Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Í ár bjóðum við upp á skemmtilega nýbreytni og höldum í helgarferð til Frankfurt þegar hinn svarti föstudagur, 24. nóvember markar upphaf jólaverslunar. Farið verður í hefðbundið bæjarrölt og gefst tækifæri til að kíkja á listasöfn eða í siglingu á ánni Main. Í þessari ferð er tilvalið að afgreiða allar jólagjafirnar á einu bretti! Verð: 98.800 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið! sp ör eh f. 23. - 26. nóvember Svartur föstudagur í Frankfurt Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Thomas Fredrik Møller Olsen var í gær dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morð og stórfellt fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjaness. Fram kemur í dóminum að hann hafi freistað þess með framburði sínum að varpa sök á skipsfélaga sinn. Er það meðal þess sem dóm- urinn virti Thomasi til refsiþynging- ar, en dómurinn taldi hann ekki eiga sér neinar málsbætur. Veittist að Birnu í bílnum Í forsendum dómsins segir að sannað þyki að Birna Brjánsdóttir hafi verið í bílaleigubifreið sem Thomas hafði á leigu og að veist hafi verið að henni með ofbeldi, hún sleg- in ítrekað í andlit og höfuð auk þess sem hún hafi verið tekin kverkataki og hert hafi verið að „með ofsa- fengnum hætti“. Henni hafi síðan verið komið fyrir í vatni, sjó eða ferskvatni, rænulausri eða í það minnsta ósjálfbjarga, þar sem hún hafi drukknað með skjótum hætti. Byggist niðurstaða dómsins m.a. á DNA-rannsóknum á blóði sem í bílnum fannst, áverkum á líki brota- þola, staðsetningarupplýsingum úr farsímum og upptökum úr eftirlits- myndavélum. Breyttri frásögn hafnað Í skýrslutöku fyrir dómi breytti Thomas framburði sínum, líkt og áð- ur hefur komið fram. Í framburði hans sagði að Nikolaj Wilhelm Her- luf Olsen, skipsfélagi hans, hefði keyrt á brott með Birnu þegar bíla- leigubifreiðin hefði verið við hús Golfklúbbs Kópavogs og Garða- bæjar og komið aftur einsamall eftir nokkra stund. Í dóminum segir að frásögn ákærða um atvik málsins fyrir dómi verði vart skilin á annan hátt en þann að hann teldi að Nikolaj hefði orðið Birnu að bana. „Ekkert haldbært er fram komið í málinu sem styður frá- sögn ákærða af því að E [Nikolaj], sem upplýst er að aldrei hefur öðlast ökuréttindi, hafi ekið á brott með þá konu sem þeir báðir könnuðust við fyrir dómi að komið hefði inn í bíl- inn,“ segir í dóminum. Á myndskeið- um úr eftirlitsmyndavélum við Hafn- arfjarðarhöfn sást Thomas þrífa bifreiðina að innan í nokkurn tíma, rétt fyrir hádegi 14. janúar. Fyrir dómi gaf hann þær skýringar að hann hefði verið að þrífa ælu úr aft- ursæti hennar. Í dóminum segir að ekkert haldbært hefði komið fram sem styddi þann framburð. Hins veg- ar væri sannað að blóð hefði fundist víða í bílnum. Norsk rannsókn til grundvallar Við aðalmeðferð málsins var deilt um gildi rannsóknar á fingraförum sem fundust á ökuskírteini Birnu, en það fannst um borð í togaranum Pol- ar Nanoq, hvar Thomas starfaði. Dómurinn lagði til grundvallar niðurstöðu fingrafaradeildar KRI- POS í Noregi, en fingrafarasérfræð- ingar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu höfðu ekki talið skilyrði til að nota fingrafaraparta á skírteininu til samanburðar. Einnig rakti dómurinn að blóðkám hefði ver- ið á úlpu Thomasar sem fannst í skip- inu, áverkar á bringu hans hefðu lík- legast verið af völdum átaka við annan aðila; ennfremur vísaði dóm- urinn til andlegs ástands Thomasar í kjölfar atburðarásarinnar og þess að honum hefðu verið gefin róandi lyf um borð í skipinu eftir að það hélt af stað til Grænlands og að rannsókn á lífsýnum á skóm Birnu sem fundust við Hafnarfjarðarhöfn benti eindreg- ið til þess að þau væru úr brotaþola og ákærða. Myndbönd sýndu að Thomas hefði ekið bílnum mjög ná- lægt þeim stað þar sem skórnir fund- ust. Thomasi var gert að greiða for- eldrum Birnu 3,5 milljónir króna í miskabætur, hvoru um sig. Einnig skal hann greiða föður hennar út- lagðan kostnað vegna útfarar Birnu auk málskostnaðar þeirra beggja, 750 þúsund krónur, hvoru um sig. Thomas greiði einnig rúmar 28 milljónir króna í málskostnað, þ.m.t. þóknun verjanda síns, um 21 milljón króna og útlagðan kostnað verjand- ans, um 2 milljónir króna. Dæmdur í fangelsi í nítján ár  Thomas Olsen sakfelldur fyrir morð og stórfellt fíkniefnalagabrot  