Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 44

Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019 HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017 PABLO PICASSO - Jacqueline með gulan borða (1962) / Jacqueline au ruban jaune (1962) Langtímasýning COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018 - Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism ORKA 14.9. - 7.1.2018 Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu Dr. Selma Jónsdóttir – Aldarminning 22.8. - 22.10 2017 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 15.10.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.12.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sunnudagur 1. október kl. 14: Barnaleiðsögn Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Guðmundur Ingólfsson – Á eigin vegum í Myndasal og á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sunnudagur 1. október: Tveir fyrir einn af aðgangseyri Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Astrid Lindgren-tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu í dag, laugar- dag. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14 og þeir seinni kl. 16. Á tónleikunum verður flutt úrval tónlistar úr leikritum og kvikmynd- um sem byggjast á ævintýrum Astrid Lindgren. Tónlist úr Línu langsokki, Emil í Kattholti, Bróður mínum Ljónshjarta og Á Saltkráku hljómar nú í fyrsta sinn á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar í nýjum útsetn- ingum Jóhanns G. Jóhannssonar. Gáskafull tónlistin með grípandi laglínum undirstrikar vel kenjar og óknytti sögupersónanna en einnig er að finna hrífandi og hugljúfa tónlist sem fangar vináttu og væntumþykju betur en nokkur orð. Líf og fjör ein- kenna þessa tónleika þar sem uppeld- issjónarmið fullorðinna eru teygð og toguð og hugmyndir æskunnar um lífið og tilveruna fá að njóta sín til fulls, segir í tilkynningu. Leikararnir Þórunn Arna Krist- jánsdóttir og Sigurður Þór Óskarsson bregða sér í hlutverk ýmissa söguper- sóna og færa okkur sagnaheim Lind- gren í tali og tónum ásamt Kór Kárs- nesskóla og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Um tónsprotann heldur finnski hljómsveitarstjórinn Anna- Maria Helsing. Ljósmynd/Haraldur Jónasson Lína Þórunn Anna mun bregða sér í hlutverk ýmissa sögupersóna á tónleikunum. Astrid Lindgren-tónleikar í Hörpu í dag VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Werner Herzog, einn virtasti og áhrifamesti kvikmyndagerðarmaður sögunnar, er einn af heiðursgestum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem hófst í fyrradag. Fimm verka hans, þar af þrjár heim- ildarmyndir, verða sýnd á hátíðinni og mun hann sitja fyrir svörum að loknum sýningum á tveimur þeirra, auk þess að bjóða upp á meistara- spjall. Herzog er með endemum af- kastamikill og fjölhæfur listamaður, hefur gert tugi kvikmynda og heim- ildarmynda sem einkennast m.a. af ljóðrænum og óhefðbundnum tökum hans á viðfangsefnum sínum. Hann leikstýrði sinni fystu stuttmynd, Her- akles, árið 1962 en fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, Lebenszeichen, eða Lífsmörk, var frumsýnd árið 1968 og hlaut hann fyrir hana Silfurbjörn- inn á kvikmyndahátíðinni í Berlín sama ár. Voru það fyrstu verðlaunin af ótalmörgum sem Herzog hefur hlotið og hann er hvergi nærri hætt- ur, orðinn 75 ára. Herzog fæddist í München árið 1942 en ólst upp í afskekktu fjalla- þorpi í Bæjaralandi og vissi ekki af tilvist kvikmynda fyrr en hann var orðinn ellefu ára. Hann stundaði nám í sagnfræði og þýskum bókmenntum í München og Pittsburgh og var einn af fremstu kvikmyndagerðarmönn- um Nýju þýsku kvikmyndastefn- unnar, var þar í hópi manna á borð við Volker Schlöndorff og Rainer Werner Fassbinder. Þessir leik- stjórar höfðu úr litlu fjármagni að spila og einkenndist stíll þeirra af þátttöku viðfangsefna í heimildar- myndargerðarformi, sem var á sama tíma undir handleiðslu eða undir áhrifum leikstjórans sjálfs. Þessir leikstjórar áttu til að fara með við- fangsefni sín í óvæntar áttir og ögra þeim, hvetja eða brjóta niður, segir á vef RIFF. Þessi stíll var einkum áberandi í