Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 36

Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 ✝ Erla Markús-dóttir fæddist í Borgareyrum, V- Eyjafjöllum 21. nóv- ember 1936. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Sel- fossi, 18. september 2017. Foreldrar hennar voru Sigríður Magnúsdóttir frá Álfhólahjáleigu í Vestur- Landeyjum í Rangárvallasýslu, f. 30. apríl 1905, d. 11. febrúar 1997, og Markús Jónsson, bóndi og söðlasmiður frá Borgareyrum, f. 6. mars 1905, d. 28. júlí 1988. Systkini Erlu eru: Hulda, f. 24.2. 1930, d. 12.10. 1987, Hrefna, f. 23.5. 1931, Magnús Sigurður, f. 26.4. 1932, d. 25.7. 1991, Eygló, f. 10.7. 1933, d. 2.8. 2009, Ester, f. 2.2. 1940, d. 10.3. 1945, Grímur Bjarni, f. 21.5. 1942, Ester, f. 18.7. 1944, Þorsteinn Ólafur, f. 31.1. 1946, og Erna, f. 9.8. 1947. 1989, maki Jón Reynir Sveins- son, f. 14.10. 1986. Barn þeirra Markús Alex, f. 19.6. 2013. B) Berglind Eva, f. 21.4. 1992, maki Baldur Þór Ragnarsson, f. 23.2. 1990. 3) Hannes Hrafn, f. 28.5. 1968. Börn hans og Guðbjargar Rós Sigurðardótt- ur: A) Haraldur Jóhann, f. 25.6. 1996, B) Sigurður Arnar, f. 5.8. 1999, C) Linda Rós, f. 13.1. 2003. 4) Jóhanna, f. 21.10. 1972. Barn hennar og Svavars Hávarðssonar, Hákon, f. 8.7. 1995. 5) Jón, f. 3.9. 1974, maki Ásdís Björg Ingvarsdóttir, f. 8.9. 1975. Börn hans og Önnu Kristínar Gunnarsdóttur: A) Hekla Björg, f. 18.8. 1999, B) Gunnar Atli, f. 9.1. 2006. Börn hans og Aðalbjargar Jóhönnu Helgadóttur, C) Védís Kolka, f. 29.5. 2008, D) Helgi Leó, f. 23.7. 2011. Stjúpbörn hans, E) Gísli Þór, f. 6.5. 1995, unnusta Auður, f. 28.12. 1995, F) Inga Dís, f. 10.2. 2008, G) Eva Sól, f. 10.3. 2011. Erla bjó lengst af í Þorláks- höfn sem húsmóðir og fiskverkakona. Útför Erlu fer fram frá Þorlákskirkju, í dag, 30. sept- ember 2017, klukkan 14. Erla giftist 12. desember 1964 Haraldi Ármanni Hannessyni frá Eyrarbakka, f. 1.1. 1932. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Magnús Þór, f. 26.9. 1964, maki Ásgerður Eiríksdóttir, f. 25.3. 1962. Börn þeirra: A) Jóhanna Ósk Ólafs- dóttir, f. 14.3. 1981, maki Ragna Ragnarsdóttir, f. 21.8. 1981. Barn Jóhönnu, Ásgerður Elva, f. 23.5. 1998. B) Stefán Ólafsson, f. 28.8. 1982, maki Ewa Sieminska, f.10.8. 1976. Börn þeirra, Oliver Þór, f. 7.12. 2008, og Gabríel Oscar, f. 6.7. 2012. C) Ármann Helgi, f. 29.7. 1990, maki Erika Celesova, f. 21.4. 1985. Barn þeirra Maxim Leó, f. 20.4. 2013. D) Þorberg- ur, f. 3.5. 1998. 2) Markús Örn, f. 30.5. 1966, maki Guðbjörg Ósk Kjartansdóttir, f.8.5. 1968. Börn þeirra: A) Erla Sif, f. 5.2. Elsku amma okkar. Í fáeinum orðum langar okkur að minnast þín og þeirra yndislegu og dýr- mætu stunda sem við áttum saman. Nú er við hugsum til baka koma fyrst upp í huga okkar allar heimsóknirnar til þín og afa. Öll sú hlýja og vænt- umþykja sem streymdi frá þér þegar þú tókst á móti okkur eru ómetanlegar og ekki voru kveðjustundirnar síðri. Samverustundirnar sem við minnumst einkenndust fyrst og fremst af söng og hljóðfæraleik, alls kyns leikjum í stofunni þar sem við fengum að umturna öllu, gerðum báta, hatta og skutlur úr pappír og að ógleymdum sögustundum. Þú varst alltaf til í glens og grín og höfum við mikið hlegið saman af gömlum minningum og stendur „ljóta skömmin“ þar hæst upp úr. Elsku amma okkar, við þökk- um þér kærlega fyrir allar sam- verustundirnar, þín verður sárt saknað. