Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Í tilefni af Degi þýðenda í dag, laugardaginn 30. september, heldur Bandalag þýðenda og túlka sitt ár- lega málþing kl. 14 - 16.30 í Veröld, húsi Vigdísar. Á málþinginu verður fjallað um efni sem mörgum er hugleikið um þessar mundir, annars vegar verður velt upp spurningunni hvort ís- lenskan sé í útrýmingarhættu og hins vegar fjallað um þátt þýðinga í tungumálinu. Bandalag þýðenda og túlka, Þot, fékk til leiks fólk bæði úr háskólasamfélaginu og utan þess til að flytja fyrirlestra og ræða málin. Eftirtaldir flytja erindi á mál- þinginu, sem er öllum opið: Sebastian Drude, forstöðumaður Vígdísarstofnunar, Ágúst Einarsson, prófessor emeritus við Háskólann á Bifröst, og Halla Kjartansdóttir, þýðandi og íslenskukennari. Pallborðsumræðum stýrir Kristín Vilhjálmsdóttir, formaður Þots. Boðið verður upp á léttar veit- ingar að þingi loknu. Vefsíðan www.thot.is Halló! Málþing Bandalags þýðenda og túlka er öllum opið á Degi þýðenda á morgun. M.a. verður fjallað um hvort íslenskan sé í útrýmingarhættu. Þáttur þýðinga í tungumálinu Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Gaman, gaman Börnin voru himinlifandi með Víkingatreyjurnar sínar og tóku sig virkilega vel út í búningunum. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Gleðin skein úr andliti nem-enda í Navi MumbaiMunicipal Corporation-barnaskólanum á Indlandi þegar starfsmenn BEC-klíníkur- innar, undirfyrirtækis Actavis og rekstraraðila skólans, komu færandi hendi með innpakkaðar Víkings- treyjur handa hverjum einasta nem- anda. Afhendingin fór fram með pomp og pragt um miðjan mánuðinn og voru börnin, sem eru 163 talsins á aldrinum sex til fjórtán ára, ekki lengi að bregða sér í þessar líka fínu rauð- og svartröndóttu boli. Ekki spillti gleðinni að með treyjunum fylgdi sælgætispakki. Tildrög gjörningsins voru þau að Davíð Rúrik Ólafssyni, lyfjafræð- ingi hjá Actavis, einlægum stuðn- ingsmanni og stjórnarmanni hjá Víkingi til margra ára, rann til rifja að um 200 lítið notaðir bolir sem fé- lagið þurfti að skipta út fyrir nýja voru engum til gagns. Búningar í tugavís „Þegar félög skipta um bún- ingaframleiðanda kemur oft upp að eftir sitja hjá félaginu búningar í tugavís í góðu ásigkomulagi. Það er nauðsynlegt að skipta út öllum bún- ingum í einu til að heildarmynd lið- anna líti vel út og að nýjum styrkt- araðilum sé komið á framfæri eins og samningar kveða á um,“ útskýrir hann. Þessi staða kom upp hjá Víking- um þegar þeir skiptu úr Nike- treyjunum fyrir aðrar frá Makron. Davíð Rúrik segir þær gömlu vera gæðatreyjur sem eingöngu hafi ver- ið notaðar í keppnisleikjum í barna- og unglingastarfinu. Mikil fátækt „Sú hugmynd kom upp að koma þessum treyjum til barna sem ekki hafa efni á slíkum munaði. Börnin í þessum skóla búa við mikla fátækt. Í starfi mínu er ég í miklum sam- skiptum við Indland og þá sérstak- lega við BEC klíníkina, sem gerir klínískar prófanir fyrir Actavis; gef- ur fólki lyf, mælir blóðsýni og þess háttar. Mér fannst liggja beinast við að nýta þessa Indlandstengingu og koma búningunum til fátækra barna, sem sannarlega hefðu not fyrir þá.