Morgunblaðið - 16.09.2017, Side 47

Morgunblaðið - 16.09.2017, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2017 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Skjóttu, þú hefur tvær mínútur!“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, popp- kóngur Íslands, þegar blaðamaður hringir í hann á föstudagsmorgni og spyr hvort hann hafi tíma fyrir ör- stutt viðtal. Páll Óskar er vægast sagt önnum kafinn því hann heldur tvenna stórtónleika í dag í Laugar- dalshöll og verður öllu tjaldað til þegar kemur að búningum, sviðs- mynd, ljósum og dönsurum. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14.45 með upphitun Áttunnar og Páll Óskar stígur á svið kl. 15. Á seinni tónleik- unum hefst upphitun kl. 20 og tón- leikar Páls Óskars kl. 21. „Stóóórkostlega,“ svarar Páll Óskar þegar hann er spurður að því hvernig æfingar hafi gengið. „Það er allt klárt, allt hefur gengið framar björtustu vonum og það eina sem ég þarf að hugsa um núna er að röddin sé í lagi og að ég sé sætur og svo þarf ég bara að fara upp á svið og elska að troða upp.“ –Hvað eru margir að vinna fyrir þig á tónleikunum? „Á tónleikadegi eru um 200 manns í vinnu og núna hafa um 100 manns verið að leggja lokahönd á sviðið í alla nótt (fyrrinótt), ljósabúnaðinn, tæknibúnaðinn og allt þetta. Þetta er heljarinnar verkefni og heilmikil áskorun fyrir alla sem koma að þessu.“ Hver þáttur hefur sitt þema Páll Óskar mun skarta mörgum glæsilegum búningum á tónleik- unum og hófst saumavinnan í mars sl. en tónleikarnir eru í sex þáttum, hver þáttur hefur sitt þema, sína hönnun og liti og þ.a.l. sína búninga, að hans sögn. „Ég skipti tónleik- unum upp í sex þætti en ég dreifi þessum lögum, frá 1991 til dagsins í dag, mjög jafnt yfir tónleikana. Þannig að lögin eru ekki flutt í sér- stakri tímaröð,“ útskýrir hann. –Ég hef fylgst með Facebook- færslunum þínum frá æfingum og sú síðasta var af LED-ljósadansi, þar varstu að dansa og syngja innan um unga menn sem héldu á LED-ljósa- pípum. Hvernig gengur þér að ein- beita þér að söngnum þegar svona mikið er að gerast á sviðinu? „Mér tekst að syngja því ég hef verið syngjandi á fullu á öllum dans- æfingunum, það var eina leiðin til að gera þetta. Við fundum það strax að það borgaði sig ekki að æfa dansana í þögn vegna þess að um leið og ég fór að syngja gleymdi ég dansspor- unum. Þannig að eina leiðin var að syngja sig í gegnum dansæfingarnar og þá fer þetta í skrokkinn,“ svarar Páll Óskar. „Þessir tónleikar eru með risa- stórt hjarta og það skiptir mestu máli. Þetta er ofsalega fallegur boð- skapur og falleg saga sem er sögð, flott tónlist sem er löngu búin að öðl- ast eigið líf og fallegir textar. Þess vegna ítreka ég bara að það eina sem ég þarf að gera núna er að gera mig sætan, fara upp á svið og elska að vera þar,“ segir Páll Óskar að lok- um um tónleikana. 4.500 miðar eru í boði á hvora tónleika og fer miðasala fram á tix.is og í Laugardalshöll. Heljarinnar verkefni  „Allt hefur gengið framar björtustu vonum,“ segir Páll Óskar um æfingar fyrir stórtónleika hans í Laugardalshöll Morgunblaðið/Árni Sæberg Fagmaður Páll Óskar á generalprufu sem haldin var fyrir tónleikana í Laugardalshöll í gær. Fjöldi viðburða verður á vegum listahátíðarinnar Cycle í Gerð- arsafni um helgina. Í dag kl. 13 verður listamannaspjall með bandaríska listamanninum Andrew Ranville þar sem hann ræðir inn- setningu sína „Austur er vestur og vestur er austur“, sem saman- stendur af fánum smáríkja