Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Um 300 manns eru á biðlista eftir
plássi á Sjúkrahúsinu Vogi, sem
SÁÁ rekur. Þrátt fyrir 40 ára starf
SÁÁ er enn mikil þörf fyrir meðferð
og eftirfylgd þeirra sem þjást af
fíknisjúkdómum, að sögn Valgerðar
Á. Rúnarsdóttur, forstjóra Sjúkra-
hússins Vogs og framkvæmdastjóra
lækninga SÁÁ. Auk Sjúkrahússins
Vogs rekur SÁÁ eftirmeðferðar-
stöðvar í Vík á Kjalarnesi og Staðar-
felli, göngudeildir í Reykjavík og á
Akureyri og sambýlið Vin.
SÁÁ fær um helgina afhenta lykl-
ana að nýrri viðbyggingu við Vík.
„Vík mun hýsa alla okkar eftir-
meðferð í framtíðinni,“ sagði Val-
gerður. „Nýja húsið er sérhannað
fyrir þessa starfsemi og glæsilegt í
alla staði. Það verður tekið fljótlega í
notkun. Við munum hafa nýja húsið
til sýnis í næstu viku.“
Gamla húsið í Vík verður gert upp
og starfsemin á Staðarfelli flutt í Vík
þegar því er lokið. Nýja húsið er um
3.500 fermetrar og framkvæmdirnar
kosta um 1,3 milljarða.
„Við höfum byggt sjálf utan um
alla okkar starfsemi. Það hefur eng-
inn komið að þessari byggingu nema
SÁÁ. Engir opinberir aðilar hafa
styrkt þetta,“ sagði Valgerður.
Í Vík verður pláss fyrir 61 sjúk-
ling, 21 pláss fyrir konur og 40 pláss
fyrir karla. Meðferð karla og kvenna
verður aðskilin að öllu leyti. Á
Sjúkrahúsinu Vogi er pláss fyrir um
60 sjúklinga. Um þriðjungur þeirra
fer í inniliggjandi eftirmeðferð og
annar þriðjungur fer í göngudeild-
armeðferð frá Vogi.
„Helsti styrkur SÁÁ er að hafa
tryggt aðgengi að meðferð og að
hafa gefið fólki kost á að grípa inn í
vandann,“ sagði Valgerður. „Stærsta
skrefið er þegar fólk gengst við því
um vanda sé að ræða og axlar þá
ábyrgð að takast á við hann.“
Áfengi enn helsti bölvaldurinn
Þegar SÁÁ hóf göngu sína var
áfengisvandi algengastur. Svo er
enn þrátt fyrir fjölbreyttara úrval
vímugjafa í dag en fyrir 40 árum.
„Neyslan er orðin mjög blönduð,“
sagði Valgerður. „Þótt fólk sé í
vanda vegna áfengis þá er oft önnur
neysla með. Stór hluti af yngra fólki
notar kannabis og amfetamín. Síðan
eru vímugefandi lyf eins og örvandi
ávanabindandi lyf og sterk verkja-
lyf.“ Valgerður sagði að stundum
gæti verið flókið að afeitra fólk þeg-
ar það hefur verið í blandaðri
neyslu. Fólk sem sprautar vímuefn-
um í æð getur orðið gríðarlega veikt,
m.a. fengið lifrarbólgu C. Vogur hef-
ur veitt meðferð við henni í sam-
vinnu við Landspítalann síðastliðin
tvö ár.
Valgerður sagði mikilvægt að
heilbrigðisþjónusta SÁÁ væri hluti
af heilbrigðiskerfinu. Samhliða
henni veitir SÁÁ skjólstæðingum
sínum félagslegan stuðning og veitir
fjölskyldum skjólstæðinga þjónustu.
„Ég held að SÁÁ hafi framar öðr-
um komið þessum málum í það horf
sem þau eru í dag. Íslendingar líta á
þetta sem sjúkdóm sem eitthvað er
hægt að gera við. Maður mætir ekki
endilega því viðhorfi í öðrum lönd-
um,“ sagði Valgerður. „SÁÁ hefur
meðhöndlað um 7,5% af af öllum Ís-
lendingum 15 ára og eldri. Flestir
hafa komið bara einu sinni í með-
ferð. Af þessum 24-25 þúsund sjúk-
lingum hafa um 300-400 komið oftar
en tíu sinnum. Það er veikasta fólkið
sem oft þarf hreinlega á líknandi
meðferð að halda.“
Valgerður segir að ekki sé hugsað
nógu vel um þá sem hafa heilabilun
vegna neyslu og eigi ekki neina von
um lækningu. Þeir fái ekki sömu
þjónustu og sjúklingar sem eru með
heilabilun af öðrum ástæðum. Einn-
ig vanti góð úrræði fyrir ungar kon-
ur í vanda sem þurfi endurhæfingu.
Það séu því mörg verkefni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SÁÁ 40 ára Valgerður Á. Rúnarsdóttir er forstjóri Sjúkrahússins Vogs og lækningaforstjóri SÁÁ.
