Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 997 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Ákærð fyrir að fletta upp …
2. Thomas Möller fær 19 ára dóm
3. Ráðamenn lentir á Höfn
4. Gunnar Bragi hættir í Framsókn
Björn Leó Brynjarsson hefur verið
valinn nýtt leikskáld Borgarleikhúss-
ins fyrir leikárið 2017 til 2018 og tekur
hann þar með við af Sölku Guðmunds-
dóttur. Var Björn Leó valinn af leikrit-
unarsjóði Leikfélags Reykjavíkur und-
ir forystu Vigdísar Finnbogadóttur og
mun hann vinna að nýju leikriti sem
stefnt er á að verði sett upp í Borgar-
leikhúsinu leikárið 2018 til 2019.
Björn Leó lauk BA-prófi í fræðum
og framkvæmd úr leiklistardeild
Listaháskóla Íslands árið 2011 og hef-
ur meðal annars setið í stjórn Stúd-
entaleikhússins og verið stofn-
meðlimur „action“-leikhúshópsins
Cobra Kai. Þá hefur hann verið með-
höfundur og aðstoðarleikstjóri verks-
ins Petru í uppsetningu Dansaðu fyrir
mig sem sýnt var á Lókal 2014 og leik-
listarhátíðinni í Tampere 2015 og
skrifað og leikstýrt verkinu Frami árið
2015 sem sýnt var í Tjarnarbíói og
vakti mikla athygli áhorfenda og
gagnrýnenda.
Ljósmynd/Kristín Edda Gylfadóttir
Björn Leó nýtt leikskáld
Borgarleikhússins
Stefán Hilmarsson mun koma fram
ásamt Gullkistunni á Kringlukránni á
miðnætti í kvöld, laugardag.
Í tilkynningu segir að ókrýndur sál-
arkonungur Íslands ætli að stíga á
svið og syngja nokkrar sígildar perlur
svörtu sálartónlistar-
innar frá sjöunda ára-
tugnum.
Honum til halds og
trausts verða þeir
Gunnar Þórðarson,
Óttar Felix Hauks-
son, Jón Ólafs-
son og Sigfús
Örn Óttarsson.
Stefán Hilmarsson á
Kringlukránni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg vestlæg átt og úrkomulítið vestantil en snýst í suðvestan 5-10
og dregur úr úrkomu austantil í kvöld. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast sunnanlands.
Á sunnudag Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og dálítil væta á köflum. Hiti 6 til 10
stig.
Á mánudag Norðlæg átt, 5-13 m/s. Skýjað og dálítil væta austantil og með norður-
ströndinni en bjartviðri sunnan jökla. Hiti 4 til 10 stig, mildast syðst.
Frumraun íslensks félagsliðs í Evr-
ópukeppni í íshokkí reyndist Esju-
mönnum þung í Belgrad í gærkvöld.
Þeir mættu þá heimamönnum í
Rauðu stjörnunni og máttu sætta sig
við 6:1-tap. Þrátt fyrir góðan annan
leikhluta Esjumanna má segja að sú
niðurstaða hafi verið sanngjörn. Esja
mætir búlgörsku meisturunum í Bel-
grad í dag. »1
Rauða stjarnan reyndist
of sterk fyrir Esju
„Með tíð og tíma er alveg ljóst
að okkur verður bannað að
spila í Höllinni. Mannvirkið er
barn síns tíma. Stjórnarmenn í
evrópska sambandinu skilja að
við erum fámenn þjóð þótt við
séum stórþjóð í handbolta. Þeir
átta sig á því að þetta verður
ekki græjað einn, tveir og þrír.
Við höfum hingað til mætt
skilningi en þolinmæðin minnk-
ar með hverju árinu,“ segir
framkvæmdastjóri HSÍ. »4
Verður bannað að
spila í Höllinni
Reiknar með þrískiptri
deild í vetur
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Kaflaskil voru hjá Landhelgisgæsl-
unni í gær þegar Bergþór Atlason,
varðstjóri í stjórnstöðinni í Skógar-
hlíð var kvaddur og lét af störfum.
Bergþór settist nú í helgan stein eft-
ir að hafa unnið í Landhelgisgæsl-
unni frá því árið 2005 og þar áður um
áratugabil sem loftskeytamaður á
strandstöðvum Pósts og síma á
Siglufirði og í Vestmannaeyjum.
Bergþór er síðasti starfsmaður
Landhelgisgæslunnar sem er
menntaður loftskeytamaður en slíkt
nám var í boði á Íslandi frá 1918 til
1980 og hefur því enginn sérmennt-
aður loftskeytamaður útskrifast í
nærri því 40 ár. Bergþór segir nú
skilið við tæplega hálfrar aldar feril í
öryggismálum sæfarenda við Ís-
landsstrendur og segist ánægður
með störf sín. Í tilefni brottfarar
hans var kveðjuhóf haldið í stjórn-
stöðinni í Skógarhlíð þar sem boðið
var upp á bakkelsi og kaffi. Ásgrím-
ur L. Ásgrímsson, framkvæmda-
stjóri aðgerðasviðs, segir LHG þar
kveðja „góðan félaga og ötulan
starfskraft“.