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Erla Sif og Berglind Eva. Ég flaug á vit ævintýranna daginn eftir 19 ára afmælisdag- inn minn. Ég var þá nýstúdent og lendingin var Þorlákshöfn, þar kynntist ég góðu fólki, þar á meðal var Erla Markúsdóttir sem seinna varð „plasttengda- mamma“ mín og „plastamma“ drengjanna minna. Þessi lending reyndist mér giftusamleg og farsæl því þarna opnaðist mér faðmur „plast- tengdamömmu“ heill og sannur. Erla var einstaklega kær- leiksrík og heilsteypt mann- eskja sem tók á móti mér óhörðnuðum táningnum sem þá taldi sig vera kominn í fullorð- inna manna tölu. Í Þorlákshöfn var langur vinnudagur og auk þess var ný- stúdentinn byrjaður að koma þaki yfir höfuðið. Á þessum árum var farið heim í hádeginu og þá var alltaf farið beint í byggingarvinnu en ekki matseld. Það var hægt því Erla tók þá stöðu að sjá ungu hjónaleysun- um fyrir næringu svo hægt væri að nýta hádegishléið sem best við húsbygginguna. Ekki var hægt að fá að greiða henni fyrir ómakið og því var brugðið á það ráð að færa henni gjafir, þá var sem hún hefði himin höndum tekið og þakk- lætið mikið. Alla sína ævi vann Erla mikið og oftast erfiðisvinnu, hún vann í frystihúsi og skar úr netum í bílskúrnum á Reykjabrautinni, en þegar tími gafst tók lista- gyðjan við, þá spilaði hún á org- elið og seinna þegar eftirlauna- árin runnu upp tók hún virkan þátt í starfi eldri borgara og þar blómstraði listagyðjan sem aldr- ei fyrr, fagrir leirlistmunir liggja eftir hana og hverjum hefði dottið í hug að kórstjarna á áttræðisaldri væri að fjár- magna hljómdisk á Karolina Fund. Ekkert stoppaði Erlu við að gera það besta úr lífinu. Hún fékk ekki bestu lífsspilin á hendi en hún sannarlega spilaði vel úr sínum spilum. Daginn eftir áttræðisafmæl- isdaginn hennar hringdi ég í þessa snjöllu og skemmtilegu konu til að óska henni til ham- ingju með gærdaginn sem hún sagði mér að hefði verið ein- stakur í faðmi barna sinna og eiginmanns. Símtalið endaði hún með orð- unum „ég þakka þér fyrir mig“ með sínum einstöku áherslum og það flaug í huga mér að þetta væru hennar lokaorð til mín, sem svo reyndist vera. Að leiðarlokum drýp ég höfði og með orðum Erlu þakka ég henni fyrir mig og samferðina. Ég votta eiginmanni, börnum, barnabörnum og barnabarna- börnum samúð og óska þeim blessunar. Erla Markúsdóttir er kært kvödd og Guði falin. Selma Filippusdóttir. Erla Markúsdóttir ✝ Tumi HafþórHelgason fæddist á Djúpa- vogi 8. apríl 1967. Hann lést á líknar- deild Landspítal- ans í Kópavogi 8. ágúst 2017. Foreldrar hans eru Helgi Þór Jónsson, f. 29. ágúst 1938, og Elsa Skúladóttir, f. 1. júní 1941, bændur í Urðar- teigi við Berufjörð. Systkini: Ásdís Hafrún Benediktsdóttir, f. 20. mars 1959, Sigvaldi Haf- steinn Jónsson, f. 12. ágúst 1961, og Sverrir Hafliði Helga- son, f. 7. október 1971, d. 30. nóvember 1986, börn þeirra eru Jóhannes Guðmar Michel- sen Vignisson, f. 1. september 2014, og Bergey Brá Vignis- dóttir, f. 18. febrúar 2017. 