“ Davíð Rúrik voru hæg heima- tökin. Fyrsta skrefið var að koma að máli við forsvarsmenn TVG- ZIMSEN sem hefur verið styrkt- araðili Víkings um alllangt skeið og biðja þá um að sjá um flutninginn. Hann þurfti ekki að fara bón- leiður til búðar því þar á bæ kveðst hann hafa fengið frábærar viðtökur. Fyrirtækið styrkti verkefnið með því að sjá alfarið um flutninga og pappírsvinnu við að koma treyjunum til Indlands. „Í stuttu máli þá sótti TVG- ZIMSEN búningana í Víkina og kom þeim í hendur viðtakanda á Indlandi á sinn kostnað,“ segir Davíð Rúrik og kann TVG-ZIMSEN bestu þakkir fyrir greiðviknina. „Það er afar ánægjulegt að sjá að hægt er að láta félagsbúninga fá nýtt líf á stöðum þar sem þörfin er augljós,“ segir Davíð Rúrik og kveðst reiðubúinn til að veita öðr- um íþróttafélögum aðstoð vilji þau feta í fótspor Víkinga að þessu leytinu. Ja, hver rauð- og svartröndóttur! Alls staðar eru þessir Vík- ingar gætu einhverjir hugsað sem leið ættu í námunda við barnaskóla nokkurn í afskekktu þorpi í Navi Mumbai á Indlandi. Þar um slóðir er þó fátt um íslenska ferðalanga sem velta vöngum yfir rauð- og svartröndóttum bolum, sem 163 börn skrýðast gjarnan, og þau fengu að gjöf frá Knattspyrnufélag- inu Víkingi á dögunum. Gjafir Dr, Hari Sankar sem fer fyrir BEC-klíníkinni fór ásamt samstarfsmönnum og afhenti treyjurnar fyrir hönd Víkings, TVG-ZIMSEn og Actavis. Heilsu- og forvarnarvika á Suður- nesjum hefst mánudaginn 2. október og stendur til sunnudagsins 8. októ- ber. Af því tilefni býður Bókasafn Reykjanesbæjar upp á hádegishug- leiðslu kl. 12.15-12.30 á neðri hæð safnsins frá mánudegi til föstudags þá vikuna. Enginn aðgangseyrir og allir hjart- anlega velkomnir! Heilsu- og forvarnarvika á Suðurnesjum 2.-8. október Hádegis- hugleiðsla í bókasafni Hugleiðsla Bókasafn er notalegur staður til að stunda hugleiðslu. Samspil forma og ljóss er við- fangsefni Aðalbjargar Þórðardóttur á hennar sjö- undu einka- sýningu, Skuggsjá konu, sem opnuð verður kl. 14 í dag, laugardaginn 30. september, í Gallerí Fold. „Skuggaspilið sem myndast þegar sólin skín skært, endurkast forma sem skapa dýpt og skerpu. Öllu fylgir einhver skuggi, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu, og í þessum málverkum leitast ég við að túlka hvort tveggja,“ segir Aðalbjörg um verkin á sýningunni. Aðalbjörg (Abba) útskrifaðist með BSc í líffræði frá Háskóla Íslands 1979. Hún settist svo aftur á skóla- bekk í MHÍ 1981-1983, í málaradeild eftir fornám. Stundaði síðan nám við Konstskolan Hälsingborg 1984- 1986 en lauk svo prófi í grafískri hönnun við MHÍ 1988. Öllum er velkomið að koma og þiggja léttar veitingar. Sýningin stendur til og með 14. október. Gallerí Fold Öllu fylgir einhver skuggi Aðalbjörg Þórðardóttir (Abba). Sigurður Petersen, útskurðar- meistari og skapari karlanna, sem nú standa keikir á sýn- ingunni Karlarnir í Kringlunni í Borgarbókasafninu, Kringl- unni, mætir í safnið með verk- færin sín kl. 14 í dag, laugar- daginn 30. september. Þar mun hann í tvo klukku- tíma gefa gestum og gang- andi innsýn í hvernig hann breytir óunnu tré í sannkall- aðan fyrirmyndarkarl. Sigurður hyggst endurtaka leikinn á sama tíma að tveim- ur vikum liðnum, laugardag- inn 14. október. Allir velkomnir. Fyrirmyndarkarlar líta dagsins ljós í Borgarbókasafninu Karlarnir í Kringlunni Tré Svipmiklir karlar úr smiðju Sigurðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.