Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017 ’ Hún var ekki bara besta mamman sem börnin hennar hefðu geta fengið heldur var hún besti vinur barnanna sinna og alltaf til staðar fyrir þau. INNLENT EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is Sanita Brauna kom í heiminn 14.október 1972 og hefði orðið 45ára gömul eftir hálfan mánuð. Þeim áfanga nær hún þó ekki því henni var ráðinn bani í árás á heimili sínu á Hagamel fyrir rúmri viku, fimmtudagskvöldið 21. september. Sanita Brauna var fædd og uppal- inn í bænum Ventspils sem er hafn- arbær vestast í Lettlandi. Hún á eina systur, Vigritu, sem er fjórum árum eldri. Foreldrar Sanitu eru Vilnis og Skaidrîte Brauna og börn hennar þrjú heita Sendija 25 ára, Ketija 20 ára og Renjis 15 ára. Dæturnar eru farnar að heiman og Senija er gift, en Renjis býr hjá föður þeirra, Janis. Sanita lærði á fiðlu og söng lengi í kirkjukór í Ventspils enda með fal- lega sópranrödd að sögn fjölskyld- unnar, sem deildi ýmsum upplýs- ingum um líf hennar og störf með blaðamanni. „Hún var góðhjörtuð og blíð og sýndi fólki alltaf væntumþykju og var til í að hjálpa öllum sem þurftu. Hún var full af bjartsýni jafnvel þótt á móti blési. Sanita var einstök móðir. Hún var ekki bara besta mamman sem börnin hennar hefðu getað fengið heldur var hún besti vinur barnanna sinna og alltaf til staðar fyrir þau.“ Sanita var kennaramenntuð og auk þess með próf í viðskiptafræði. Hún hafði gaman af ferðalögum og vildi kanna heiminn utan Lettlands, þar sem hún bjó mestalla tíð. Hún hafði starfað í Bretlandi, Belgíu og Hollandi á síðustu árum áður en hún kom til Íslands en að sögn fjöl- skyldunnar var hjarta hennar alltaf í Lettlandi hjá sínum nánustu. Hennar er sárt saknað Sanita átti auðvelt með að eignast vini og að sögn þeirra sem þekktu til hennar var hún einstaklega opin manneskja og gaf mikið af sér í samskiptum með hlýju og bros- mildi. „Það er svo mikilvægt þegar svona mikill harmleikur á sér stað að muna líka hver manneskjan var,“ segir Halla Guðrún Jónsdóttir, sam- starfskona Sanitu Brauna, en hún og Melkorka Ragnhildardóttir, önn- ur samstarfskona, settust niður með blaðamanni til að segja frá vinkonu sinni Sanitu sem var þeim afar kær. „Hennar er sárt saknað og þetta var mikið áfall fyrir alla sem unnu með henni,“ segir Melkorka. „Það má segja að hún hafi verið límið í hópnum. Hún hafði þroska til að ræða við fólk. Ræddi alltaf við fólk á góðum nótum. Ef einhver ágreiningur kom upp þá var hún alltaf fengin sem sáttasemjari,“ seg- ir Halla. Á vinnustaðnum eru aðeins tólf starfsmenn en þær segja hópinn þéttan. Öllum hafi líkað vel við San- itu enda hafi hún lagt sig fram um að kynnast fólki sem hún starfaði með. Alltaf ef hópurinn hittist utan vinnu þá mætti Sanita og smitaði frá sér jákvæðni og gleði. „Hún var mikil mamma í sér. Hún tók alltaf utan um fólk og aðstoðaði, til dæmis ef einhverjir komu nýir til vinnu. Þótt það væri ekki endilega í hennar verkahring þá gerði hún það samt, það var í hennar eðli. Hún var hvetjandi og sá alltaf það jákvæða í hlutunum. Hún talaði mjög mikið um börnin sín og auðvitað saknaði þeirra oft,“ segir