Morgunblaðið - 16.09.2017, Síða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017
✝ Guðný Bjarna-dóttir fæddist í
Vestmannaeyjum
25. apríl 1931. Hún
lést á Hraunbúðum
í Vestmannaeyjum
27. ágúst 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Bjarni
Eyjólfsson frá
Skipagerði á
Stokkseyri, f.
2.nóvember 1904,
d. 30. janúar 1985, og Guðrún
Guðjónsdóttir frá Ekru á
Rangárvöllum, f. 10 ágúst
1898, d. 16 ágúst 1983. Systk-
ini Guðnýjar voru Elín Lofts-
dóttir, f. 1922, d. 2005, og
Bjarni Guðjón Bjarnason, f.
1926, d. 2015. Hinn 24. júní
1953 giftist Guðný eftirlifandi
eiginmanni sínum, Leifi Ár-
sælssyni frá Vestmannaeyjum,
f. 10. júlí 1931. Foreldrar hans
voru Ársæll Sveinsson, f. 31.
desember 1893, d. 14. apríl
1969, og Laufey Sigurð-
ardóttir, f. 2. september 1895,
d. 16. ágúst 1962.
Börn þeirra eru: 1) Guðrún
Birna Leifsdóttir f. 1951, maki
Bjarni Guðjón Samúelsson, f.
1950. Börn þeirra eru a)
Guðný Bjarnadóttir, f. 1971,
maki Kári Höskuldsson, f.
eru a) Grettir Jóhannesson, f.
1982. b) Leifur Jóhannesson, f.
1985, sambýliskona Gígja Ósk-
arsdóttir, f. 1991. Barn þeirra
er Eva Laufey, f. 2014. c) Guð-
rún Ósk Jóhannesdóttir, f.
1992.
Guðný ólst upp í Vest-
mannaeyjum og bjó þar alla
tíð, ef undan er skilið rúmt ár
sem hún bjó í Reykjavík vegna
Vestmannaeyjagossins. Hún
gekk í Barna- og gagnfræða-
skóla Vestmannaeyja, hluta úr
vetri fór hún í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur. Hún starfaði mik-
ið að félagsmálum, keppti m.a.
í handbolta fyrir Íþróttafélagið
Þór, var í Kvenfélaginu Líkn
og Kvenfélagi Landakirkju,
söng í kirkjukór Landakirkju í
mörg ár og var virk í Félagi
eldriborgara í Vestmanna-
eyjum. Starfaði í versluninni
Bjarma áður en hún fór að
búa. Starfaði hjá tengdafor-
eldrum sínum sem voru með
vertíðarfólk. Þegar börnin
komu var hún mest heimavinn-
andi, fór af og til í síld og salt-
fisk. Eftir að börnin fóru að
heiman fór hún að vinna á
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
1955 byggðu hjónin sér ein-
býlishús að Túngötu 18, Vest-
mannaeyjum en árið 1995
fluttu þau að Helgafellsbraut
23c, síðustu árin bjó hún að
Hraunbúðum.
Útför Guðnýjar fer fram frá
Landakirkju í Vestmanna-
eyjum í dag, 16. september
2017, og hefst klukkan 14.
1973. Börn þeirra
eru Höskuldur
Rafn, andvana
fæddur 2002, Leif-
ur Rafn, f. 2003,
Magnús Rafn, f.
2006, og Guðrún
Birna, f. 2009. b)
Samúel Sveinn
Bjarnason, f. 1975,
maki Elín Jóhanns-
dóttir f. 1979.
Börn þeirra eru
Bjarni Guðjón, f. 2002, Svan-
hvít Birna, f. 2006, og Krist-
ófer, f. 2008. c)Margrét
Bjarnadóttir, f. 1981, sambýlis-
maður Einar Bjarni Hall-
dórsson, f. 1979. Barn þeirra
er Esther Birna, f. 2016.
2) Leifur Ársæll Leifsson, f.
1955, d. 2013, maki Jóna
Björgvinsdóttir, f. 1957. Börn
þeirra eru a) Birgir Þór Leifs-
son, f. 1976, maki Fríða Björk
Sandholt, f. 1978. Börn þeirra
eru Bjarki Þór, f. 2006, Steinar
Örn, f. 2008, og Brynja Maren,
f. 2011. b) Ívar Örn Leifsson, f.
1983, sambýliskona Linda Rak-
el Jónsdóttir, f. 1988. Barn
þeirra er Ólöf Braga, f. 2015.
c) Rakel Ýr Leifsdóttir, f. 1994.
3) Elín Laufey Leifsdóttir, f.