Nýtt hús fyrir eftir-
meðferð á afmælinu
Eftirmeðferðarstöð SÁÁ í Vík kostar um 1,3 milljarða
SÁÁ samtökin halda upp á 40 ára
afmæli sitt um þessar mundir.
Samtök áhugafólks um áfengis- og
vímuefnavandann (SÁÁ) voru
stofnuð á fjölmennum borgara-
fundi í Háskólabíói 1. október 1977.
Haldið verður upp á fertugsafmælið
á sama stað á sunnudagskvöld. For-
seti Íslands, Guðni Th. Jóhannes-
son, verður sérstakur gestur af-
mælisfundarins. Fluttar verða
ræður og fjölbreytt tónlist. Fram
koma m.a. Karlakórinn Fóstbræður,
KK band, Jóhanna Guðrún, Pálmi
Gunnarsson og Kvennakórinn Létt-
sveit Reykjavíkur.
Í tilefni afmælisins verður haldin
ein viðamesta ráðstefna um fíkn
sem haldin hefur verið hér á landi.
Hún verður dagana 2.-4. október á
Hilton Reykjavík Nordica. Sér-
stakur gestur ráðstefnunnar verður
dr. Nora Volkow, forstjóri National
Institute on Drug Abuse (NIDA) í
Bandaríkjunum. NIDA er undir-
stofnun National Institute of
Health (NIH), heilbrigðisstofnunar
Bandaríkjanna, og er einn öflug-
asti bakhjarl rannsókna á heilsu-
farslegum þáttum fíknar og
vímuefnamisnotkunar. Dr. Volkow
er í fremstu röð vísindamanna á
sínu sviði og hefur birt fjölda vís-
indagreina.
Á ráðstefnunni verður m.a.
fjallað um fíkn og áhrif hennar á
íslenskt samfélag. Einnig verða á
dagskrá fjölbreyttir fyrirlestrar og
málstofa um kannabis. Þá mun
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar (ÍE),
fjalla um rannsóknir á erfðum
fíknar sem ÍE hefur stundað í sam-
vinnu við SÁÁ. Nánar má lesa um
ráðstefnuna á heimasíðu samtak-
anna, saa.is.
SÁÁ fagnar 40 ára afmæli
AFMÆLISHÁTÍÐ OG ÞRIGGJA DAGA RÁÐSTEFNA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meðferðarstöðin Vík Öll eftirmeðferð SÁÁ flyst þangað. Nýja húsnæðið verður
afhent um helgina. Á myndinni sést tengibyggingin.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Ég get tekið undir flest það sem
kemur fram í ályktun Lögreglu-
félags Vestfjarða, m.a. að efla og
styrkja þurfi lögregluna í landinu,
t.d. með auknum fjárheimildum og
fjölgun lögreglumanna,“ segir
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna, en
hann segir ástandið vera orðið alvar-
legt.
„Alls staðar á landinu er skortur á
lögreglumönnum og verkefnum
fjölgar, m.a. erfiðum verkefnum.“
Í ályktun Lögreglufélags Vest-
fjarða er sérstaklega minnt á þver-
pólitíska skýrslu Innanríkisráðu-
neytisins um löggæsluþörf, sem
gefin var út árið 2014 þar sem kom
fram að lögreglumenn á Vestfjörð-
um skyldu vera 27 árið 2017. Fjár-
heimildir í dag leyfa aðeins 21 lög-
reglumann.
Tekið upp 1987
Lögreglufélag Vestfjarða skorar
einnig á stjórnvöld að ganga frá
kjarasamningi sem gerður var við
lögreglumenn haustið 2015.
„Það er í gildi kjarasamningur til
2019 við lögreglumenn,“ segir
Snorri en bendir á að hér sé vísað til
svokallaðrar bókunar sjö um álags-
greiðslur til lögreglumanna. Sam-
kvæmt samningi átti bókunin að
vera afgreidd 10.desember 2015.
„Þessi bókun á sér langa sögu og
segja má að langlundargeð lögreglu-
manna endurspeglist ágætlega í
baráttunni fyrir þessu ákvæði. Þetta
mál á sér langan aðdraganda og
kemur fram fyrst árið 1987. Áhersl-
an nú byggist á aukinni kröfu til lög-
reglumanna, t.d. með vopnaburði og
þjálfun og ábyrgð. Bókun sjö nær til
þessara þátta en gengið hefur verið
til samninga við einstaka lögreglu-
stjóra sem voru með vopnaða gæslu
af einhverju tagi, t.d. á Keflavíkur-
flugvelli, og fengust þá sérstakar
álagsgreiðslur fyrir en við teljum að
miðað við núverandi breytingar
verði þetta að ná heilt yfir allan hóp-
inn í stað einstakra lögregluliða.“
Gengið verði frá
kjarasamningi
Álag mikið á lögregluna í landinu
Morgunblaðið/Eggert
Kjaramál Lögreglumenn vilja
ákvæði um álagsgreiðslur.