Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Baldur Arnarson Arnar Þór Ingólfsson Vinstrihreyfingin – grænt framboð mælist áfram stærst í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Ís- lands sem unnin var fyrir Morgun- blaðið 25. til 28. september. Sjálfstæð- isflokkurinn er á svipuðum slóðum og í síðustu könnun Félagsvísinda- stofnunar en Viðreisn fengi ekki mann kjörinn á þing. Um er að ræða sameinaðar niður- stöður úr fjórum kosningaspurn- ingum: Ef gengið yrði til kosninga í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? En hvaða flokk eða lista finnst þér líklegast að þú munir kjósa? En hvort heldurðu að sé líklegra, að þú kjósir Sjálfstæðisflokkinn eða ein- hvern annan flokk eða lista? Hvaða flokk eða lista kaust þú utankjör- fundar í Alþingiskosningunum sem haldnar eru á þessu ári? Samkvæmt könnuninni mælist VG með 28,8% fylgi og skilar það flokkn- um áfram 22 þingmönnum. Flokk- urinn er með 10 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn mælist annar stærsti flokkurinn með 24,3% fylgi og 18 menn á þing, borið saman við 21 þingmann nú. Píratar mælast þriðji stærsti flokk- urinn með 11,6% fylgi sem skilar 8 mönnum á þing. Flokkurinn tapar tveimur þingsætum samkvæmt þessu. Samfylkingin mælist fjórði stærsti flokkurinn með 7,5% fylgi og skilar það 5 þingmönnum. Flokkurinn er nú með þrjá þingmenn. Tapa fjórum þingmönnum Fimmti stærsti flokkurinn, sam- kvæmt könnuninni, er Framsóknar- flokkur með 7% fylgi. Það skilar flokknum 5 þingsætum, borið saman við 8 þingmenn í síðustu kosningum. Flokkur fólksins mælist sjötti stærsti flokkurinn með 6,5% fylgi. Það myndi skila flokknum 5 þingsæt- um. Flokkurinn fékk 3,5% greiddra atkvæða í síðustu kosningum og náði því ekki inn á þing. Bendir könnunin því til að þrír flokkar muni hafa jafnan þingstyrk. Viðreisn kemur næst með 4,8% fylgi sem dugar ekki til að koma manni inn á þing. Viðreisn er nú með 7 þingmenn. Flokkar þurfa minnst 5% fylgi yfir landið til að eiga mögu- leika á þingsæti á Alþingi. Níundi stærsti flokkurinn er fram- boð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar, Miðflokkurinn, með 4,6% fylgi. Björt framtíð mælist svo níundi stærsti flokkurinn með 4,3% fylgi. Flokkurinn fékk 7,2% í síðustu kosn- ingum og fjóra þingmenn. Saman með 40 þingmenn Könnunin bendir til að Viðreisn og þessir tveir flokkar nái ekki inn manni á þing, þ.e. ef þeir ná ekki inn kjördæmakjörnum þingmönnum. Hvað varðar möguleika til stjórnarmyndunar er staðan óbreytt frá síðustu könnun. Samstarf VG og Sjálfstæðisflokksins er eini möguleik- inn á tveggja flokka stjórn. Samtals skilar fylgið flokkunum 40 þingsæt- um. Til samanburðar hafði ríkisstjórn Samfylkingar og VG 34 þingsæti 2009, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 38 þingmenn 2013 og fráfarandi ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks, Viðreisnar og Bjartrar fram- tíðar 32 þingmenn, eða minnsta mögulega meirihluta. Þegar litið er á bakgrunn kjósenda bendir könnunin til að 41% kvenna styðji VG en 18% karla. Um 28% karla styðja Sjálfstæðisflokkinn en 21% kvenna. Þá styðja um 13% karla Pírata en 10% kvenna. 