Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Síða 40
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2017
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LAUGARDAG, SUNNUDAG
&MÁNUDAG
25%
AF ÖLLUM
VÖRUM
GOCRAZY
GILDIR EKKI UM VÖRUR Á ÁÐUR
NIÐURSETTU VERÐI
Til að Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík gangi sem skyldi starfa
um 70 sjálfboðaliðar við undirbún-
ing og framkvæmd hennar. Í ár var
farin sú leið að hafa samband við
Félag eldri borgara sem auglýsti
eftir sjálfboðaliðum gegnum vef
sinn. Viðbrögðin voru góð og fimm
sjálfboðaliðar koma úr hópi ís-
lenskra eldri borgara, en annars
eru sjálfboðaliðarnir mikið til ungt
fólk sem jafnvel kemur erlendis frá
til að starfa við hátíðina.
Verkefni sjálfboðaliðanna eru af
ýmsum toga, allt frá prófarkalestri
yfir í miðasölu og símsvörun. Þeir
eru nokkurs konar allsherjar redd-
arar og því vel við hæfi að fá fólk
með reynslu af lífinu til starfa.
Júlíana Pálsdóttir starfaði til
margra ára við innritun farþega og
uppgjör hjá Flugfélagi Íslands og
Flugleiðum en er nú hætt að vinna.
„Ég varð sjötug í sumar og langaði
að gera eitthvað. Það vakti áhuga
minn að fylgjast með hvernig svona
hátíð færi fram. Svo kynnist maður
mörgu fólki. Þetta er eins og að
vera komin til útlanda því hér tala
allir ensku. En það er bara fínt,
maður er þá ekki heima að rolast á
meðan,“ segir Júlíana.
Guðbjörg Betsy Petersen er
lærður gullsmiður og auk þess upp-
eldis- og menntunarfræðingur en
hætt störfum. „Þetta er nú bara
forvitni fyrst og fremst,“ segir hún
spurð að því hvað rak hana til að
gerast sjálfboðaliði hjá RIFF.
„Maður þarf alltaf að halda hausn-
um á sér í lagi. Þá fer maður ann-
aðhvort á námskeið eða gerir eitt-
hvað svona sem maður hefur ekki
gert áður. Þetta er svo gaman,
margir ungir krakkar að vinna við
hátíðina sem er gaman að kynnast,“
segir Guðbjörg en hvorug þeirra
segist vera sérstaklega mikið fyrir
bíó. Sjálfboðaliðastarfið snúist
meira um að prófa eitthvað nýtt og
hafa nóg fyrir stafni. RIFF stendur
frá 28. september til 8. október og
má nálgast dagskrá og kaupa miða
á www.riff.is.
Eldri borgarar bjarga RIFF
Auglýst var eftir
sjálfboðaliðum til starfa
fyrir RIFF á vef Félags
eldri borgara.
Guðbjörg og Júlíana vilja báðar hafa
nóg að gera og voru fljótar að bjóða
sig fram þegar kallað var eftir eldri
borgurum til starfa við RIFF.
Kadri Vaas skipuleggur starf
sjálfboðaliðanna á RIFF. Hér er
hún með sjálfboðaliðunum
Margréti Sigurðardóttur,
Guðbjörgu Betsy Petersen og
Júlíönu Pálsdóttur.
Morgunblaðið/Golli
Fréttaritari Morgunblaðsins í
Neskaupstað skrifaði frétt af
flóttakind í nóvember 1970.
Fréttin byrjar á þeim orðum að
rollur séu í sjálfu sér ekki stór-
merkilegar skepnur en því bætt
við að rollan sem fjallað sé um í
fréttinni sé sannarlega stór-
merkileg. „Hún tapaðist árið
1964 og kom ekki fram í göng-
um fyrr en árið 1968. Þá náðist
hún og var í fjórum reifum.
Eigandinn, Ragnar Ágústsson,
sagðist hafa tekið af kindinni 10
kg af ull. Sama ár um haustið
slapp hún úr girðingu, og náðist
ekki fyrr en nú í haust, og var þá
með þessa myndarlegu gimbur.
Hefur ær þessi allan þennan
tíma gengið í Norðfjarðarhorni.
Í fyrra sáust þar um 19 kindur,
en aðeins þessi eina kom nú
fram. Voru hún og lambið afar
stygg og erfitt að komast að
þeim, sem þó tókst.
Ekki vildi eigandinn setja
þessa frægu á aftur á í haust og
var henni lógað ásamt lambinu.
Vó skrokkur ærinnar um 40 kg
og lambið 26 kg og er það
óvenjumikill fallþungi.“
GAMLA FRÉTTIN
Merkileg
flóttakind
Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti. Flóttakindin er ekki á myndinni.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Gaspard Ulliel
leikari
Alain Delon
leikari
Gísli Örn Garðarsson
leikari og leikstjóri