1958, maki Jóhannes Óskar
Grettisson, f. 1958. Börn þeirra
Að missa tökin á tímanum
kemur upp í hugann þegar við
minnumst seinustu áranna hjá
þér elsku mamma mín og tengda-
mamma. Alzheimersjúkdómur-
inn tók þig frá okkur, en eftir lifa
árin á undan sem voru yndisleg
með hjartahlýjustu konu í heimi
sem vildi allt fyrir okkur gera.
Hún hugsaði svo vel um pabba,
okkur og börnin okkar, en börnin
eiga margar og góðar minningar
um ömmu sína; hún fór í alls kon-
ar leiki með þeim, sem þau
gleyma aldrei og geyma í hjarta
sínu. Á Hraunbúðum, dvalar-
heimili aldraðra í Vestmannaeyj-
um, dvaldi hún sín síðustu æviár
umvafin kærleika allra, sem við
erum ævinlega þakklát fyrir.
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson)
Elsku mamma og tengda-
mamma, hafðu þökk fyrir allt og
allt. Innilegar samúðarkveðjur til
þín, elsku pabbi.
Elín Laufey og Jóhannes.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Elsku amma, elsku elsku
amma.
Hvar skal byrja? Á þakklæti.
Þakklæti og hlýja fer um
hjörtu okkar þegar við systkinin
hugsum til þín. Einstök amma
þar sem góðmennskan skein
skýrt í gegn, því tærasta gull
kemst varla að því sem hjartað
þitt var úr. Allar stundirnar með
þér í leik, bæði á Túngötunni og
Helgó, eru jafn einstakar og þú.
Þú umvafðir okkur ást og kær-
leika.
Allt var leyfilegt í ömmuhúsi.
Við máttum borða hvað sem var,
hvenær sem var, og ef það var
ekki til var amma ekki lengi að
redda því, þrátt fyrir að það hafi
ekki verið merkilegur hlutur. Við
máttum leika hvar sem var í hús-
inu, við hvað sem var, enda gerð-
um við það með virðingu. Veiði-
leikirnir á Túngötunni,
útileguleikirnir hvar sem var,
snyrtileikirnir sem eflaust
skemmdu þó nokkrar lagning-
arnar, augnskuggana og varalit-
ina. En ef það færði okkur bros
var það þess virði hjá henni.
Amma átti alltaf nóg af frostp-
innum, ísblómum og harðfiski
sem við, oftar en ekki, gæddum
okkur saman á, kúrðum og horfð-
um á Tomma og Jenna. Sunnu-
dagskaffið og allar þær yndislegu
hefðir sem við áttum með þér, all-
an ársins hring, eru okkur dýr-
mætar.
Eins og sést eigum við ótelj-
andi margar og yndislegar minn-
ingar um þig en það er óhætt að
segja að stundirnar með þér við
píanóið að spila og syngja saman
eigi sérstakan sess í hjarta okkar.
Takk amma fyrir að sýna okk-
ur hvað það er að vera góð. Takk
amma fyrir að sýna okkur hvað
umburðarlyndi er og hvernig
skal sýna það. Takk amma fyrir
allar stundirnar okkar saman,
sem einkennast af hlátri, gleði og
öllu því góða. Aldrei labbaði mað-
ur út frá þér og afa nema saddur
og sæll, bæði af mat og ást þinni
og umhyggju.
Takk fyrir að vera amma okk-
ar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Elsku afi, innilegar samúða-
kveðjur til þín. Þín barnabörn,
Grettir, Leifur og
Guðrún Ósk.
Elsku hjartans amma okkar,
nú er kallið komið. Allar þær
dásamlegu minningar sem við
eigum um þig, bestu ömmuna,
ylja okkur um hjartað nú þegar
við þurfum að kveðja þig.
Þú varst alltaf til í að leika við
okkur, að okkar mati bakaðir þú
bestu kökur bæjarins og eldaðir
besta matinn. Fyrstu tóna tón-
listarinnar lærðum við hjá þér,
eigum við öll þá minningu þegar
þú settist við píanóið með okkur
og spilaðir og söngst, það var
mikið glamrað á píanóið í gegn-
um árin, fyrst börnin þín, barna-
börn og loks langömmubörn.
Þú varst svo hlý, ljúf og góð við
alla, alltaf svo vel tilhöfð og glæsi-
leg kona.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju
sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn
stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Minning um góða konu, ömmu
okkar, lifir í hjörtum okkar allra,
við munum sakna þín.
Guðný, Samúel Sveinn,
Margrét og fjölskyldur.
Hún var síðust þriggja systk-
ina að kveðja þetta jarðlíf hún
Guðný frænka.
Líf hennar einkenndist af kát-
ínu og góðmennsku enda var
hver sem hana heimsótti ríkari af
gleði að heimsókn lokinni.
Hún giftist æsku ástinni sinni
honum Leifi Ársælssyni ung að
árum og má með sanni segja að
þar leiddust saman tvær eintak-
lega góðar manneskjur, sannir
mannvinir.