3% kvenna styðja Framsókn Athygli vekur að 3% kvenna styðja Framsóknarflokkinn en 10% karla. Um 9% karla styðja Samfylkinguna og 6% kvenna. Þá styðja um 8% karla Flokk fólksins en 5% kvenna. Alls styðja 15% karla annan flokk eða framboð og 13% kvenna. Þegar litið er til menntunar bendir könnunin til að 32% háskólamennt- aðra kjósenda styðji VG. Hjá þeim sem hafa framhaldsskólamenntun er hlutfallið hæst hjá Sjálfstæðis- flokknum eða 30%. Þá styðja flestir þeirra sem hafa grunnskólamenntun VG, eða 28% kjósenda. Þátttakendur voru spurðir fleiri spurninga. Meðal annars voru þeir spurðir hversu líklegt eða ólíklegt væri að þeir kysu framboð Sigmund- ar Davíðs. Sögðu 79% það vera mjög ólíklegt, 9% frekar ólíklegt, 6% hvorki líklegt né ólíklegt, 3% frekar líklegt og 4% mjög líklegt. Þeir síðasttöldu eru 4% kjósenda á höfuðborgar- svæðinu og 5% kjósenda á lands- byggðinni. Tvö þúsund manns í úrtaki Könnunin var síma- og netkönnun, gerð dagana 25. til 28. september. Tvö þúsund manns voru í úrtaki og skipt- ust jafnt milli síma og nets. Fjöldi svarenda var 952 og af þeim svöruðu 413 í síma en 539 á netinu. Samsvarar þetta 48% þátttöku. Um 53% þátttak- enda voru karlar en 47% konur. Búseta þátttakenda skiptist þannig að 63% búa á höfuðborgarsvæðinu en 37% á landsbyggðinni. Vikmörk í könnuninni eru allt að 3,1%. Um 84% sögðu mjög líklegt að þeir myndu kjósa og 9% frekar líklegt. Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna Könnunin var gerð dagana 25. til 28. september 2017. Eftirfarandi flokkar eða listar voru að auki nefndir á nafn í svörum þátttakenda: Alþýðufylkingin, Dögun, Íslenska þjóðfylkingin og „annar flokkur eða listi“, en allir með hverfandi fylgi. Úrtakið var 2.000 manns. Um var að ræða bæði síma- og netkönnun. Fjöldi svarenda var 952, sem er 48% þátttökuhlutfall. Úrslit kosninga 29. október 2016 Fylgi í % og fjöldi þingmanna Könnun 19.-21. september 2017 Fylgi í % og fjöldi þingmanna Könnun 25.-28. september 2017 Fylgi í % og fjöldi þingmanna 30% 25% 20% 15% 0 4,6% Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 0 3,5% 5 9% 5 6,5%8 11,5% 7 11% 5 7,0% 7 10,5% 3 6% 0 4,8% 10 14,5% 6 10% 8 11,6% 3 5,7% 5 8% 5 7,5% 10 15,9% 22 30% 22 28,8% 21 29,0% 15 23% 18 24,3% 4 7,2% 0 3% 0 4,3% A Björtframtíð B Framsóknar-flokkur C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkurfólksins P Píratar M Miðflokkurinn S Samfylkingin V Vinstri græn Afgerandi forysta hjá VG  Ný könnun Félagsvísindastofnunar bendir til að VG fái 22 þingmenn  Fylgi VG mælist 28,8%  Viðreisn nær ekki inn manni á þing  Framboð Sigmundar Davíðs mælist með 4,6% stuðning „Það er langt í kosningar. Ég er ekkert ósáttur við það að við hækkum og ég hef mikla trú á því að við getum sótt meiri stuðn- ing. Ég finn að það er mjög góð- ur andi í okkar hópi og hjá okk- ar stuðningsmönnum,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins. „Vonandi fáum við út úr þessum kosningum sterka ríkisstjórn sem getur leitt landið áfram, við þessar góðu aðstæður sem við búum við.“ Hefur trú á að geta sótt meiri stuðning Bjarni Benediktsson Katrín Jakobs- dóttir, formaður VG, segist „ánægð og þakk- lát að finna þenn- an stuðning áfram.