Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 32

Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Þegar rætt er um skuldir gríska ríkisins er meðal annars spurt um hvað er réttlátt og sanngjarnt. Tók ríkis- stjórn landsins ekki lán og er þá ekki rétt að hún borgi þau? Skyn- samlegt svar við þess- ari spurningu hlýtur að taka mið af því að mönnum ber að greiða skuldir sínar. Það er rangt að taka lán án þess að sjá fram á að geta skil- að peningunum aftur og reyna eftir föngum að gera það. En þetta er að- eins önnur hliðin, því skynsamlegt svar hlýtur líka að taka mið af því að bönkum ber að lána af ábyrgð og það er til góðs fyrir hagkerfið að bankar sem ausa út fé af ábyrgðarleysi fari á hausinn. Ef þeim er alltaf bjargað þá er engin pressa á bankakerfið að gæta vel þess fjár sem það varðveitir. Hér hef ég ýjað að tveim reglum sem varða gott siðferði lánþega og lánveitenda. Það má orða þær á ýmsa vegu. Ein leið er að segja að hag- kerfið þurfi á hvorutveggja að halda að:  Fyrirtæki, fólk og ríki taki ekki lán án þess að standa í skilum.  Fjármálastofnanir, sem ávaxta annarra fé, leggi raunsætt mat á getu lántakenda til að greiða skuldir og stilli áhættu í hóf. Seinni reglan þýðir ekki að áhætta sé ævinlega slæm. Áhættusöm lán eru æði oft driffjöður framfara. Ef fyrirtækjum er ekki komið á lagg- irnar nema það sé fyrirfram alveg öruggt að þau skili arði verður lítið um nýsköpun. Raunar komst kapítal- ismi nútímans ekki á flug fyrr en fundust að- ferðir til að takmarka ábyrgð lántakenda. Þekktasta leiðin er að skrifa hlutafélög fyrir lánunum. Ef illa fer getur lánveitandi ekki gengið að öðru en eign- um félagsins og menn- irnir á bak við það halda persónulegum fjármunum þótt það fari á hausinn. Sú regla að öllum lánum sé und- antekningalaust skilað mundi rústa því hagkerfi sem sér mannkyninu fyrir mat og öðrum nauðsynjum. Áhættusöm lán eru yfirleitt veitt á hærri vöxtum en áhættuminni lán. Þegar þjóðum Suður-Evrópu er lán- að fé á hærri vöxtum en tíðkast til dæmis í Þýskalandi þá er það vænt- anlega að einhverju leyti vegna þess að lán til þeirra eru talin áhættusam- ari. Það má því búast við að sumum þeirra verði aldrei skilað. Ranglát leið og óhagkvæm Mér sýnist að í aldarbyrjun hafi eigendur banka tekið áhættunni sem fylgdi útlánavíkingum af of mikilli léttúð. Trúlega er hluti skýring- arinnar sá að bankamenn virtust gera ráð fyrir að yfirvöld sæju til þess að bankar færu aldrei á hausinn og að öll ríki Evrópusambandsins stæðu í skilum hvað sem það kostaði. Á algerlega frjálsum markaði hefðu fjármagnseigendurnir í norðrinu sennilega ekki lánað suðrinu allt þetta fé. Það er víðar en hér á Íslandi sem kapítalistar verða ábyrgðar- lausir ef þeir fá að hanga í pilsfaldi ríkisins. Ég veit ekki um neinar reglur sem takmarka ábyrgð borgara í skuldug- um ríkjum með svipuðum hætti og ábyrgð hluthafa á skuldum hluta- félaga er takmörkuð. Það getur þó varla verið réttlátt að ábyrgð borg- ara á skuldum ríkis sé ótakmörkuð og það megi hirða hvað mikið sem er af þeim í skatta til að ríkið standi í skilum. Þetta ættu Þjóðverjar svo sem að skilja manna best, því þegar efna- hagur þeirra reis úr rústum á sjötta áratug síðustu alda, var það að nokkru vegna þess að Bandaríkin knúðu lánardrottna þeirra í Evrópu til að gefa eftir mjög verulegar skuldir. Ég treysti mér ekki til að segja mikið meira um hvað réttlátt er að ganga hart að Grikkjum til að ríkis- sjóður landsins borgi sem stærstan hluta skulda sinna. Ég get þó fullyrt að sú leið sem var mörkuð með skil- málum „neyðarlánanna“ 2010, 2012 og 2015 er ranglát, því skuldunum var í raun þröngvað upp á skatt- greiðendur annarra þjóða. Hún er líka óhagkvæm því skilmálarnir draga mátt úr grísku hagkerfi og minnka þar með tekjumöguleika rík- isins og kosti þess á að borga hluta af skuldum sínum. Vandi heillar heimsálfu Efnahagsbandalag Evrópu breyttist í Evrópusambandið með Maastricht-sáttmálanum sem var