Guðný var yngst þriggja barna
Guðrúnar Guðjónsdóttur og
Bjarna Eyjólfssonar en hin voru
Elín og Bjarni Guðjón. Það sem
einkenndi þessi systkini meðal
annars var góðmennska og ein-
sök þörf til að taka vel á móti
gestum og veita vel og hitt sem
vert er að geta er hin einstaklega
væntumþykja þeirra um hvert
annað.
Guðný var söngelsk, spilaði á
píanó, söng í kirkjukór Landa-
kirkju. Guðný var ekki bara
músíkölsk, hún var líka einstak-
ur listamaður, hún málaði t.d. á
striga og keramik og framköll-
uðust þar hin fallegustu mál-
verk.
Stundum er sorgin létt og
stundum þung og svo er þegar
Guðný Bjarnadóttir kveður okk-
ur, þá lítum við með gleði og líka
söknuði til baka. Hún var ynd-
isleg manneskja sem vildi öllum
vel, höfðingi heim að sækja sem
naut þess að bera veitingar á
borð.
Guðný og Leifur áttu gott líf
saman en auðvitað var það ekki
alltaf auðvelt eins og gengur og
gerist. Þau misstu einkason sinn
Leif í bílslysi fyrir nokkrum ár-
um. Eftir það má segja að al-
gleymið hafi hafið innreið sína
með Alzheimer-sjúkdómnum
sem að endingu lagði okkar kæru
frænku að velli 27. ágúst síðast-
liðinn.
Um leið og við þökkum Guð-
nýju einstaklega góða samfylgd
vottum við eftirlifandi eigin-
manni Leifi Ársælssyni, börnum
og barnabörnum innilega samúð
okkar, megi góður guð styrkja
ykkur í sorginni.
Engilbert Gíslason og
Bryndís Hrólfsdóttir.
Elskuleg frænka, Guðný
Bjarnadóttir, er nú farin á betri
stað. Ég minnist þess hversu
gaman var að koma í heimsókn til
þín þegar þú bjóst á Túngötunni
og fá að fara að leika uppi á lofti.
Það var alltaf ævintýralegt.
Elsku frænka, þú varst alltaf
yndisleg, hjartahlý og góð. Ég er
mjög þakklát fyrir að hafa fengið
að hafa þig í lífi mínu. Ég veit að
það verður vel tekið á móti þér á
nýjum stað og þar mun þér líða
vel.
Blessuð sé minning þín.
Kristín Engilbertsdóttir.
Á örfáum árum hafa þær týnt
tölunni vinkonur mínar og ná-
grannakonur í kringum Túngöt-
una, samstarfskonur, söngfélag-
ar og saumaklúbbssystur.
Stundum finnst mér að ég sé orð-
in ein eftir.
Sú síðasta er Guðný Bjarna-
dóttir sem við kveðjum í dag.
Hún var glæsileg og falleg kona
yst sem innst og vildi öllum gott
gera, en varð fyrir því óláni að
veikjast af þeim sjúkdómi, sem
allir hræðast, Alzheimers.
Guðný var mjög listræn í sér,
málaði og bjó til myndir úr gleri
fyrir utan allan saumaskap og
kökugerð. Á sínum bestu árum
vann hún mikið fyrir kvenfélagið
Líkn, skreytti tertur einstaklega
smekklega og súkkulaðið sem
hún bjó til þótti afbragð. Hún
vann líka heilmikið fyrir Kven-
félag Landakirkju. Við sungum
saman í kór Landakirkju og fór-
um ásamt mökum í margar
skemmti- og söngferðir innan-
lands og utan. Tók hún þá oft í pí-
anó ef það var á staðnum og allir
tóku undir. Þetta voru dásamleg-
ir tímar, sem við eldra fólkið (sem
þá vorum á besta aldri) gleymum
ekki og rifjuðum oft upp á góðum
stundum.
Síðast var hún svo farin að
syngja með kór eldri borgara. Þó
að hún gæti lítið tjáð sig þá gat
hún samt sungið ljóð og lög ef
einhverjir kórar eða söngfólk
kom í heimsókn á Hraunbúðir.
Hún var mikil fjölskyldu-
manneskja og ófá voru boðin þar
sem fjölskyldan kom saman.
Hún giftist jafnaldra sínum og
æskuvini, Leifi Ársælssyni út-
gerðarmanni frá Fögrubrekku,
og eignuðust þau þrjú börn;
Guðrúnu Birnu, f. l951, Leif Ár-
sæl, f. l955, og Elínu Laufeyju, f.
l958, en urðu fyrir þeirri sáru
sorg að missa Leif Ársæl í bíl-
slysi árið 2013. Öll eru börnin
mesta myndarfólk og eiga falleg
börn og barnabörn.