heimildarmyndum en var einnig beitt í kvikmyndum. Óbilandi þrautseigja Ein þekktasta kvikmynd Herzog, Fitzcarraldo frá árinu 1982, verður sýnd á RIFF en hún er líklega þekkt- asta dæmið um þrautseigju hans og hversu langt hann er tilbúinn að ganga þegar kemur að listrænni sköpun og sýn. Það tók um fimm ár að klára kvikmyndina sem var tekin upp í regnskógum Perú án leyfis yfir- valda. Í henni segir af ræningjabar- óninum Brian Sweeney Fitzgerald sem einsetur sér að byggja óperuhús í miðjum Amason-regnskóginum. Til að fjármagna bygginguna hyggst hann sölsa undir sig gúmmískóg en til þess þarf hann að flytja mörg hundr- uð tonna gufuskip, með aðstoð frum- byggja, yfir bratta hæð. Herzog vildi ekki beita kvikmyndabrellum við gerð myndarinnar, lét smíða tvö gufuskip og fékk aðstoð frumbyggja við að flytja annað þeirra yfir hæð í skóginum og gekk það ekki áfalla- laust fyrir sig. Fræg eru átök Her- zogs og aðalleikara myndarinnar, Klaus Kinski, á tökustað en Kinski var þekktur af æðisköstum sínum. Herzog hlaut verðlaun sem besti leik- stjórinn á kvikmyndahátíðinni í Can- nes árið 1982 fyrir kvikmyndina sem þykir mikið þrekvirki. Fjölhæfur listamaður Herzog hefur komið víða við því auk þess að skrifa handrit og leik- stýra kvikmyndum og heimildar- myndum hefur hann skrifað fjölda handrita og bóka og leikstýrt óp- erum, auk þess að bregða sér af og til í hlutverk leikara. Þannig hefur hann léð persónu í einum þáttanna um Simpson-fjölskylduna rödd sína og leikið illmenni í kvikmyndinni Jack Reacher á móti Tom Cruise. Þá hefur hann vakið athygli hin síðustu ár sem álitsgjafi og greinandi og má m.a. nefna áhugaverða greiningu hans á myndbandi við lag Kanye West, „Famous“, sem vakti mikla athygli í netheimum. Herzog hefur tvisvar verið til- nefndur til Gullpálmans, fyrir Woy- zeck árið 1979 og Where the Green Ants Dream árið 1984 og hlaut sína fyrstu Óskarsverðlaunatilnefningu árið 2007 fyrir heimildamyndina Encounters at the End of the World sem fjallar um lífið á Suðurskautinu. Ein af þekktustu heimildarmyndum hans, Grizzly Man, var frumsýnd tveimur árum fyrr og vakti hún mikla athygli fyrir efnistök Herzog en í henni segir af lífi Timothy Treadwell sem kallaður var Bjarnarhvíslarinn en hann og unnusta hans voru drepin af birni árið 2003. Starfar með Gorbatsjof „Ég fékk mjög ungur áhuga á kvik- myndagerð, 15 eða 16 ára og ég vissi að ég yrði að framleiða myndirnar líka því enginn vildi framleiða þær. Þannig að ég fór að vinna nætur- vaktir í stálverksmiðju sem logsuðu- maður en á daginn var ég í skóla,“ segir Herzog, spurður að því hvenær áhugi hans á kvikmyndagerð hafi kviknað. Þannig hafi hann safnað fé til að framleiða sínar fyrstu stutt- myndir. „Ég hef ekki stoppað síðan. Í gær og fyrradag var ég að mynda í Moskvu með Mikhail Gorbatsjof.“ – Máttu segja frekar frá því verk- efni? „Við vitum ekki enn hvert það mun leiða okkur,“ svarar Herzog. „Mér var bara boðið til Rússlands og ég greip tækifærið. En þú ert s.s. að ræða við mann sem var að mynda í Morgunblaðið/Árni Sæberg Heiðursgestur Þýski kvikmyndagerðarmaðurinn Werner Herzog. Ljónatemjari hins  Werner Herzog er einn af heiðurs- gestum RIFF Aguirre, der Zorn Gottes/ Aguirre, reiði guðanna Spænski rannsóknarrétturinn leitar að hinum goðsagnakennda El Dorado. Heill her hverfur spor- laust í frumskóginum. Saga um völd og geðbilun. Kvikmyndin er frá árinu 1972 og með aðal- hlutverk í henni fara Klaus Kinski, Helena Rojo, Del Negro, Ruy Gu- erra og Peter Berling. Fitzcarraldo Sagan um Sweeney Fitzgerald, mjög staðfastan mann sem er harðákveðinn í að byggja óp- eruhús í miðjum frumskógi. Kvik- myndin er frá árinu 1982 og með aðalhlutverk fara Klaus Kinski, Claudia Cardinale, José Lewgoy og Miguel Ángel Fuentes. Grizzly Man/Bjarnarmaðurinn Heimildarmynd frá árinu 2005. Líf „bjarnarhvíslarans“ Timothy Treadwell var flækja af eldheitum umhverfis-aktívisma, hug- myndafræðilegum hálfsannleika og hreinum og beinum lygum, segir um myndina á vef RIFF. Fimm verk eftir Herzog sýnd á RIFF Apaspil Klaus Kinski með apa í Aguirre, der Zorn Gottes.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.