sem hafa reynt og mistekist að öðlast sjálfstæði. Gjörningaklúbburinn, Ensemble Adapter og tónskáldið Juliana Hodkinson vinna á Cycle að nýju þverfaglegu sviðsverki sem sam- anstendur af tónlist, sviðsmynd og áhorfendum – hugsanlega óperu. Unnið verður að gerð verksins fyrir opnum dyrum í Gerðarsafni í dag og á morgun, sunnudag. Gestum er velkomið að líta inn á framvindu, en verkinu lýkur með gjörningi á morgun kl. 15. Vinnustofan Á síðasta snúningi verður haldin í dag milli kl. 14 og 16. Sigurjón Baldur Hafsteinsson stýrir umræðum og þátttakendur eru Ásmundur Ásmundsson, Berg- sveinn Þórsson, Erin Honeycutt, Hannes Lárusson, Hildur Jørgen- sen og Tinna Grétarsdóttir. Alexander Koch sýningarstjóri kynnir framtakið Bandamenn listanna í fyrirlestri á morgun kl. 13. Bandamenn listanna er yfirlýs- ing og aðferðafræði sem miðar að lýðræðisvæðingu listanna. Mark- miðið er að tengja listafólk með beinum hætti við hvers kyns þarfir eða úrlausnarefni samfélagsins. Fjöldi viðburða á Cycle Fánar Verk Ranville, Austur er vestur og vestur er austur. Alda Villiljós opnar í dag kl. 16 sýn- inguna Kynusla í Galleríi 78 hjá Sam- tökunum 78, á Suðurgötu 3 í Reykja- vík. „Ef kyn er einfaldlega gjörningur, af hverju erum við alltaf að takmarka valið á leikmununum?“ er ein af mörg- um spurningum sem Alda Villiljós veltir upp í sýningunni, að því er fram kemur í tilkynningu en á sýningunni er sjónum beint að einstaklingum undir hinsegin regnhlífinni sem brjóta þær ósýnilegu reglur samfélagsins sem varða kyn og kyntjáningu. Alda Villiljós hefur vakið nokkra at- hygli fyrir hinsegin mannréttinda- baráttu síðustu ár og þá sérstaklega þegar kemur að málefnum trans- og kynsegin fólks. „Samhliða baráttumál- unum hefur hán unnið sem ljósmynd- ari og hefur meðal annars unnið mikið með hinsegin og trans upplifun í verk- um sínum,“ segir í tilkynningu. Við fyrstu sýn gæti áhorfandinn fundið lítið samræmi í verkum Öldu, enda séu myndefnin af fjölbreyttum toga en þegar kafað sé dýpra megi sjá bæði samspil og togstreitu milli sjálfs- ins og hins (e. the Other). „Þannig fá einstaklingar úr minnihlutahópum að njóta sín í klassískum portrettum; ójarðneskar og töfrakenndar tískufyr- irsætur lifa í sínum eigin heimi; draumkenndar náttúrumyndir og borgarlandslög flæða hvert inn í annað og gera skilin milli minninga og heim- ilda óskýr; og inn á milli koma alger- lega pólitísk verk sem ögra viðmiðum og reglum samfélagsins,“ segir um verk Öldu. „Sjónrænt sæki ég mikinn inn- blástur í þjóðsögur, ævintýri, goðsagn- ir og vísindaskáldskap en efnislega sæki ég innblásturinn aðallega í bar- áttu manneskjunnar til að finna sér stað í heiminum,“ segir Alda um verk sín. Alda lauk BA-prófi í listljósmyndun frá Kingston University árið 2011 og myndir háns hafa birst í ýmsum miðl- um auk þess sem hán hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýn- ingum bæði á Íslandi og Englandi. Ljósmynd/Alda Villiljós Kynusli Alda Villiljós hefur unnið mikið með hinsegin og trans upp- lifun í listaverkum sínum. Kynusli í Galleríi 78 SÝND KL. 8 SÝND KL. 8, 10.20 SÝND KL. 4, 6, 8, 10 SÝND KL. 2, 4, 6 SÝND KL. 2SÝND KL. 10.30SÝND KL. 2, 4, 6 Miðasala og nánari upplýsingar 5% Tíska & förðun Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 6. október Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna haust / vetur 2017 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 2. október NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.