“ „Okkar markmið er að ná umtalsvert betri árangri en síðast. Við teljum að okkar mál- flutningur mælist vel fyrir. Hann snýst fyrst og fyrst um að við viljum sjá stefnubreytingu þegar kemur að uppbyggingu velferðarsam- félagsins, heilbrigðiskerfisins og skólanna og skýrari sýn í um- hverfismálum,“ segir Katrín. Sýnir að kjósendur vilja stefnubreytingu Katrín Jakobsdóttir „Það virðist vera að mælingar þessa dagana sýni þetta svona. Það hefur verið frekar neikvæð umræða um flokkinn síðustu daga og við erum búin að vera í vinnu við að búa til framboð og höfum ekki verið mikið í fjölmiðlum sjálf. Nú er kosningabaráttan að hefjast. Ég vænti þess að við náum að snúa þessu verulega við í þeirri baráttu. Það er ætlun okkar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formað- ur Framsóknarflokksins. Neikvæð umræða um flokkinn Sigurður Ingi Jóhannsson „Ég segi nú bara enn og aftur – mér finnst gam- an þegar það fer upp og leiðinlegt þegar það fer niður. Það er allt í kortunum og mjög erfitt, ef ekki ómögulegt, að átta sig á því hvernig þróunin verður,“ segir Helgi Hrafn Gunn- arsson, Pírati. „Ég er alveg sannfærður um það að við eigum meira inni út frá mál- efnunum okkar, en það er spurning hvort okkur tekst að tjá þau nógu skýrt til kjósenda.“ Sannfærður um að eiga meira inni Helgi Hrafn Gunnarsson Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson, stofnandi Mið- flokksins, segir niðurstöðu könn- unarinnar ánægjulega, þá miðað við að hún var framkvæmd að mestu áður en flokkurinn, Mið- flokkurinn, var formlega stofnaður í fyrradag. „Mér finnst þetta frábært miðað við hvenær könnunin var tekin og að Miðflokkurinn var ekki orðinn til fyrr en í gær [í fyrradag]. Það er ánægjulegt að sjá svona mælingu,“ segir Sigmundur Davíð. Segir niðurstöðuna vera ánægjulega Sigmundur Davíð Gunnlaugsson „Við þurfum að bæta okkur veru- lega til þess að verða nógu sterkur val- kostur til að tryggja hér fé- lagshyggju- stjórn,“ segir Logi Már Einars- son, formaður Samfylkingar- innar, um niðurstöður könnunar- innar. Spurður um markmið Sam- fylkingarinnar í kosningunum segir Logi Már flokkinn „fyrst og fremst ætla að tryggja einn þing- mann í hverju kjördæmi (6)“. „Allt umfram það yrði gott,“ segir hann. Samfylking þarf að bæta sig verulega Logi Már Einarsson „Þetta er svona í lægri mörk- unum. Auðvitað erum við óhress með það að vera undir mörkum í þessu,“ segir Benedikt Jó- hannesson, for- maður Við- reisnar. „Það hefur náttúrlega margt verið að gerast í pólitíkinni að undanförnu og við höfum kannski ekki verið eins áber- andi með okkar mál og margir. En ég hef sterka trú á því að þegar við minnum betur á okkur aftur þá eigi þetta eftir að batna.“ Fylgið aukist þegar Viðreisn minni á sig Benedikt Jóhannesson „Auðvitað líst manni vel á þeg- ar maður mælist betur. Mér finnst þetta sýna það að kjósendur eru á miklu róti, enda kannski ekki skrítið miðað við óvæntar kosn- ingar og skrítna tíma í pólitíkinni. Það er auðvitað búinn að vera mikill hávaði varðandi innanflokks- átök og klofninga í flokkum og það hefur auðvitað mikil áhrif á um- ræðuna,“ segir Óttarr Proppé, for- maður Bjartrar framtíðar, sem trú- ir því að flokkurinn eigi mikið inni. Hávaði og skrítnir tímar í pólitíkinni Óttarr Proppé KOSNINGAR 2017 „Ég er bara ánægð, það er ekkert annað. Það eru allir að gera kannanir núna þannig að maður má varla vera að því að fylgjast með þessu. Ég er rosalega ánægð með allt sem sýnir að við eigum okkar fasta fylgi og það er gleðilegt. Allt annað er bara plús fyrir okkur og við bíð- um og spyrjum að leikslokum. Við erum bara bjartsýn og brosandi í Flokki fólksins,“ segir Inga Sæland, formaður flokksins. Ánægð með að eiga sitt fasta fylgi Inga Sæland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.