Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017
’
Hún var ekki bara besta mamman sem
börnin hennar hefðu geta fengið heldur var
hún besti vinur barnanna sinna og alltaf til
staðar fyrir þau.
INNLENT
EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is
Sanita Brauna kom í heiminn 14.október 1972 og hefði orðið 45ára gömul eftir hálfan mánuð.
Þeim áfanga nær hún þó ekki því
henni var ráðinn bani í árás á heimili
sínu á Hagamel fyrir rúmri viku,
fimmtudagskvöldið 21. september.
Sanita Brauna var fædd og uppal-
inn í bænum Ventspils sem er hafn-
arbær vestast í Lettlandi. Hún á eina
systur, Vigritu, sem er fjórum árum
eldri. Foreldrar Sanitu eru Vilnis og
Skaidrîte Brauna og börn hennar
þrjú heita Sendija 25 ára, Ketija 20
ára og Renjis 15 ára. Dæturnar eru
farnar að heiman og Senija er gift, en
Renjis býr hjá föður þeirra, Janis.
Sanita lærði á fiðlu og söng lengi í
kirkjukór í Ventspils enda með fal-
lega sópranrödd að sögn fjölskyld-
unnar, sem deildi ýmsum upplýs-
ingum um líf hennar og störf með
blaðamanni.
„Hún var góðhjörtuð og blíð og
sýndi fólki alltaf væntumþykju og
var til í að hjálpa öllum sem þurftu.
Hún var full af bjartsýni jafnvel þótt
á móti blési.
Sanita var einstök móðir. Hún var
ekki bara besta mamman sem börnin
hennar hefðu getað fengið heldur var
hún besti vinur barnanna sinna og
alltaf til staðar fyrir þau.“
Sanita var kennaramenntuð og
auk þess með próf í viðskiptafræði.
Hún hafði gaman af ferðalögum og
vildi kanna heiminn utan Lettlands,
þar sem hún bjó mestalla tíð. Hún
hafði starfað í Bretlandi, Belgíu og
Hollandi á síðustu árum áður en
hún kom til Íslands en að sögn fjöl-
skyldunnar var hjarta hennar alltaf
í Lettlandi hjá sínum nánustu.
Hennar er sárt saknað
Sanita átti auðvelt með að eignast
vini og að sögn þeirra sem þekktu til
hennar var hún einstaklega opin
manneskja og gaf mikið af sér í
samskiptum með hlýju og bros-
mildi.
„Það er svo mikilvægt þegar
svona mikill harmleikur á sér stað
að muna líka hver manneskjan var,“
segir Halla Guðrún Jónsdóttir, sam-
starfskona Sanitu Brauna, en hún
og Melkorka Ragnhildardóttir, önn-
ur samstarfskona, settust niður með
blaðamanni til að segja frá vinkonu
sinni Sanitu sem var þeim afar kær.
„Hennar er sárt saknað og þetta
var mikið áfall fyrir alla sem unnu
með henni,“ segir Melkorka.
„Það má segja að hún hafi verið
límið í hópnum. Hún hafði þroska til
að ræða við fólk. Ræddi alltaf við
fólk á góðum nótum. Ef einhver
ágreiningur kom upp þá var hún
alltaf fengin sem sáttasemjari,“ seg-
ir Halla.
Á vinnustaðnum eru aðeins tólf
starfsmenn en þær segja hópinn
þéttan. Öllum hafi líkað vel við San-
itu enda hafi hún lagt sig fram um
að kynnast fólki sem hún starfaði
með. Alltaf ef hópurinn hittist utan
vinnu þá mætti Sanita og smitaði frá
sér jákvæðni og gleði.
„Hún var mikil mamma í sér. Hún
tók alltaf utan um fólk og aðstoðaði,
til dæmis ef einhverjir komu nýir til
vinnu. Þótt það væri ekki endilega í
hennar verkahring þá gerði hún það
samt, það var í hennar eðli. Hún var
hvetjandi og sá alltaf það jákvæða í
hlutunum. Hún talaði mjög mikið um
börnin sín og auðvitað saknaði þeirra
oft,“ segir Halla.
Samstarfsfólk Sanitu
fékk áfallahjálp
Þegar fregnaðist að Sanita hefði ver-
ið myrt segir Melkorka að þau hafi
þurft að hafa hraðar hendur til að ná
að tilkynna starfsfólki andlátið áður
en það færi í alla fjölmiðla.
„Við hlupum til á föstudeginum og
reyndum að tilkynna öllum sem
þekktu hana persónulega um það
sem hafði gerst. Á laugardeginum
fengum við svo aðstoð fagaðila í
áfallahjálp. Sálfræðingur og sér-
fræðingur í áfallaviðbrögðum komu
og sátu með okkur og við fengum að
tala, deila sögum af henni og góðum
minningum.“ Haldin var nokkurs
konar minningarstund og samstarfs-
fólk hennar, sem margt var orðið að
góðum vinum Sanitu, gat komið sam-
an og minnst hennar.
