Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Side 4
er og best væri ef bæði gerendur og þolendur
eineltis kæmu í skólana og töluðu við börnin.
Það myndi skila sér og verða til þess að ein-
hverjum sem líður illa og finnst þeir vanmátt-
ugir gætu haldið áfram, farið í framhaldsskóla
og tekist á við lífið, sem þeim þætti jafnvel
óhugsandi í dag. Ég þekki það vel.“
Hann segir ungmenni mjög þakklát að sjá að
þeir, sem heimsækja skólana á vegum Gróf-
arinnar, séu bara „fólk eins og aðrir“ og að eng-
inn þurfi að þykjast vera einhver annar en hann
er til að falla í hópinn. „Með því að hjálpa ung-
mennum strax erum við að skapa verðmæti og
hjálpa þeim til að vera þátttakendur í lífinu. Ef
við hlustum á þau og hjálpum minnka líkurnar á
að þau einangrist, leiti í vímuefni eða falli jafn-
vel fyrir eigin hendi.“
Dæmum ekki …
Margt jákvætt má segja um það sem starf sem
unnið er í geðheilbrigðismálum, segir Eymund-
ur, og einmitt mikilvægt að draga ekki einungis
fram hið neikvæða. Hann nefnir Grófina, Laut-
ina á Akureyri þar sem er athvarf fyrir fólk yfir
daginn, svo og mikilvæga starfsemi Búsetudeild-
ar bæjarins, Starfsendurhæfingu Norðurlands
og Virk, auk félagasamtaka og lionsklúbba sem
hafi styrkt Grófina fjárhagslega.
Eymundur segir marga sem glíma við geð-
raskanir leita í vímuefni og þess vegna þurfi að
ráðast að rót vandans; vanlíðaninni.
„Við erum öll manneskjur með tilfinningar en
stundum þurfum við hjálp til að byggja upp til-
finningarnar. Enginn ætti að þurfa að fela eigin
vanlíðan; við erum búin að missa alltof marga út
af slíkum feluleik, fólk sem hefur ekki treyst sér
til að leita sér hjálpar vegna ótta við fordóma.
Áður fyrr var geðveikt fólk bara lokað inni, en
nú er þekkingin svo mikil að hægt er að hjálpa.
Þar geta félagasamtök eins og Hugarafl og
Grófin til dæmis gert mikið gagn, bæði fyrir þá
veiku, fyrir aðstandendur og með því að sinna
forvörnum.“
Ein mikilvægustu skilaboðin út í samfélagið
séu þessi: „Dæmum ekki það sem við þekkjum
ekki en hjálpum ef við getum, þó ekki væri
nema að hlusta. Það getur gert kraftaverk.“
Líf er því miður ekki sama og líf
Líf er ekki sama og líf – því miður. Líf fólksmeð geðraskanir er enn ekki sama og lífheilbrigðra úti í samfélaginu, segir Ey-
mundur Eymundsson, fimmtugur Akureyr-
ingur sem lengi barðist við kvíða og mikla fé-
lagsfælni.
Eymundur segir að þótt mikið hafi breyst á
síðustu árum sé enn langt í land. „Maður skyldi
ætla að allir gerðu sér grein fyrir því að höfuðið
er hluti líkamans, en stundum virðist svo ekki
vera,“ segir Eymundur. „Sjúkdómur sem á
upptök inni í höfðinu og er ósýnilegur er ekki
jafn viðurkenndur og aðrir. Það er mikið talað
um ástandið á Landspítalanum en hér á Ak-
ureyri þarf líka að setja meiri peninga í geðdeild
sjúkrahússins; hér þarf að efla starfið eins og
víða annars staðar á landsbyggðinni. Það geng-
ur ekki að fólki í sjálfsvígshættu sé vísað í
burtu. Hjartveikur maður eða fótbrotinn lendir
ekki í því af þeirri ástæðu að vegna fjárskorts
séu deildir ekki alltaf opnar.“
Höfum bjargað mannslífum
Eymundur hefur verið áberandi í umræðu um
geðraskanir undanfarin misseri. Hann stofnaði
ásamt fleirum Grófina, geðverndarmiðstöð á
Akureyri, haustið 2013 og segir starfið þar hafa
bjargað mannslífum.
