við prinsippum. Lögin og reglurnar reyndust heldur betur gagnslaust skjól. Það mátti greinilega og átti að veita þær upplýs- ingar sem óskað var eftir. Dómsmálaráðherra og formað- ur allsherjar- og menntamálanefndar neyddust til að gefa eftir. Yfirlýsingar formanns stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar um ófrávíkjanlegan trúnað reyndust ekki eiga við rök að styðjast. Var það dómgreindarskortur eða leyndarhyggja sem réð för? Er nema von að menn spyrji? Ímyndaðu þér að eiga fimm ára barn, bauð einhver á samfélagsmiðlum. Ímyndaðu þér að það sé misnotað kynferðislega á hverjum degi í meira en áratug. Ímyndaðu þér að níðingurinn sé laus úr fangelsi innan fárra ára og fái upp- reist æru. Ímyndaðu þér að faðir forsætisráð- herra votti ágæti viðkomandi að óathuguðu máli og að ráðherra og kollegar hans greini ekki frá því á meðan almenningur öskrar á upplýsingar. Hvernig myndi þér líða? Á blaðamannafundi í gær sagðist forsætis- ráðherra hafa verið djúpt snortinn vegna þeirra sem stigið hefðu fram. En enn var vísað í lög og reglur; ráðherra sagðist ekki hafa mátt greina frá aðkomu föður síns. Það er eftiráskýring. Hann hefði vel getað fengið heimild hjá pabba til að segja frá. Það stendur hvergi að þeir sem veita dæmdum mönnum heilbrigðisvottorð séu skyldugir til að þegja um það. Það má lesa út úr viðbrögðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins að þeir eru ekki alveg með á nótunum, að þeir fatti ekki að fólk er búið að fá nóg. Það vill manneskjulega nálgun. Þess vegna er kjánalegt að ásaka Bjarta framtíð um kæruleysi vegna stjórnarslitanna. Björt framtíð axlaði ábyrgð með ákvörðun sinni. Í því felst umtalsverð áhætta fyrir flokk- inn; áhætta sem þeir sem vilja umfram allt halda völdum myndu aldrei taka. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Þagnarmúrinn rofinn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Ekkert land, af þeim 200sem könnuð voru, er lík-legt til að ná markmiðiSameinuðu þjóðanna (SÞ) um útrýmingu á nýgengi berklasýk- inga árið 2030, samkvæmt alþjóðlegri heilsufarsskýrslu sem birt var sl. miðvikudag á Allsherjarþingi SÞ í New York. Singapúr, Ísland og Svíþjóð voru efst hvað varðar sjálfbær þróun- armarkmið lýðheilsu, en Sómalía, Mið-Afríkulýðveldið og Afganistan lentu neðst. Bandaríkin voru í 24. sæti með mikið af sjálfsvígum, kyn- ferðislegu ofbeldi á börnum, áfeng- ismisnotkun og morðum á meðan Kína var í 74. sæti með mikla loft- mengun, umferðarslys, eitranir og reykingar. Indland var svo í 127. sæti með mikla loftmengun, slakt hreinlæti og bráða vannæringu barna. Innan við fimm prósent af lönd- unum eru líkleg til að ná markmiðum SÞ um að draga úr sjálfsvígum, um- ferðarslysum og offitu barna og að- eins sjö prósent eru líkleg til að út- rýma nýgengi HIV-smita fyrir 2030. Á heildina litið er aðeins líklegt að fimmtungur af 37 heilsuverndar- markmiðum sem sett voru fram í heildarmarkmiði SÞ verði uppfyllt. Sum markmiðanna óraunhæf „Nokkur markmiðanna voru óraunhæf í flestum landanna,“ segja höfundar skýrslunnar. Áætlanirnar „leggja áherslu á hraða framvindu mála til að bæta lýð- heilsu, draga úr áhættuþáttum og auka nauðsynlega heilsugæslu fyrir öll lönd,“ segir jafnframt í skýrslunni. Gert er ráð fyrir að rík lönd geti mætt um 38 prósent af lýð- heilsumarkmiðum SÞ, samanborið við þrjú prósent fyrir fátæk lönd, en þau voru ekki að takast á við sömu vandamálin en fátæk lönd komu illa út úr mæðra- og ungbarnadauða, malaríu og umhverfisáhættu sem eru nánast óþekkt í ríkum löndum. Ríkari lönd komu verr út úr lífs- stílstengdum heilsubresti, t.d. Bandaríkin sem komu illa út úr sjálfsvígum, áfengismisnotkun og morðum. Ef horft til framtíðar í skýrsl- unni sést að viðleitni til að útrýma malaríu og draga úr mæðra- og ung- barnadauða væru á meðal þeirra markmiða sem voru líklegust til að nást en meira en 60 prósent af lönd- unum áætluðu að mæta þeim. „Á grundvelli núverandi þróun- ar var áætlað að Kasakstan, Timor- Leste, Angóla, Nígería og Svasíland mundu ná mestum heildar- umbótum,“ sagði rannsóknarhóp- urinn í yfirlýsingu. Umbæturnar skýrðust af minnkun barnadauða og betra að- gengi að heilbrigðisþjónustu, getn- aðarvörnum og fæðingaraðstoð. Lönd sem dragast aftur úr mið- að við offitu barna og áfengis- misnotkun voru Srí Lanka, Vene- súela, Serbía og Úkraína. Í skýrslunni voru Kína og Kam- bódía nefnd sem meðal- og lág- tekjulönd sem hljóta „viðurkenningu fyrir að bæta líf borgaranna“. Sömu lönd ásamt Rúanda, Mið- baugs-Gíneu, Laos og Tyrklandi skráðu mestu umbætur í alhliða heilsugæslu milli áranna 2000 og 2016, sem skiluðu sér í hærra bólu- setningarhlutfalli, auk minni barna- dauða og færri malaríutilfella. Bandaríkin voru með Lesótó og Mið-Afríkulýðveldinu á meðal landa sem sýndu „lágmarksbata“ í alhliða heilsugæslu. Langt í að lýðheilsu- markmið SÞ náist AFP Markmið Bætt aðgengi að heilsugæslu eykur lýðheilsu. Í september 2015 setti allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna (SÞ) sjálfbær þróunarmarkmið fyrir aðildarríkin sem miðað er við að eigi að nást fyrir árið 2030. Í markmiðunum í heild eru 17 alhliða mark- mið, 169 markmið og 230 vísbendingar til við- miðunar fram til ársins 2030. Rannsókn sem birt var í Lancet komst að því að Ísland, Svíþjóð og Singapúr væru heilbrigðustu löndin í heiminum samkvæmt sjálfbærum þróunarmarkmiðum SÞ um lýðheilsu. Í rannsókninni voru 188 lönd metin með hliðsjón af þáttum eins og dánartíðni, mengun, hreinlæti, vatnsgæðum og sjúkdómum ásamt lýð- fræðilegum vísbendingum, svo sem fátækt og menntun. SJÁLFBÆR LÝÐHEILSUMARKMIÐ SÞ TIL 2030 Ísland meðal efstu á lista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.