Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Page 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.9. 2017 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Þarf ég tilvísun?“ spurði móðirin ritara hjá sérfræðilækni þegar panta áttitíma fyrir barn í skoðun. „Nei, nei, þú þarft ekki að koma með tilvísun.Bara ef þú vilt fá tímann ókeypis, þá skaltu koma með tilvísun,“ var svarið. Líkt og það væri sérstakt áhugamál móðurinnar að „fá eitthvað ókeyp- is“ frekar en að það ætti að vera sjálfsagt. Fjöldi foreldra hefur nú rekið sig á vankanta nýs tilvísanakerfis sem tekið var í notkun í vor. Nú þarf að greiða fyrir öll möguleg læknisverk ef engin til- vísun fylgir barninu, jafnvel þótt sá læknir sem gefur út tilvísun sé mun verr í stakk búinn til þess að meta þörfina á aðstoð en sá sem vísað er til. Einhvern veginn virðast flestir, hvort sem það eru foreldrar eða læknar, upplifa þetta á sama veg: aukin skriffinnska og óþarfa læknisheimsóknir … og meira skutl og vesen sem þjónar ekki til- gangi fyrir neinn, allra síst börnin. Foreldri fór með barn sitt á bráða- móttöku í Fossvogi eftir slæmt höf- uðhögg og barnið var þar greint með heilahristing. Nokkrum vikum síðar komu heilahristingseinkenni aftur fram og eftir símtal við hjúkr- unarfræðing í Fossvogi var afráðið að fara í þetta sinn með barnið á bráða- móttöku barna á Barnaspítalanum við Hringbraut. Þar á bæ vildi læknir vera viss um að ekkert alvarlegt væri að höfði barnsins og sendi það í sneið- myndatöku af höfði. Allt leit vel út og barnið var útskrifað. Kom þá í ljós að greiða þurfti fyrir myndatökuna. Myndatöku af barn sem læknir óskaði eft- ir og framkvæmd var á spítalanum. Foreldrið spyr hvers vegna þurfi að greiða fyrir. „Af því að þú ert ekki með tilvísun. Ef þú ert með tilvísun frá heilsugæsl- unni þá færðu þetta ókeypis.“ Með öðrum orðum var ekki nóg að sérfræðilækn- irinn sem starfar á Barnaspítalanum mæti stöðuna svo að ástæða væri til myndatöku. Nei, það hefði þurft að fara fyrst á heilsugæslu (sem eins og flestir vita er ekki neinn skreppitúr) og fá heimilislækni til að segja barnalækninum, sérfræðingnum, að hann mætti hafa þá skoðun að þörf væri á myndatökunni. Hvernig það ferli getur talist „ókeypis“ er óskiljanlegt. Eitt af því sem við fáum að kjósa um eftir örfáar vikur er heilbrigðiskerfið. Allir sem tala fyrir því að minnka vesen fyrir fjölskyldur og úthýsa óþarfa skriffinnsku og kostnaði eiga atkvæði skilið. Og skilningur á orðinu ókeypis mætti gjarnan fylgja í kaupbæti. Börn eiga skilið bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Er skriffinnska og vesen ókeypis? Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Móðirin spyr hversvegna þurfi að greiðafyrir. „Af því að þú ertekki með tilvísun. Ef þú ert með tilvísun frá heilsugæslunni þá færðu þetta ókeypis.“ Jón Árnason Já, sama og síðast. SPURNING DAGSINS Ertu búin/n að ákveða hvað þú ætlar að kjósa? Claudia Schenk Ég er ekki með kosningarétt á Ís- landi en ég veit hvað ég myndi kjósa ef ég mætti kjósa. Jón Árni Sigurðsson Nei, ég er ekki búinn að ákveða, langt frá því. Ingveldur Hermannsdóttir Nei, ég er mjög óákveðin. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Hefur mikið verið um tónlist í sýningum Leikfélags Akureyrar í gegnum tíðina? Já, mjög mikið. Þegar litið er til baka finnst manni þetta vera ótölulegir söngleikir, revíur og fleira sem sett hefur verið upp. Þessir tónleikar eru því eins konar hylling afmælisbarnsins á þeim stóru tíma- mótum að ná 100 ára aldri. Spannar dagskráin öll þessi 100 ár? Það má segja að við náum nánast að bíta í bæði haus og sporð. Ævintýri á gönguför var fyrst sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 1919, og hefur verið sett að minnsta kosti þrisvar á svið, en nýjustu lögin verða úr því stórskemmtilega verki um músina Pílu pínu sem sett var upp á síðasta ári. Ég er viss um að margir áhorfenda muni vel eftir mörgum þeirra laga sem flutt verða á sýningunni í Hofi. Hún verður skemmtileg og mér finnst mjög gleðilegt að snemma var uppselt. Færð þú, Ljóti hálfvitinn og formaður LA, að syngja eitthvað sjálfur? Ég fékk reyndar óvænt að syngja eitt lag, en verð hins vegar fyrst og fremst kynnir. Fæ að líta yfir farinn veg og rifja upp eitt og annað. Með okkur verða til dæmis þrír heiðursgestir, leikararnir Saga Jónsdóttir, Sunna Borg og Gestur Einar Jónasson, sem ég mun spjalla við á sviðinu áður en brestur á með næsta lagi. Þau eru öll partur af sögu Leikfélagsins. Mér sýnist óhætt að segja að einvalalið verði þarna á sviðinu. Já, hluti Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands leikur og þarna verður mjög flott blanda af skemmtilegu listafólki, bæði evróvisjónstjörnum og heimafólki. Söngvarar eru Selma Björnsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Andrea Gylfa- dóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir og Greta Salóme Stef- ánsdóttir, sem er listrænn stjórnandi sýningarinnar. Ertu mikill áhugamaður um leikhústónlist? Já, svo sannarlega. My Fair Lady var fyrsti söngleikurinn sem ég sá og raunar fyrsta leikhúspplifunin sem ég man eftir. Ég varð beinlínis ástfang- inn af Ragnheiði Steindórsdóttur og leikritinu sjálfu þegar ég sá það hér í Samkomuhúsinu. Síðasta setning verksins er greypt í huga mér; þegar Arn- ar Jónsson dinglaði fótunum og sagði: Elísa, hvar eru inniskórnir mínir? Í minningunni er þetta frábær sýning. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ODDUR BJARNI ÞORKELSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Hyllum af- mælisbarnið Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon LA Perlur eru revíuskotnir sinfóníutónleikar sem verða í Hofi á Akureyri á laugardagskvöld. Flutt verða lög úr verkum sem Leikfélag Akureyrar hefur sýnt í 100 ára sögu félagsins. Oddur Bjarni Þorkels- son er formaður LA, kynnir og einn söngvaranna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.