Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
MOVIE STAR
hvíldarstóll
Verð frá 398.000,-
Skoðaðu úrvalið
á nýju heimasíðunni
okkar
casa.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu óhræddur við að opinbera
hugmyndir þínar því þér gæti verið fengur að
þeim. Gefðu þér tíma til að rækta líkama og
sál því allt veltur á jafnvægi þar í milli.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekkert koma þér á óvart í dag.
Sérstaklega þegar einhver reynir á sjálfs-
álitið hjá þér. Brýndu raustina og segðu hvað
þér finnst, því þú hefur líklega rétt fyrir þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú eigir erfitt með að hemja
tilfinningar þínar geturðu haft stjórn á þeim.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt fjármálin séu þér ofarlega í
huga skaltu ekki láta þau ná svo miklum tök-
um á þér að þú hafir ekkert annað að tala
um. Náðu aftur sambandi við þá sem þú hef-
ur saknað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eitthvað verður til þess að róta upp í
gömlum tilfinningum svo þú þarft að koma
þér í jafnvægi aftur. Notaðu eigin dómgreind
og fylgdu þínu hjarta er taka þarf ákvörðun.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Oftast fyllistu ekki valkvíða, en val-
kostirnir eru nú svo girnilegir að þú verður
að hugsa þig vel um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að velja þá sem þú umgengst
af meiri kostgæfni. Vandinn er bara að velja
og hafna. Þú getur ekki bætt samband þitt
við vin þinn með því að breyta honum/
henni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að ganga ekki of
langt í þrjósku í samskiptum við aðra því að
það gæti valdið óbætanlegum skaða. Knús-
aðu fast alla klikkuðu ástvini þína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert staðráðinn í því að fara
þínu fram, sama hvað það kostar. Þér kann
að finnast þú umsetinn svo þú eigir erfitt
með að gera nokkurn skapaðan hlut.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú skapast stund til þess að taka
til hendinni heima fyrir. Ef það er valdabar-
átta á milli framans og vinanna, leyfðu þá
vinunum að vinna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að gera öllum eitthvað til
góða en láttu það ekki hafa áhrif á þig þótt
þú getir ekki bjargað öllum. Þetta getur orð-
ið skemmtilegur dagur hjá þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú nýtur þess að ræða við vini þína í
dag, ekki síst vinkonur. Heima fyrir er ein-
hver sem elskar þig en getur ekki alltaf sýnt
það. Þú hefur haft yfrið nóg að starfa að
undanförnu en sérð nú fram á að eiga tíma
aflögu fyrir sjálfan þig.
Vísnagátan er sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson:
Nafn, sem margur maður ber.
Málmhylki í gufuvél.
Hola víð og all djúp er.
Í eldhúsinu þjónar vel.
Lausn Hörpu á Hjarðarfelli:
Ketill haldinn kauni.
Ketill í gufuvél.
Ketill kvos í hrauni.
Ketill sýður vel.
Guðrún Bjarnadóttir leysir:
Með kolin hann Ketill fór,
í kötlunum eldhólf stór.
Kerið er ketill djúpur.
Í katli má sjóða rjúpur?
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Ketill margur maður heitir.
Málmhylki það ketill er.
Skessuketill skjól oss veitir.
Skjótt á katli sjóða fer.
Þá er limra:
Þar kemur, að Katla hún gýs
og kolsvartur mökkur upp rís
og blasir við hel,
en brestur á él
og Bjarki Kaldalóns frýs.
Síðan er ný gáta eftir Guð-
mund:
Drjúgum líður daginn á,
deigan síga láta
öllu lengur ekki má
án þess að klárist gáta:
Kona þessi kann að spá.
Krakki þetta leikfang á.
Ég lítinn stein í lófa ber.
Lítill heybaggi sá er.
Á laugardaginn skrifaði Pétur
Stefánsson í Leirinn:
Árstíðin þessi angrar lítt,
áfram veginn skundum.
Staðreyndin er að haustið er hlýtt
þó hvessi og rigni stundum.
Friðrik Steingrímsson bætti
við:
Sáttur Pétur situr við
sína lofar hagi,
ef ekk’er talið óveðrið
er allt í fína lagi.
