Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 40

Morgunblaðið - 30.09.2017, Síða 40
40 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Ég er stödd í Varsjá og verð hérna um helgina en maðurinnminn verður með tvenna tónleika í borginni. Ég skrapp þvíhingað yfir og átti stefnumót við hann,“ segir Halla Oddný Magnúsdóttir, sem á 30 ára afmæli í dag. Eiginmaður Höllu er Víkingur Heiðar Ólafsson og hann ætlar að spila verk eftir J.S. Bach og Philip Glass í óperuhúsinu í Varsjá í kvöld. „Ég fæ tónleika í afmælisgjöf. Svo ætlum við annaðhvort að fara á gyðingasafnið eða leita að hjarta Chopins í kirkjugarðinum hér – hann óskaði þess á dánarbeði í París að hjartað yrði tekið úr sér og flutt heim til Póllands.“ Halla sá um menningarhlutann í Kastljósinu á RÚV síðastliðinn vet- ur ásamt Bergsteini Sigurðssyni, en ákvað að söðla um og dvelja í Berlín þennan veturinn. „Við hjónin höfum verið með annan fótinn þar og mér fannst þessi tímamót heppileg til að drífa mig út og sjá hvaða ævintýri bíða. Mér finnst gaman að vera innan um alla söguna og menninguna á megin- landi Evrópu. Við eigum heima í Pankow sem var hluti af Austur- Berlín, eiginlega hálfgert kommisarahverfi. Þar eru göturnar nefnd- ar eftir hetjum að austan – eins og Tsjaíkovskí og Majakovskí. Ég vinn sjálfstætt og held áfram að taka að mér ýmislegt fyrir RÚV.“ Halla lærði mannvísindi, eða Human Sciences, við Oxford-háskóla en er líka píanómenntuð og hefur vítt áhugasvið, svo sem bókmenntir og sögu. Síðasta verkefni hennar hjá RÚV var að vera kynnir á róm- uðum óperutónleikum sem voru haldnir í Hörpu og var sjónvarpað beint í Ríkissjónvarpinu. Foreldrar hennar eru Jóhanna Ólafsdóttir ljósmyndari og Magnús Tómasson myndlistarmaður. Sjónvarpskonan Frá Degi rauða nefsins sem Halla Oddný og Gísli Marteinn Baldursson stýrðu á RÚV í sumar. Leitar að hjarta Chopins í Varsjá Halla Oddný Magnúsdóttir er þrítug í dag R agnheiður Elín Árna- dóttir fæddist á Land- spítalanum 30.9. 1967 en ólst upp í Keflavík. Hún var í sveit þrjú sumur á bænum Steig í Mýrdal: „Þar fékk ég þann merka titil „kúarektor“ frá Stíg Guðmundssyni, bónda í Steig.“ Ragnheiður var í Barnaskóla Keflavíkur sem nú er Myllubakka- skóli, á gagnfræðastigi í Holtaskóla, lauk stúdentsprófi frá Kvennaskól- anum í Reykjavík 1987 og var þá dúx skólans. Hún var skiptinemi á vegum AFS í Boise, Idaho 1984-85, lauk prófi í stjórnmálafræði frá HÍ 1991 og MSFS-gráðu í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Wash- ington DC 1994. Ég hef heyrt því fleygt Ragnheiður að Filippus VI., Spánarkonungur, hafi verið skólafélagi þinn í George- town University og að þið séuð síðan perluvinir? „Já, reyndar kynntumst við, urð- um góðir vinir og höfum ræktað þá vináttu. Við vorum síðast í SMS- samskiptum í gær. Við hjónin vorum í brúðkaupinu þeirra og þau við okkar brúðkaup. Auk þess hefur hann mætt í stórafmæli hjá mér. Líklega er það tilviljunarkennt hvernig vinátta fólks myndast, en kjarni málsins er auðvit- að sá að þau hjón eru góðir vinir sem við metum mikils.“ Með námi vann Ragnheiður við farþegaafgreiðslu hjá Flugleiðum í Keflavík í sjö sumur og vann eitt ár með stjórnmálafræðináminu hjá Ör- yggismálanefnd. Hún starfaði síðan hjá Útflutningsráði Íslands (nú Ís- landsstofu) fyrst í New York sem við- skiptafulltrúi og var síðar verkefnis- stjóri í Reykjavík. Að námi loknu starfaði hún í sendiráði Íslands í Washington um sex mánaða skeið við sérverkefni. Ragnheiður hefur lengst af verið að vasast í stjórnmálum það sem af er starfsævinnar, var aðstoðarmaður ráðherra, Geirs H. Haarde frá 1998- 2007, í fjármálaráðuneytinu í sjö ár, eitt ár í utanríkisráðuneytinu og eitt í forsætisráðuneytinu. Ragnheiður var kjörin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í SV-kjördæmi árið 2007, færði sig í Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar 2009, var þar odd- viti flokksins í kosningunum, 2009 og Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrv. alþm. og ráðherra – 50 ára Ferming Árna Þórs F.v.: Gígja Sigríður, Árni Þ. Þorgrímsson, faðir Ragnheiðar, afmælisbarnið, Helgi Matthías, Guðjón Ingi, Árni Þór, Karítas Sveina, og tengdaforeldrar, Sveinbjörg Laustsen og Guðjón M. Guðjónsson. Ætlaði aldrei í pólitík Icesave-klumpur? Nei, ráðherrann vígir Íshellinn í Langjökli. Á morgun, sunnudaginn 1. október, eiga hjónin í Víðiholti, S-Þing., Jón Helgi Jó- hannsson og Unnur Sigríður Káradóttir, 50 ára hjúskaparafmæli. Þau voru með mjólkurframleiðslu alla sína búskapartíð. Þau verða að heiman á þessum merku tímamótum. Árnað heilla Gullbrúðkaup Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Meira til skiptanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.