Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 22

Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Sérhæfð fiskvinnsla í vönduðu 350 fm. leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Velta um 260 mkr. Hagnaður af rekstri. • Mjög vel þekkt sérverslun sem hannar og lætur framleiða hágæðavörur fyrir heimilið. Löng og góð rekstrarsaga. Velta um 400 mkr. • Fyrirtæki sem er sérhæft á sviði jarðefna sem notuð eru í garða og kringum hús. Öflugur eigin vélakostur. Velta 45 mkr. og stöðugildi þrjú. • Verslun sem byggir á erlendri skartgripalínu með tvær verslanir í borginni. Stöðugur rekstur og góð afkoma. • Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug undanfarin ár og jákvæð afkoma. • Mjög vinsæll og þekktur pizzastaður sem auðvelt væri að efla verulega með fjölgun útsölustaða þar sem núverandi staður gæti orðið fyrsti hlekkurinn í keðjunni. • Traust sérverslun með góða afkomu sem býður upp á allt í sambandi við rafmagnið. Velta 80 mkr. og góð afkoma. • Glæsilegt nýtt 30 herbergja hótel í virðulegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið er í útleigu með langan og góðan leigusamning við traustan og öflugan hótelaðila. • Ungt og vaxandi þjónustu- og verslunarfyrirtæki í tæknigeiranum. Fjögur stöðugildi. Velta er um 85 mkr. á ári og góður hagnaður. • Tíu ára gamalt fyrirtæki sem þróað hefur og selur í áskrift tölvukerfi sem þjóna skólakerfinu. Ríflega eitt stöðugildi og 30 mkr. velta. Hentar vel sem viðbót við fyrirtæki sem starfa á svipuðu sviði. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is 30. september 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.15 106.65 106.4 Sterlingspund 142.43 143.13 142.78 Kanadadalur 85.09 85.59 85.34 Dönsk króna 16.798 16.896 16.847 Norsk króna 13.343 13.421 13.382 Sænsk króna 13.038 13.114 13.076 Svissn. franki 109.11 109.71 109.41 Japanskt jen 0.9419 0.9475 0.9447 SDR 149.75 150.65 150.2 Evra 125.0 125.7 125.35 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 156.6187 Hrávöruverð Gull 1286.95 ($/únsa) Ál 2102.0 ($/tonn) LME Hráolía 57.7 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Ferðaheildsal- inn Tui veitti ný- lega Bílaleigu Akureyrar, um- boðsaðila Europcar á Ís- landi, verðlaun fyrir hæstu hlut- fallsánægju viðskiptavina. Í tilkynningu segir að árlega veiti Tui, sem er einn stærsti ferðaheildsali heims, verðlaun til samstarfsaðila sinna í ýmsum greinum ferðaþjónustunnar. Hlaut Bílaleiga Akureyrar verðlaun í flokki bílaleiga með 200-2000 bókanir en í þeim flokki eru meira en 100 bílaleig- ur víðs vegar um heiminn. Mælt er hlutfall milli bókana og kvartana og mældist Bílaleiga Akureyrar með 99,8% ánægðra viðskiptavina, að því er segir í fréttinni. Bílaleiga Akureyrar hlýtur verðlaun frá Tui tímann. Ef þú verður fyrir tjóni færum við gögnin úr honum yfir á nýjan síma þér að kostnaðarlausu. Fólk er að borga talsvert minna með þessu fyr- irkomulagi en ef það kaupir símann og trygginguna með, því við eigum tækið, og þú skilar því til okkar í lok leigutím- ans. Við seljum tækið svo úr landi fyrir ákveðið skilagjald.“ Baldur segir að mikil eftirspurn sé eftir þjónustu sem þessari hjá íslensk- um fyrirtækjum og nú þegar sé eitt fyrirtæki búið að panta 100 símtæki. „Þetta verður hluti af daglegum rekstri fyrirtækjanna sem þurfa þá ekki að standa í að kaupa síma fyrir starfsfólkið. Utanumhald um síma starfsfólks getur verið tímafrekt og í stórum fyrirtækjum geta verið 1-2 starfsmenn í slíkri umsjón.“ Baldur segir að þessi nýja þjónusta geri námsmönnum og hinum efna- minni tækifæri til að eignast dýrari síma, enda ekki á allra færi að leggja út á annað hundrað þúsund krónur fyrir nýjum iPhone-síma, svo dæmi sé tekið. „Eftir því sem tækið er dýrara verð- ur líka alltaf mikilvægara og mikilvæg- ara fyrir fólk að vera með það tryggt.