Föður mínum þótti vænt um
Magnús í Magnússkógum vegna
þess að í Landsbókasafninu voru
falleg handrit skrifuð af honum. Í
Bernódusrímu eru þessar vísur:
Dundi raung, en stundi staung
stýrin marra og rumdu
murra hjól en urrar ól
öldujóar þrumdu.
Saung í reiða golan greið,
gyltar voðir þandi,
þar til sjóla arfi ól
eggja hríð með brandi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ekki er allt í katlinum sem krækt er
ÞETTA VAR ALGJÖRT TÍSKUSLYS –
ENDA FÁTT UM FÍNA DRÆTTI SUNNAN
MIÐBAUGS.
„ATHYGLI MÍN HEFUR VERIÐ VAKIN Á
ÞVÍ AÐ ÞÚ ÁTT FIMM BÍLA OG LITLA
LYSTISNEKKJU.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera enn brjál-
aður í hana, þrátt
fyrir að hún dragi þig á
listasöfn, ballettinn og í
óperuna!
HRÓLFUR! ÓVINURINN
ER OF ÖFLUGUR!
ERTU AÐ SEGJA AÐ ÞAÐ SÉ ENN TÍMI TIL
ÞESS AÐ SKIPTA UM LIÐ?!
EKKI LÁTA HUGFALLAST!
ÞAÐ ER ENN TÍMI TIL
ÞESS AÐ VINNA!
GANGIÐ EKKI
Á GRASINU
GANGIÐ EKKI
Á GRASINU
GANGIÐ EKKI
Á GRASINU
GANGIÐ EKKI
Á „GANGIÐ
EKKI Á
GRASINU“
SKILTINU
Æ, LÁTTU
EKKI SVONA!
GJALDKERI
Mikil heilsubót er fólgin í því aðfara í gönguferðir, eitthvað sem
öll fjölskyldan getur gert saman og
er alveg ókeypis. Víkverji fór um
daginn í gönguferð við Helluvatn og
Elliðavatn. Þarna voru þrjár kyn-
slóðir á ferð og var yngsti fjölskyldu-
meðlimurinn, fjögurra ára, mjög
sprækur og til í svona ævintýra-
göngu eins og amman kallar hana.
Það er nefnilega margt hægt að gera
í göngutúr, það er hægt að skoða
plöntur, telja hluti og búa til hristu
(úr lúpínufræjum).
x x x
Einna fegnastur varð Víkverji þóþegar hann sá að það er bannað
að hjóla á stígnum þarna við Hellu-
vatn. Ekki nema von enda er ekki
pláss þarna fyrir bæði hjólandi og
gangandi því þetta er bara mjór
moldar/malarstígur. Merkingin er
mjög greinileg og er víða. Engu að
síður kom maður þarna hjá á hjóli og
Víkverji vogaði sér að segja við hann:
„Afsakið, það er bannað að hjóla
hérna.“ Maðurinn snarstoppaði og
sagði hátt: „Hvar í andskotanum á ég
þá að vera?“ Afsakið orðbragðið en
tilvitnunin er orðrétt. Víkverja og
fjölskyldu snarbrá enda var maður-
inn æstur. Hann hélt áfram og sagði:
„Þið viljið ekki hafa okkur á stíg-
unum og ekki á götunum“ og hélt
áfram að tala án þess að leyfa öðrum
að komast að. Víkverji hugsaði með
sér að hann ætti að minnsta kosti
ekki að hjóla þar sem væri sér-
staklega bannað að hjóla. Eftir smá
spjall róaðist maðurinn og hélt sína
leið en vonandi skammast hann sín
niður í tær fyrir að leyfa sér að æsa
sig svona við ókunnugt fólk sem var
aðeins að benda á staðreyndir.
x x x
Víkverji var nefnilega þarna á ferðtil að forðast hjólreiðafólkið. Það
er ekki lengur öruggt að fara í
göngutúr í Elliðaárdalnum með lítil
börn út af tillitsleysi hjólreiðafólks á
ofurhraða sem er þó aðeins gestir á
göngustígunum. Eldra fólk í hverfinu
sem hefur farið í reglubundnar göng-
ur árum saman finnur líka fyrir þess-
ari breytingu. Það er ekkert betra að
vera hrakinn í burtu af hjólum en bíl-
um. Niðurstaðan er sú sama. Gang-
andi umferð fer illa með hjólaumferð
og þetta þarf að laga. vikverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir
sál mín þig, ó Guð.
(Sálm. 42:2)