„Við þurftum ekki að finna upp hjólið. Ég
starfaði áður með Hugarafli í Reykjavík og við
erum með svipað módel hér. Á Akureyri voru
ekki starfandi félagasamtök vegna geð-
sjúkdóma á þessum tíma; dagdeild geðdeildar
var lokað 2009 en tveimur árum síðar hófu fag-
menn og notendur þjónustunnar að hittast og
Grófin varð til í framhaldi af því.“
Best væri, segir Eymundur, að hann þyrfti
ekki að tala jafn mikið um geðraskanir og raun
ber vitni. „Ég vildi helst að ég þyrfti ekki að
segja mína sögu heldur gæti lifað lífinu eins og
hver annar, en ég gekk í gegnum þetta og lifði
af, sem var ekki sjálfgefið. Mér finnst nauðsyn-
legt að samfélagið vakni til lífsins; að meiri pen-
ingar verði settir í forvarnir og starfsemi geð-
deilda. Geðraskanir eru svo langt á eftir öðrum
sjúkdómum og við höfum misst svo marga að ég
verð að segja frá.“
Eymundur segir forvarnir gífurlega mikil-
vægar og í raun spara mikið fé. „Hvað kostar
mannslíf? Auðvitað kosta forvarnir, en þeim
peningum er vel varið og spara mikið í framtíð-
inni. Það var ótrúlegt þegar í ljós kom um dag-
inn að Hugarafl ætti að fá lægri styrk frá ríkinu
en áður. Þetta er spurning um örfáar milljónir!
Ráðamenn verða að kynna sér hvað þessi fé-
lagasamtök eru að gera og verða að setja meiri
peninga í málaflokkinn. Það þarf að bera meiri
virðingu fyrir fólki sem hefur gengið í gegnum
þessa erfiðleika, hlusta betur á það og forgangs-
raða rétt.“
Hann segir mikla forvörn í því að fólk sem
hefur glímt við geðraskanir tjái sig. Hefur til
dæmis sjálfur, í félagi við fleiri, farið í alla
grunnskóla á Akureyri og nágrenni síðustu ár
og rætt við bæði kennara, annað starfsfólk og
nemendur. Gestirnir hafa í öllum tilfellum fund-
ið fyrir miklu þakklæti.
„Fólk sem hefur glímt við geðraskanir er
vanmetinn hópur og getur nýst vel í að byggja
upp samfélagið með því að miðla af reynslu
sinni. Við höfum farið í 9. bekk og krakkarnir
grípa vel það sem við segjum og spyrja mikið.
Mér finnst að þau ættu að vinna markvisst að
ýmiskonar verkefnum í kjölfarið og meiri sam-
fella ætti að vera í þessum málum í skólakerf-
inu. Ekki bara að einhver komi og fari.“
Alkunna er að miklu meiri líkur eru á að börn
sem líður illa verði fyrir einelti en önnur. „Þess
vegna er svo mikilvægt að fræða börnin. Fæst
þeirra gera sér í raun grein fyrir því hvað einelti
Eymundur við leiði móður sinnar, Mar-
grétar Halldórsdóttur, í Lögmannshlíðar-
kirkjugarði. Hún lést fyrir réttu ári, 24.
september 2016. Eymundi líður sjaldan
betur en þegar hann vitjar leiðis móður
sinnar á þessum kyrrláta fallega stað.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eymundur Eymundsson þjáðist frá unga aldri af miklum
kvíða og síðar félagsfælni. Eftir að hann áttaði sig á því hvers
kyns var, 38 ára gamall, hefur Eymundur unnið ötullega að
því að aðstoða fólk með geðraskanir og sinna forvörnum.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.9. 2017
„Ég var með sjálfsvígshugsanir nær
daglega frá 12 ára til 38 ára aldurs,“
segir Eymundur Eymundsson. „Ég
byrjaði að finna fyrir ótta og hræðslu
þegar ég byrjaði í grunnskóla og átti
erfitt með að læra og einbeita mér. Ég
var samt í íþróttum og skák en leið
aldrei vel og hafði lítið sjálfstraust. Ég
kveið fyrir því að mæta í skólann og á
íþróttaæfingar eða spila leiki og vera í
skák. Ég var hræddur um að ef ég segði
frá minni líðan yrði hlegið að mér.“
Eymundur lék fótbolta með Þór upp
í meistaraflokk en seinna með Magna á
Grenivík og fylgist enn vel með þó ekki
geti hann leikið sér lengur í fótbolta
vegna slitgigtar. „Ég leit út fyrir að fun-
kera félagslega en eftir að ég varð
fimmtán eða sextán ára fór ég aldrei
með félögum í bíó eða mannamót
nema undir áhrifum. Ég leitaði í áfengi
til að deyfa mig eða drekka í mig kjark,
sem ég mæli ekki með; slíkur flótti frá
raunveruleikanum er mjög algengur
hjá fólki sem glímir við félagsfælni.“
Eymundur fagnar sigri sinna manna í liði
Magna á Grenivík síðastliðið sumar.
Hræddist að
yrði hlegið
’
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október. Eymundur
Eymundsson segir að það skref að koma í Grófina,
geðverndarmiðstöð á Akureyri, hafi rofið mikla félagslega ein-
angrun hjá mörgum. Á staðnum deili fólk reynslu sinni og veiti
von. Um 20 manns koma í Grófina daglega að hans sögn.
INNLENT
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is