undirritaður 1992 og tók gildi 1993. Á þeim árum, fyrir aldarfjórðungi, mynduðu frjálslyndir borgara- flokkar og jafnaðarmannaflokkar breiða miðju í evrópskum stjórn- málum. Þeir vörðu í senn borgaleg og félagsleg réttindi, markaðs- búskap og opinber velferðarkerfi. Evrópusambandið, með sitt fjór- frelsi, var að nokkru samtök um stefnu þessara flokka. Á árununum um og upp úr 1990 virtist flestum sem frjálslyndi og al- þjóðahyggja ættu bjarta framtíð í álfunni. Nú aldarfjórðungi síðar er margt breytt: Útlánavíkingar og ábyrgðarlausir gleiðgosar í fjár- málaheiminum hafa dregið úr tiltrú fólks á markaðshagkerfi; sameigin- legur gjaldmiðill evruþjóða spillir sambúð þeirra, enda er hann óhag- stæður löndum sem þurfa að fella gengi gjaldmiðla sinna; meðferðin á Grikkjum á sinn þátt í að menn eiga erfitt með að trúa því að Evrópusam- bandið styðji félagsleg réttindi og samhjálp þegar á reynir. Það virðist í vaxandi mæli handbendi þeirra ríku. Kreppan í Grikklandi er ekki eina ástæðan, og ekki aðalástæðan, fyrir því að frjálslyndir flokkar, sem ég kenni við breiða miðju, fara nú hall- oka í kosningum. En hún á sinn þátt í því. Jafnaðarmannaflokkar sem styðja skilmála þríeykisins hafa svik- ið sína jafnaðarstefnu með því að samþykkja aðför að velferðarkerfi Grikkja. Frjálslyndir hægriflokkar, sem styðja þessa skilmála, hafa líka svikið eigin málstað, með því að fall- ast á að borgarar vítt og breitt um álfuna séu skattlagðir til að bjarga bönkum sem áttu að réttu lagi að fara á hausinn. Þetta dregur úr trú- verðugleika þessara flokka og það á tímum þegar alls konar snælduvit- laust afturhald er í sókn. Meðal ann- ars þess vegna er kreppan í Grikk- landi ekki vandamál eins lands heldur að minnsta kosti einnar heimsálfu. Ranglæti og vond stjórnmál Eftir Atla Harðarson »Kreppan í Grikk- landi er ekki vanda- mál eins lands heldur að minnsta kosti einnar heimsálfu, segir Atli Harðarson í lokagrein sinni um kreppuna í Grikklandi. Atli Harðarson Höfundur er heimspekingur og dós- ent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Grikkland Vörður í fullum skrúða við þinghúsið í Aþenu í Grikklandi. Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Kísill er okkur lífsnauðsynlegur og hefur oft verið kallaður hið gleymda næringarefni. Hann er eitt algengasta steinefni jarðar og gegnir mikilvægu hlutverki í myndun og styrkingu bandvefs. Bandvefur getur t.d. verið beinvefur, sinar, liðbönd og húð. Kísilsteinefni geoSilica er unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísli úr hreinu íslensku vatni og inniheldur því engin aukaefni. Recover Fyrir vöðva og taugar Kísilsteinefni styrkir allan bandvef líkamans t.d. brjósk, sinar og liðbönd. Þanig getur geoSilica Recover dregið úr tíðni meiðsla hjá íþróttafólki og þeim sem stunda reglulega hreyfingu. geoSilica Recover er magnesíumbætt, en magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem dregur úr þreytu, gefur aukna orku og styður við eðlilega starfsemi taugakerfisins. Renew Fyrir húð, hár og neglur Rannsóknir* sýna að kísilsteinefni stuðlar að skilvirkari myndun kollagens í líkamanum. Þannig getur geoSilica Renew styrkt húðina og gert hana stinnari. geoSilica Renew getur einnig grynnkað örhrukkur og lagað húðskemmdir af völdum of mikils sólarljóss. geoSilica Renew er sink- og koparbætt. Sink og kopar eru lífsnauðsynleg steinefni en rannsóknir* sýna að þau stuðla að styrkingu nagla og hárs auk þess að minnka hárlos og klofna enda. Repair Fyrir bein og liði geoSilica Repair getur aukið beinþéttni en rannsóknir* sýna að dagleg inntaka kísils getur dregið úr beinþynningu og jafnvel hægt á henni á byrjunarstigi, sérstaklega hjá konum. geoSilica Repair er manganbætt en það á ríkan þátt í að viðhalda eðlilegum beinvexti s.s. myndum brjósks og liðvökva og er nauðsynlegt heilbrigði tauga og ónæmiskerfis. *http://instituteofmineralresearch.org/mineral-elements Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.