Reyndi að koma sök á Nikolaj  Dómurinn hafnaði breyttum framburði Thomasar  Foreldrar Birnu fá sjö milljónir króna í bætur Morgunblaðið/Eggert Polar Nanoq 18. janúar voru þrír skipverjar leiddir af lögreglu úr togaranum Polar Nanoq, en síðar var tveimur þeirra sleppt. Sá þriðji, Thomas Olsen, hlaut í gær einn lengsta fangelsisdóm sem fallið hefur á Íslandi. Í þeim kafla dómsins þar sem dómurinn kemst að niðurstöðu um refsingu yfir Thomasi segir að með framburði sínum fyrir dómi hafi hann freistað þess að koma sök á skipsfélaga sinn, en hann breytti framburði sínum fyrir dómi í þá veru. Atlaga Thomasar er sögð hafa verið afar hrottafengin og langdregin. „Þá liggur einnig fyrir [...] að ákærði aðhafðist margt til að leyna broti sínu. Þá freistaði hann þess með fram- burði sínum fyrir dómi að varpa sök á skipsfélaga sinn,“ segir í dóminum. Vísaði Hæstiréttur til 70. gr. almennra hegningarlaga um ákvörðun refsingar, þ.e. 1. tl. sem vísar til þess hversu mik- ilvægt það sé, sem brotið hafi beinst að, 2. tl., sem vísar til þess hversu yfirgripsmiklu tjóni brotið hafi valdið, 3. tl. um það hversu mikil hætta hafi verið búin af verkinu, einkum þegar til þess væri litið hvenær, hvar og hvernig það var framkvæmt, 6. tl. um það hversu styrkur og einbeittur vilji brotamanns hafi verið og 8. tl. um það hvernig framferði hans hefði verið eftir að hann hefði unnið verkið. Vísaði Hæstiréttur einnig til dómafordæma auk þess sem hliðsjón var höfð af því að Thomas væri einnig sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Vildi koma sök á Nikolaj TIL REFSIÞYNGINGAR Gæsluvarðhald yfir karlmanni á fer- tugsaldri, sem grunaður er um að hafa orðið Sanitu Braune að bana á Hagamel 21. september, var fram- lengt um fjórar vikur í dag. Varð- haldið gildir til 27. október, en Hér- aðsdómur Reykjavíkur féllst á þessa kröfu lögreglunnar eftir hádegi í gær. Að þessu sinni fór lögregla fram á varðhald á grundvelli almannahags- muna, en ekki rannsóknarhagsmuna líkt og í upphafi. Verður maðurinn því ekki í einangrun. Hefur reynst samvinnufús Maðurinn var yfirheyrður í fyrra- dag og gekk yfirheyrslan vel sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hefur hinn grunaði verið sam- vinnufús, en ekkert nýtt kom þó fram í umræddri yfirheyrslu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvenær hann verður næst yfirheyrð- ur og ólíklegt er að það verði um helgina. Atburðarás málsins liggur fyrir að mestu en lögregla hefur ekki upp- lýst hvort maðurinn hafi játað sök. Vopni eða áhaldi var beitt við árás- ina, en ekki liggur fyrir hvert áhald- ið var. Varðhald framlengt um mánuð  Óljóst um morð- vopn eða áhald Ákveðið hefur verið að Kaupfélag Skagfirðinga og Sláturhús KVH á Hvammstanga, sem er í helmings- eigu KS, greiði 13% viðbótarálag til sauðfjárbænda á það verð sem gefið var út í upphafi sláturtíðar nú í haust. Viðbótarálagið verður greitt á hvert kíló dilkakjöts, sem lagt er inn hjá afurðastöðvum KS á Sauðár- króki og SKVH á Hvammstanga. Þetta kemur fram í bréfum félag- anna til sauðfjárbænda. Greitt verður fyrir innlegg í sept- ember og október samkvæmt áður útgefinni verðskrá, en 13% viðbótar- verð verður greitt til sauðfjárbænda 20. nóvember. Í bréfinu frá KS segir að þetta sé meðal annars gert á grundvelli heldur betri rekstrar- horfa en lagt var upp með í sumar. Þar megi nefna að gengi erlendra gjaldmiðla, sér í lagi evru, virðist ætla að verða heldur hagstæðara en á síðustu verðtíð. Aðstoð ríkisvaldsins óljós Í bréfinu sem Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS, ritar undir segir að aðstoð ríkis- valdsins við sauðfjárbændur sé óljós og að óvissa ríki í stjórnmálum. Því sé vandi sauðfjárbænda mikill, en KS vonist til þess að erfiðleikarnir verði tímabundnir. Á meðan ástand- ið hins vegar vari sé nauðsynlegt að draga úr framleiðslu og koma upp betra kerfi til að stjórna framleiðslu- magni í takt við horfur á mörkuðum hverju sinni. Í niðurlagi bréfsins segir að mik- ilvægt sé að hið opinbera styðji áframhaldandi átaksverkefni í út- flutningi dilkakjöts. Það skili mest- um árangri við þessar aðstæður. athi@mbl.is Fá 13% meira fyrir kjötið  Greiða sauðfjárbændum viðbótarálag Morgunblaðið/Árni Torfason Lömb KS greiðir bændum hærra verð en búið var að gefa út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.