„Við áttum erfitt með að tengja
eitthvað svona hrikalegt við svona
yndislega manneskju,“ segir Halla.
Sanita Brauna flutti fyrst til Ís-
lands í fyrra og starfaði þá á hóteli
úti á landi. Hún fór svo heim til Lett-
lands um jólin en kom aftur hingað
til lands í febrúar og vildi þá reyna
að fyrir sér í borginni. Hún fékk
fljótt vinnu og var afar ánægð í starfi
við þrif á íbúðahóteli í miðborginni.
Hún var á leið í frí þegar hún lést og
átti pantað flug síðastliðinn sunnu-
dag heim til Lettlands að hitta börn
sín og fjölskyldu. Að loknu mánaðar-
fríi hugðist hún snúa aftur til Ís-
lands.
Fyrst og fremst ólýsanleg
sorg fyrir börn hennar
Einn af þeim fyrstu sem Sanita
kynntist hér á landi þegar hún kom
fyrst árið 2016 var Akeem Cujo Op-
pong. Hann segir að henni hafi þótt
ævintýri að koma til Íslands, hér hafi
hún upplifað mikið frelsi og verið
hrifin af náttúrunni.
„Ég er enn að átta mig á því að
þetta hafi gerst. Ég er mjög reiður
og sár. En fyrst og fremst er þetta
ólýsanleg sorg fyrir börnin hennar.
Hún talaði við þau á hverjum degi.
Sanita var mjög skemmtileg kona,
hún var friðarstillir og vildi ekki rifr-
ildi eða átök við fólk. Hún var mjög
opin manneskja, fordómalaus og
tilbúin að hjálpa öllum. Hún var dug-
leg og vildi vinna mikið til að geta
safnað peningum svo hún gæti
styrkt börnin sín til náms.“
Útför Sanitu Brauna fer fram
fimmtudaginn 5. október.
Sanita Brauna lætur eftir sig þrjú börn og foreldra. Hún var ánægð í starfi sínu og
stefndi á að koma aftur til Íslands eftir frí í Lettlandi sem hefjast átti í vikunni.
Smitaði frá sér jákvæðni
Sanita Brauna var eins og mamma allra á vinnustaðnum sínum, hún var sáttasemjari þegar þess þurfti og mætti alltaf þegar
starfsfólkið hittist utan vinnu. Hún var lífsglöð og vinnufélagar segjast margt geta lært af viðhorfi hennar til lífsins sem
einkenndist af þakklæti og jákvæðni. Sanita lét sér annt um fólk og kom vel fram við alla. Fjölskyldan segir hana hafa gert allt
fyrir börnin sín þrjú og hjartað hafi alltaf verið í Lettlandi. Stofnaður hefur verið stuðningsreikningur fyrir fjölskyldu hennar.
Steinar Geir Agnarsson, Melkorka Ragnhildardóttir, Halla Guðrún Jónsdóttir,
Sanita Brauna, Andrea Björnsdóttir, Elisa Maccagnoni, Klaudia Jakubowska og
Ibolya Nagy á leið í óvissuferð hótelsins sem reyndist vera hestaferð.
Dæturnar Ketija og Sendija með bróður sínum Renijs ásamt ömmu sinni og
afa, Vilnis og Skaidrîte, foreldrum Sanitu. Myndin er tekin um jól fyrir nokkru.
Sanita naut þess að skoða nátt-
úruna. Hér er hún í hellaferð.
Sanita Brauna ólst upp í bænum
Ventspils í Lettlandi.
Fjölskylda Sanitu Brauna fær
mikinn stuðning víða að á
þessum erfiðu tímum að sögn
Sigurðar Freys Sigurðssonar
sem tilnefndur hefur verið
réttargæslumaður barna
hennar og foreldra.
„Þetta er fjárhagslega
þungt fyrir þau að koma hing-
að til lands,“ segir hann en
fjölskyldan er væntanleg til Ís-
lands í næstu viku. „Fjöl-
skyldan hefur fengið góða að-
stoð. Það eru allir af vilja
gerðir að aðstoða þau eftir
fremsta megni.“
Samstarfsfólk hennar og
vinir hér á landi stóðu fyrir því
að stofnaður yrði söfnunar-
reikningur fyrir fjölskylduna
svo fjárhagsáhyggjur þurfi
ekki að íþyngja þeim ofan á
sorgina.
SÖFNUNARREIKNINGUR
rn. 0140 - 26 - 001053
kt. 670812 - 1540
Öll framlög sem lögð eru
inn á þennan fjárvörslureikn-
ing, sem hýstur er hjá lög-
fræðistofunni Land lögmenn,
renna beint til barna Sanitu.
Söfnun fyrir
fjölskylduna