Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Qupperneq 12
BETRUN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.9. 2017 S taða fólks sem situr inni fyrir afbrot er þannig að það þarf oft mikla aðstoð við að vinna í því að verða betri þjóðfélagsþegnar. Betrun þýðir þá að horfast í augu við glæp sinn, taka ábyrgð á gjörðum sínum og verða ólíklegri til að brjóta af sér aftur. Betrun á sér þó ekki bara stað innan fangelsis heldur skiptir máli hvernig samfélagið tekur á móti brotamönnum, að þeir geti aðlagast samfélaginu en upplifi sig ekki sem ótínda glæpa- menn sem eiga sér hvort sem er engrar viðreisnar von, og geti því allt eins haldið áfram í glæpunum. Verulega skortir á stuðn- ing til að brotamenn geti eignast líf víðsfjarri glæpum en eins og staðan er núna er það sama fólkið sem er aftur og aftur að brjóta á borgurunum. Um leið telja sérfræðingar að lang- stærstur meirihluti brotamanna vilji vera staddur annars stað- ar í lífinu. Þann vítahring virðist vera erfitt að stöðva. Hindranir í vegi betrunar Í íslenskum fangelsum afplána brotamenn mislanga dóma af mismunandi toga. Stærstur hluti þeirra á það þó sameiginlegt að langa til að vera staddir annars staðar og mjög stór hluti er ekki viss um að annað bíði þeirra en frekari glæpir. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Fangavist þarf að hafa innihald og það erakkúrat það sem vantar í fangelsiskerfiðhjá okkur. Þar af leiðandi eru þetta meira eins og geymslur en betrunarstofnanir,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Af- stöðu, félags fanga á Íslandi, en sjálfur afplánar hann á Kvíabryggju. „Hver og einn sem kemur í fangelsi er með einhvers konar vandamál, raskanir, félagslegan vanda og svo framvegis og það þarf að gera per- sónulega vistunaráætlun fyrir hvern og einn. Það er tilfinning manns að fleiri en færri fari í gegnum fangavist án þess að hitta nokkurn tím- ann sálfræðing, þrátt fyrir að hafa jafnvel beðið um það. Það eru margir sem vilja aðstoð til að vinna í sínum málum en fá hana ekki. Og einnig margir sem þurfa aðstoð en vilja hana ekki en þeir ættu samt að fá hana líka.“ Hvað telur þú mikilvæga þætti til að stuðla að betrun fanga? „Fjölskyldutengsl og styrkingu fjölskyldu- banda, verknám og starfsþjálfun, meðferðir og annað í þeim dúr. Námið finnst mér hvorki fugl né fiskur. Það eru jú ákveðin grunnfög sem þú getur farið í en þú kemst aldrei neitt áfram með námið í gegnum fangelsi. Okkur vantar að fang- elsin semji við vinnustaði og fræðslumiðstöðvar um að hanna hvers konar minni og styttri nám- skeið sem veita til dæmis fagréttindi. Hópurinn sem er í fangelsi er kannski ekki beint hópurinn sem er sterkur í bóklegu námi og það er það eina sem kennt er í fangelsunum í dag. Þarna eru rangar áherslur.“ Viðmót samfélagsins mismunandi Guðmundur Ingi segir sveitarfélögin hafa brugðist í þessum málum; að taka vel á móti fólki að lokinni afplánun. Fangar séu geymdir á stað þar sem ekkert er um að vera og það sé erf- itt að koma út eftir þá dvöl. Þeir endi á fé- lagslegri framfærslu til lengri tíma eða alla ævi og stór hluti heldur áfram í glæpum, sem kosti alla alveg ofboðslega peninga. „Viðmót samfélagsins gagnvart föngum er mismunandi og fer eftir anda samfélagsins hverju sinni. Mér finnst það þó hafa verið að lagast. Fólk er að átta sig á að það græða allir á að unnið sé að betrun brotamanna. Nú hefur mikið verið rætt um uppreist æru fyrrverandi fanga og sú umræða fór úr góðri baráttu gegn barnaníði í almennar nornaveiðar. Þetta hefur mikil áhrif á alla andlega sem sitja af sér dóm. Ég hef fengið mikið af símtölum og tölvupóstum frá föngum, fyrrverandi föngum og aðstand- endum þeirra. Fólk er hrætt um að missa það góða sem það hefur byggt upp; í tengslum við þetta horfir það upp á að geta ekki unnið við það sem það hefur kannski lært og elskar. Á sama tíma er ég alveg sammála að það þarf að breyta þessu fyrirbæri, uppreist æru, þar sem fólk skilar inn meðmælabréfum sem segja í raun ekki neitt. En manni finnst skrýtið að fólk einblíni á að brotamenn fái ekki uppreist æru en sé sama þótt meðferðum fyrir kynferðisbrota- menn sé svona ábótavant og menn komi út eins eða jafnvel verri.“ Misskilningur hvað betrun er Guðmundur Ingi upplifir það að raunverulegur áhugi stjórnvalda á málaflokknum sé lítill. „Al- vöru betrunarstefna fækkar endurkomum í fangelsin, minnkar kostnað lögreglu, dómstóla, heilbrigðiskerfisins og almannatrygginga auk þess að fækka brotaþolum. Ef við komum heil út getum við unnið og farið að borga skatta og allir vinna. En það gætir hreinlega mikils misskiln- ings um hvað betrun er. Stjórnvöld telja að opin fangelsi, rafrænt ökklaband og samfélagsþjón- usta séu betrun en það er misskilningur. Þrepa- kerfið gerir ekkert gagn ef fangelsisvistin er innihaldslaus og byggir einstaklinginn ekki upp, svo við komum ekki út og verðum hornreka í samfélaginu. Fangelsisyfirvöld þurfa líka að upplýsa hvað er um að vera í fangelsunum og fræða stjórnvöld um hvað best er að gera hverju sinni. Við erum svo lítið land að það er hægt að gera þetta betur. Við erum með umgjörðina fyr- ir betrun en það vantar sérfræðiþekkinguna, of fáir vita um hvað hún snýst. Ég sæi fyrir mér að sú þekking gæti líka komið að utan því hún er mun meiri erlendis og við getum ekki verið það stolt að halda að við getum gert allt best sjálf.“ Meiri geymsla en betrun Formaður félags fanga á Íslandi telur íslenska fangelsisvist innihaldslitla. Fanga skorti tækifæri til að betrumbæta sig. „Það eru margir sem vilja aðstoð til að vinna í sínum málum en fá hana ekki,“ segir Guð- mundur Ingi Þóroddsson. ’Nú hefur mikið verið rættum uppreist æru fyrrverandifanga og sú umræða fór úr góðribaráttu gegn barnaníði í al- mennar nornaveiðar. Þetta hefur mikil áhrif á alla andlega sem sitja af sér dóm. Ég hef fengið mikið af símtölum og tölvu- póstum frá föngum, fyrrverandi föngum og aðstandendum þeirra.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.