2) Helgi Týr Tumason, f. 2. sept- ember 1991. 3) Lára Hafrún Tumadóttir, f. 7. mars 1995. Sambýlismaður hennar er Haf- steinn Gunnlaugsson, f. 25. apr- íl 1994. 4) Brynjar Berg Tuma- son, f. 15. mars 2001. Tumi ólst upp í Urðarteigi við Berufjörð. Hann stundaði nám við barnaskólann í Hamra- borg í Beruneshreppi og við Djúpavogsskóla og lauk námi í húsasmíði frá Verkmennta- skóla Austurlands . Hann starf- aði lengst af við húsasmíði og kom hann að byggingu margra húsa á Djúpavogi. Tumi starf- aði einnig til sjós en seinustu árin vann hann hjá VHE. Útför Tuma fór fram frá Keflavíkurkirkju 22. ágúst 2017. október 1978. Tumi giftist Sig- rúnu Þorsteins- dóttur þann 8. apr- íl 1990. Sigrún fæddist í Reykjavík 30. september 1967. Foreldrar hennar voru Þor- steinn Brynjólfs- son, f. 27. sept- ember 1918, d. 9. september 1995, og Lára Lárusdóttir, f. 12. júlí 1927, d. 17. janúar 1989. Tumi og Sigrún eignuðust fjögur börn: 1) Sara Dís Tumadóttir, f. 19. nóvember 1989. Sam- býlismaður hennar er Vignir Michelsen Jóhannesson, f. 28. Ég kveð þig með fallegu ljóði, Játning, sem þú ortir til mín, elsku ástin mín. Þegar villtir vindar þeysa, veröld sem fer á skrið er ljúft til þín að leita og losna sorgir við. Varða þau mér veginn þann, þín bláu augu tær. Sem ég með þér fyrrum fann, til framtíðar vina kær. Þung er þraut að skilja mig, en þú veist ég elska þig. Í dag, 30. september, er ég fimmtug og vorum við í sumar að plana að vera í Amsterdam á Rolling Stones-tónleikum á af- mælisdaginn. Okkur tókst ekki að upplifa þann draum en ég set Rolling Stones í spilarann og ég veit að þú hlustar með mér, kæri Tumi minn. Seinustu vikur hafa verið erfiðar og erf- itt er að finna svona til í hjart- anu. Hugurinn gefur manni engan grið og verst eru kvöldin og næturnar, tómarúmið æpir á mig og fæ ég engu ráðið. Ég sakna þín allan daginn alla daga, en ég rifja upp allt það góða sem við áttum saman. Börnin okkar Söru Dís, Helga Tý, Láru Hafrúnu, Brynjar Berg, tengdasyni okkar Vigni og Hafstein og svo litlu afa- og ömmugullin okkar Jóhannes og Bergeyju. Nú er haustið komið og vetur í nánd og er þetta erfiður tími sem er á næst leiti. Mér finnst eins og þú sért í vinnuferð og ég bíð eftir að þú komir heim til mín svo ég fái að horfa í fallegu bláu augun þín og fái faðmlag og koss frá þér. Ég ætla bara að leyfa mér að láta mig dreyma það. Þú varst ótrúlega næmur og vel að þér um nátt- úruna, landið þitt fugla og ör- nefni. Þú tókst reglulega þátt í spurningaleikjum og vannst líka oft ýmislegt sem kom að góðum notum. Þú varst húsasmiður og allt sem þú gerðir var upp á milli- metra. Ekkert fúsk. Annars sást þú ekki ástæðu til að koma nálægt verkinu. Lífið hefur ekki alltaf farið um þig mjúkum höndum. Þú greindist með Hodgkins- eitlakrabbamein 18 ára og hafð- ir betur í þeirri baráttu. 