Þessi síðustu ár hafa verið erf-
iður tími hjá Leifi og börnunum,
en hann hefur dvalið á sjúkrahúsi
frá því að Guðný veiktist.
Við Guðjón sendum þeim öll-
um innilegar samúðarkveðjur og
þökkum áralanga vináttu.
Elsku Guðný, vertu Guði falin.
Hólmfríður Ólafsdóttir.
Máltækið að hafa hjarta úr
gulli á vel við hana Guðnýju
Bjarnadóttur. Guðný var einstök
kona, kona sem eru forréttindi að
hafa kynnst þótt árin hafi einung-
is verið rúmlega sjö.
Á hverjum sunnudegi buðu
Guðný og Leifur, eiginmaður
hennar, til veislu á heimili sínu á
Helgafellsbrautinni, þar svignaði
borðstofuborðið undan kræsing-
um frá húsmóðurinni. Ég var svo
heppin að fá að upplifa þessar
stundir hjá þeim með tengdafjöl-
skyldu minni áður en þau hjónin
fluttust á Hraunbúðir.
Rækjubrauðtertan hennar
Guðnýjar er eitthvað sem allir
brauðtertuunnendur hefðu þurft
að fá að smakka og rækjubrauð-
tertu mun ég alltaf tengja við
hana. Þegar heimsókninni lauk
fylgdi Guðný gestum sínum út og
stóð þar og veifaði og veifaði
þangað til gestirnir voru farnir úr
augsýn.
Guðný var einstaklega barn-
góð kona og fékk litla dóttir okk-
ar Leifs, barnabarns hennar, að
kynnast því. Eva Laufey og
langamma náðu vel saman þótt
veikindi Guðnýjar tækju sinn toll.
Ekki er langt síðan þær sátu
saman í bílaleik í sólskálanum á
Hraunbúðum og léku sér saman
og gleðin skein úr andlitum
þeirra beggja.
Elsku fjölskylda, mínar inni-
legustu samúðarkveðjur til ykk-
ar.
Gígja Óskarsdóttir.
Guðný
Bjarnadóttir
Elskuleg dóttir mín, systir okkar, mágkona
og frænka,
LILJA SIGURRÓS EINARSDÓTTIR,
Stigahlíð 54, Reykjavík,
lést laugardaginn 9. september á Land-
spítalanum í Fossvogi.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 20.
september klukkan 13.
Aðalheiður Magnúsdóttir
Magnús Einarsson Katrín Bárðardóttir
Sesselja Einarsdóttir Óli Ólafsson
Guðmundur Einarsson Elísabet Þorvaldsdóttir
Gunnlaugur Einarsson Esther Gísladóttir
Guðrún Einarsdóttir Þorsteinn Garðarsson
Kristín Einarsdóttir Finnur Hreinsson
og frændsystkini
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
stjúpfaðir og afi,
ERLENDUR GUÐMUNDSSON,
fv. flugstjóri hjá Icelandair,
Úthlíð 8,
105 Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. september eftir skammvinn
veikindi.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22.
september klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
líknardeildar og heimahlynningar Landspítalans.
Ingunn Erna Stefánsdóttir
Kristín Vala Erlendsdóttir Karl Thoroddsen
Gunnlaugur P. Erlendsson Carsten Duvander
Guðmundur Kr. Erlendsson Þóra H. Þorgeirsdóttir
Stefán Árni Þorgeirsson Tristan E. Gribbin
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir Björn Gunnarsson
Auður Rán Þorgeirsdóttir Hermann Karlsson
barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURBJÖRG HLÖÐVERSDÓTTIR
frá Djúpavogi,
Þingvallastræti 34, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 18. september klukkan 13.30.
Jón Hlöðver Áskelsson Sæbjörg Jónsdóttir
Freyr Áskelsson Friðbjörg K. Hallgrímsdóttir
Rósa Áskelsdóttir Hogne Steinbakk
Aðalbjörg Áskelsdóttir Gísli Már Ólafsson
Hörður Áskelsson Inga Rós Ingólfsdóttir
Gunnhildur Áskelsdóttir Knut Jarbo
Lúðvík Áskelsson Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir
tuttugu barnabörn og
þrjátíu og átta barnabarnabörn
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA JÓNA JENSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis að
Lyngbergi 39b, Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu laugardaginn 9. september.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 19.
september klukkan 11.
Hrafnhildur Óskarsdóttir Jens Þórisson
Hafdís Óskarsdóttir Khalil Semlali
Helena Óskarsdóttir Robert Scobie
Helga Óskarsdóttir Christof Wehmeier
Valdimar Óskarsson Lovísa Traustadóttir
barnabörn og barnabarnabörn