Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Page 2
Við hverju megum við búast á tónleikunum?
Það verður mikið fjör og gleði. Þetta verður ferðalag til Smá-
landanna í Svíþjóð þar sem við fáum að njóta alls hins besta
frá Astrid Lindgren og síðast en ekki síðst, dásamlegrar tón-
listar.
Átt þú þér uppáhalds-ævintýri
eftir Astrid Lindgren?
Það er mjög erfitt að velja eitthvað eitt því öll ævintýrin eru
góð. En Bróðir minn Ljónshjarta er samt besta bók sem
hefur verið skrifuð.
Áttu þér eftirlætispersónu, sem þú
tengir sérstaklega við, úr ævintýrunum?
Það eru Lotta í Ólátagarði og Lína Langsokkur. Þær fylgja
ekki alltaf reglunum sem eru í samfélaginu okkar heldur
hlusta þær á hjartað og tilfinningarnar og þannig uppskera þær
stórkostleg ævintýri.
Hvað er það skemmtilegasta
við að leika í barnasýningu?
Einlægnin og viðbrögðin sem maður fær frá börnunum. Börn eru
ekki með eins miklar hömlur og við fullorðna fólkið, þannig að mað-
ur finnur svo ríkulega fyrir þeim.
Hvað er framundan hjá þér í vetur?
Ég er í Borgarleikhúsinu núna að leika í 1984. Svo er ég að fara að
æfa íslenska barnasýningu, Skúmaskot, sem er nýtt verk eftir Sölku
Guðmundsdóttur. Síðan fer ég í Rocky Horror í mars. Þannig að þetta
er mjög fjölbreyttur og spennandi vetur framundan.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÞÓRUNN ARNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Nýr dagur færir nýtt upphaf. Nýjar kosningar hljóta að geta fært okk-ur nýtt upphaf líka. Í það minnsta eru þingkosningar í lok októbertækifæri til að byrja upp á nýtt. Þess vegna þurfum við að leggja við
hlustir, meta það sem stjórnmálamenn segja og móta okkur sýn á það hvað
við viljum fá út úr okkar atkvæði, okkar tækifæri til að hafa áhrif.
Oft fallast manni hreinilega hendur, ekki síst í ljósi þess að það voru jú
kosningar síðast fyrir ári. Það er því ákveðin hætta á að kjósendur sleppi því
að mæta á kjörstað í einhvers konar uppgjöf. Hugsunin sem ræður för verð-
ur þá kannski „æ-skiptir-þetta-
nokkru-máli-hvort-sem-er?“
Sá þankagangur er skiljanlegur
eftir rót síðustu ára í stjórnmálum
hér á landi. En hann er hins vegar
ekki gagnlegur. Það að kjörsókn
verði dræm hjálpar engum, hvorki
kjósendum né frambjóðendum. Lýð-
ræðið hlýtur að virka best ef sem
flestir taka þátt, það eiginlega segir
sig sjálft. Leti er því ekki í boði á
kjördag.
Verst er, fyrir okkur kjósendur,
að það virðist háttur stjórnmála-
manna að vera alltaf upp á sitt allra
besta síðustu vikur fyrir kosningar. Þá er splæst í fallegra bros, stærri loforð
og almennt meiri gæði en aðrar vikur. Svona eins og maður setur inn magann
og heldur honum inni rétt á meðan jólamyndin er tekin en slakar svo á þegar
búið er að smella af … og jafnvel hneppir frá.
Verkefni okkar kjósenda er ærið. Við þurfum að sjá í gegnum glansmynd-
irnar, koma auga á það hvaða loforð er raunverulega hægt að efna og móta
okkur skoðun á því hverjum við treystum fyrir stjórn landsins.
Hver og einn þarf að gera upp við sig hvernig ákvörðunin um það hverjum
skal greitt atkvæði er tekin. En hana þarf að taka, því við viljum styrkja lýð-
ræðið en ekki draga úr því. Ísland er lítið land og það ættum við að nýta okk-
ur í aðdraganda kosninga. Hvort sem við búum í þéttbýli eða dreifbýli þá ætti
ekki að vera svo flókið að hitta frambjóðendur í eigin persónu eða að minnsta
kosti hlusta á þá. Það er miklu erfiðara að líta vel út á fundi með alvöru fólki
sem spyr spurninga heldur en í stuttu viðtali eða á fallegri kosningamynd
sem myndi sóma sér vel á jólakorti. Kjósendur, við skulum hitta þá sem eru í
framboði og spyrja þá spjörunum úr … af nógu er að taka, svo mikið er víst.
Prúðbúnir stjórnmálamenn
í sjónvarpsútsendingu fyrir
kosningarnar 2016.
Morgunblaðið/RAX
Leti er í boði hina
364 daga ársins
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Verst er, fyrir okkurkjósendur, að það virðist háttur stjórnmála-manna að vera alltaf upp
á sitt allra besta síðustu
vikur fyrir kosningar.
Hallbjörg Embla
Sigtryggsdóttir
Nei, meira svona að jólaprófunum.
SPURNING
DAGSINS
Ertu farin/n
að huga að
jólunum?
Grímur Örn Grímsson
Nei, ekki enn sem komið er.
Morgunblaðið/Ásdís
Dóra Jóhannsdóttir
Nei, ég er ekki jólabarn. Ég ætla til
útlanda um jólin.
Hafþór Ari Gíslason
Hver er það ekki?
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Laugardaginn 30. september verða haldnir tvennir Astrid
Lindgren-tónleikar í Hörpu. Leikararnir Þórunn Arna og
Sigurður Þór bregða sér í hlutverk sögupersóna og færa
þannig sagnaheim Lindgren inn í Eldborg ásamt Sinfóníu-
hljómsveitinni og Kór Kársnesskóla.
Fjörugt
ferðalag til
Smálandanna