“ Í fyrsta skipti á Íslandi Baldur segir að þetta sé í fyrsta skipti sem þjónusta af þessu tagi sé í boði hér á landi. Hún sé að erlendri fyrirmynd, og þannig hafi þeir fengið hugmyndina. „Forsenda fyrir því að við getum gert þetta er þjónustusamningur sem við erum með við Apple, en við erum viðurkenndur samstarfsaðili Apple og BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fyrirtækið Viss, sem er að langstærst- um hluta í eigu Baldurs Odds Baldurs- sonar framkvæmdastjóra, og þeirra Ingva Tómassonar og Guðmundar Pálmasonar, sem eiga samanlagt 62% hlut í sænska fyrirtækinu Strax AB, sem framleiðir og selur aukahluti í síma og er skráð í sænsku kauphöllina, hyggst hefja farsímaleigu hér á landi í næstu viku. „Við munum bjóða fyrirtækjum og einstaklingum þessa þjónustu í sam- starfi við Símann og fleiri söluaðila strax í næstu viku,“ segir Baldur í sam- tali við Morgunblaðið. Eitt ár í undirbúning Hann segir að undirbúningur hafi staðið í eitt ár, en meðal annars hafi verið tímafrekt að þróa kerfi til að halda utan um leiguna. „Þú borgar ákveðna upphæð á mánuði og getur valið um 18 eða 24 mánuði. Að þeim tíma liðnum skilarðu okkur símanum, og færð nýjan ef þú vilt.“ Baldur segir að kerfið sé einfalt. Slegið verður inn verð símans sem á að leigja, og mánaðargreiðslur reiknast út. Sjálfkrafa verður til raðgreiðslu- samningur eftir að búið er að athuga með lánshæfi, og skrifað er undir með rafrænum skilríkjum. Ferlið getur tek- ið 2-3 mínútur. Leiguupphæð með inni- falinni tryggingu verður svo skuldfærð mánaðarlega af reikningi viðskipta- vina. „Síminn er þannig tryggður allan erum beintengdir inn á kerfi fyrirtæk- isins.“ Auk þess sem unnið hefur verið í smíði leiguforritsins, þá hefur verið unnið að fjármögnun. „Ef þetta gengur vel gæti þetta þýtt talsverð útgjöld því við kaupum símana strax, og svo er fólk að greiða af þeim næstu tvö ár. Ef vel gengur og við leigjum til dæmis 10 - 20.000 síma, þá erum við að tala um fjárfestingu sem hleypur á milljörðum.“ Baldur segir að til að byrja með verði boðið upp á mest seldu símana á mark- aðnum, iPhone 7 og 7+ og svo iPhone 8 og 8+ . Einnig verði boðið upp á þrjár mest seldu tegundirnar frá Samsung. „Svo er lítið mál fyrir okkur að bæta við tækjum. Við teljum ekki ástæðu til að fara með eldri eða ódýrari tæki inn í þessa þjónustu,“ segir Baldur að lok- um. Leigja út síma til fólks og fyrirtækja Morgunblaðið/Ómar Sími Það getur verið dýrt að týna eða skemma dýran síma. Með leigusímum Viss fylgir farsímatrygging. Símamarkaður » Hægt verður að leigja og tryggja iPhone 7 fyrir 5.500- 6.000 krónur á mánuði. » Einn eigenda Viss er Ingvi Tómasson, stór eigandi Strax AB og Hamborgarabúllunnar, sem hann á ásamt föður sínum Tómasi Tómassyni. » Nú þegar hefur eitt fyrirtæki pantað 100 símtæki. » Hægt að leigja símana í 18 eða 24 mánuði og skipta þá yfir í nýjan.  Eigendur Strax hluthafar  Ódýrustu tækin ekki í boði Heldur dró úr halla á vöruviðskipum við útlönd í ágúst miðað við fyrri mán- uði, en hann nam 6 milljörðum króna. Það er minnsti halli síðan í október í fyrra þegar síðast var afgangur á mán- aðarlegum vöruviðskiptum. Hallinn var einnig minni í síðasta mánuði en í ágúst í fyrra þegar hann var 12,9 millj- arðar króna, reiknað á gengi þess árs. Halli á vöruviðskiptum á fyrstu 8 mánuðum ársins nam 114,5 milljörðum króna, reiknað á fob-verðmæti. Frá janúar til ágúst í fyrra voru vöru- viðskiptin óhagstæð um 86,9 milljarða króna og var því hallinn í ár 27,6 millj- örðum króna meiri en á sama tímabili í fyrra. Verðmæti vöruútflutnings fyrstu 8 mánuði þessa árs var 32,9 milljörðum króna minna en í fyrra, og er mismun- urinn 9,2% á gengi hvors árs. Iðnaðar- vörur voru 55,4% alls útflutnings og jókst verðmæti þeirra um 0,2%. Sjávarafurðir voru 37,9% vöruút- flutnings og var verðmæti þeirra 21% minna en í fyrra. Verðmæti vöruinnflutnings var 5,3 milljörðum króna minna fyrstu 8 mán- uðina í ár en í fyrra, sem er 1,2% lækk- un milli ára á gengi hvors árs. Dregur úr vöruskiptahalla Morgunblaðið/Árni Sæberg Vöruskipti Verðmæti útflutnings var 9,2% minna fyrstu 8 mánuðina. STUTT Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.