30 ár- um síðar kemur skellur og þá er það barátta upp á líf og dauða, 4 stigs lungnakrabba- mein. Í rúmt eitt og hálft ár barðist þú eins og ljón og varst ekkert að gefast upp. Aldrei kvartaðir þú þó að sumir dagar hafi ekki verið auðveldir. Þú ert hetjan mín og munt alltaf vera það. Þegar ég strýk yfir menið sem ég gaf þér með nafninu þínu á hugsa ég um stjörnurnar á fest- inni sem Megas söng um og ég veit að tengsl okkar verða aldr- ei slitin, þau eru skrifuð í stjörnurnar, elsku ástin mín. Við lærðum það seinustu tvö ár að það er í lagi að gráta, það er í lagi að vera dapur, reiður, sár og að elska. Þú fórst að vinna í erfiðri lífreynslu sem ör- lögin sendu þér, bróðurmissin- um, krabbameininu og það veitti þér létti að geta talað um þessa lífreynslu. Þegar þú skildir við var ég viss um að Sverrir litli bróðir þinn biði þín og mundi vísa þér veginn um himinhvolfið. Kæri minn, þú varst elskaður og það er það sem skiptir máli. Ég vil þakka öllum þeim sem studdu Tuma, mig og fjölskylduna fyrir vináttuna og kærleikann. Það er dýrmætur auður að eiga góða að og mun ég aldrei gleyma. Elsku ástin mín, ég ætla að eiga góðan afmælisdag eins og við vorum búin að tala um og ég veit að þú ert hér hjá mér, núna og um ókomna tíð. Þín Sigrún. Tumi Hafþór Helgason Ástkær móðir okkar, amma og langamma, KATRÍN FRÍMANNSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 21. september í Sunnuhlíð. Útför hennar mun fara fram í Digraneskirkju miðvikudaginn 4. október klukkan 11. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Ágústsdóttir Gróa Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ALFÍFU GÍSLADÓTTUR, Leynisbraut 34, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Lilja Leifsdóttir Jens Ágúst Jónsson Gísli Björnsson Kristín Hallsdóttir Helga Björnsdóttir Óli Öder Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA FRIÐBJARNARDÓTTIR íþróttakennari, Kleppsvegi 142, lést miðvikudaginn 27. september á Landspítalanum. Útförin verður gerð frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu fimmtudaginn 5. október klukkan 11. Hörður S. Óskarsson Atli Ásmundsson Þrúður Helgadóttir Kjartan Ásmundsson Sigrún Ásmundsdóttir Anna Margrét Bragadóttir Birgir Jóhannesson börn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN ÞORLÁKUR INGÓLFSSON, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 6. október klukkan 13. Már Kristinsson Herborg Harðardóttir Kristín Kristinsdóttir Markús Sigurðsson Ólöf Kristinsdóttir Steingrímur Birgisson Gústav Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur bróðir okkar, mágur, frændi og vinur, RÓBERT PÁLSSON, lést á líknardeild Landspítalans miðviku- daginn 27. september. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. október klukkan 15. Systkini, aðrir vandamenn og vinir hins látna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.