„Síðustu Móhíkanarnir“
„Ég byrjaði í janúar árið 1972 að
vinna á strandstöðinni á Siglufirði
eftir að hafa verið á togara í þrjú ár,“
segir Bergþór. „Þá voru þetta marg-
ar stöðvar; á Patreksfirði, í Siglu-
firði, í Neskaupstað, Seyðisfirði,
Hornafirði og Vestmannaeyjum. Ég
vann hjá Landssímanum í 32 ár. Svo
var þessu steypt saman og sett á
einn stað hérna í Reykjavík þegar
strandstöðvarnar, Tilkynninga-
skyldan og stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar voru sameinaðar. Ég
vann á neyðarlínunni frá 2004 til
2006 en þá færði ég mig yfir til
Landhelgisgæslunnar og endaði í
Skógarhlíð. Margir af félögum mín-
um úr Landssímanum vinna núna í
flugútvarpinu hjá Isavia á Gufunesi.
Þar eru allavega fjórir eða fimm aðr-
ir menntaðir loftskeytamenn enn að
störfum. Síðustu Móhíkanarnir eins
og maður segir. Loftskeytamenn
voru allsráðandi á þessum strand-
stöðvum alveg fram á tíunda áratug-
inn en þá var farið að þjálfa mennt-
aða stýrimenn og flugmenn í starfið.
Svo þarf auðvitað tæknimenntaða
menn, en tæknikunnátta var líka
mjög mikil hérna upphaflega því við
þurftum að gera við allt sjálfir.“
Breyttir tímar
Eins og vera ber breyttist starfs-
umhverfið gríðarlega á starfsárum
Bergþórs. „Vinnan er mjög breytt.
Nú er þetta mest eftirlitsvinna með
skipum á hafinu. Við verðum að að-
stoða þyrlurnar, varðskipin og öll er-
lend skip sem fara í gegn. Áður fyrr
fór allt fram í gegnum talstöðvar en
nú er þetta eins og með flugradar-
inn; við sjáum allan flotann á skján-
um okkar. Öll skip eru með þessi
„target“ á sér. Aðeins skemmtibátar
geta sleppt því að vera með þannig
búnað en eru þess í stað með svo-
kallaðan handbúnað fyrir eftirlit. Þá
fer þetta fram í gegnum síma eða
talstöð. Það er hægt að þjálfa hvern
sem er í starfið en við þurfum samt
að vera með siglingafræðinga. Yfir-
leitt fáum við gamla stýrimenn og
flugmenn sem eru ýmist að bíða eftir
að fá að vinna aftur eða eru hættir,
eins og í Gufunesi.“
„Nú er ég orðinn fullorðinn mað-
ur,“ segir Bergþór um starfslokin.
„Ég verð sjötugur á næsta ári. Ég
ætlaði mér að vera hættur fyrir
löngu en það dróst svo alltaf. Ég hef
verið í hálfu starfi síðustu árin enda
erfiðara að vinna vaktavinnu núna.
Það var haldin flott veisla fyrir mig á
vinnustaðnum. Þar var heilmikill
fjöldi fólks sem ég hef verið að vinna
með í gegnum tíðina; bæði strákarn-
ir á flugvellinum, skipunum og fólkið
á skrifstofunni og svo margt fólk
sem ég hef kynnst á námskeiðum í
kringum starfið. Það er hefð að
kveðja fólk með svona kaffiveislu.
Ég vil bara þakka öllum sjómönnum
og öðrum fyrir samstarfið. Þetta er
ógrynni af fólki. Ég er enn að tala
við menn sem ég kynntist fyrir 30
árum; sjómenn á trillum, togurum
og flutningaskipum.“
Síðasti loftskeytamaðurinn
Bergþór Atla-
son sest í helgan
stein frá LHG
Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson
Loftskeytamaður Bergþór Atlason (í miðið) ásamt Björgólfi H. Ingasyni, aðalvarðstjóra vaktstöðvarinnar (til
vinstri), og Georg K. Lárussyni, forstjóra LHG. Bergþór var kvaddur í kaffiboði í stjórnstöðinni í Skógarhlíð í gær.
Keppni í Dominosdeild karla hefst á
fimmtudaginn kemur. Íslandsmeist-
arar KR eru að vanda líklegastir til að
vinna þann stóra. Það má búast við
því að deildin verði þrískipt í vetur.
Það eru mjög góð lið, síðan góð lið og
önnur lakari. Þetta skrifar Benedikt
Guðmundsson, körfuboltasérfræð-
ingur Morgunblaðs-
ins, sem fer yfir liðin
tólf sem leika í
deildinni og spáir
um röð þeirra. »
2-3