Halla. Samstarfsfólk Sanitu fékk áfallahjálp Þegar fregnaðist að Sanita hefði ver- ið myrt segir Melkorka að þau hafi þurft að hafa hraðar hendur til að ná að tilkynna starfsfólki andlátið áður en það færi í alla fjölmiðla. „Við hlupum til á föstudeginum og reyndum að tilkynna öllum sem þekktu hana persónulega um það sem hafði gerst. Á laugardeginum fengum við svo aðstoð fagaðila í áfallahjálp. Sálfræðingur og sér- fræðingur í áfallaviðbrögðum komu og sátu með okkur og við fengum að tala, deila sögum af henni og góðum minningum.“ Haldin var nokkurs konar minningarstund og samstarfs- fólk hennar, sem margt var orðið að góðum vinum Sanitu, gat komið sam- an og minnst hennar. „Við áttum erfitt með að tengja eitthvað svona hrikalegt við svona yndislega manneskju,“ segir Halla. Sanita Brauna flutti fyrst til Ís- lands í fyrra og starfaði þá á hóteli úti á landi. Hún fór svo heim til Lett- lands um jólin en kom aftur hingað til lands í febrúar og vildi þá reyna að fyrir sér í borginni. Hún fékk fljótt vinnu og var afar ánægð í starfi við þrif á íbúðahóteli í miðborginni. Hún var á leið í frí þegar hún lést og átti pantað flug síðastliðinn sunnu- dag heim til Lettlands að hitta börn sín og fjölskyldu. Að loknu mánaðar- fríi hugðist hún snúa aftur til Ís- lands. Fyrst og fremst ólýsanleg sorg fyrir börn hennar Einn af þeim fyrstu sem Sanita kynntist hér á landi þegar hún kom fyrst árið 2016 var Akeem Cujo Op- pong. Hann segir að henni hafi þótt ævintýri að koma til Íslands, hér hafi hún upplifað mikið frelsi og verið hrifin af náttúrunni. „Ég er enn að átta mig á því að þetta hafi gerst. Ég er mjög reiður og sár. En fyrst og fremst er þetta ólýsanleg sorg fyrir börnin hennar. Hún talaði við þau á hverjum degi. Sanita var mjög skemmtileg kona, hún var friðarstillir og vildi ekki rifr- ildi eða átök við fólk. Hún var mjög opin manneskja, fordómalaus og tilbúin að hjálpa öllum. Hún var dug- leg og vildi vinna mikið til að geta safnað peningum svo hún gæti styrkt börnin sín til náms.“ Útför Sanitu Brauna fer fram fimmtudaginn 5. október. Sanita Brauna lætur eftir sig þrjú börn og foreldra. Hún var ánægð í starfi sínu og stefndi á að koma aftur til Íslands eftir frí í Lettlandi sem hefjast átti í vikunni. Smitaði frá sér jákvæðni Sanita Brauna var eins og mamma allra á vinnustaðnum sínum, hún var sáttasemjari þegar þess þurfti og mætti alltaf þegar starfsfólkið hittist utan vinnu. Hún var lífsglöð og vinnufélagar segjast margt geta lært af viðhorfi hennar til lífsins sem einkenndist af þakklæti og jákvæðni. Sanita lét sér annt um fólk og kom vel fram við alla. Fjölskyldan segir hana hafa gert allt fyrir börnin sín þrjú og hjartað hafi alltaf verið í Lettlandi. Stofnaður hefur verið stuðningsreikningur fyrir fjölskyldu hennar. Steinar Geir Agnarsson, Melkorka Ragnhildardóttir, Halla Guðrún Jónsdóttir, Sanita Brauna, Andrea Björnsdóttir, Elisa Maccagnoni, Klaudia Jakubowska og Ibolya Nagy á leið í óvissuferð hótelsins sem reyndist vera hestaferð. Dæturnar Ketija og Sendija með bróður sínum Renijs ásamt ömmu sinni og afa, Vilnis og Skaidrîte, foreldrum Sanitu. Myndin er tekin um jól fyrir nokkru. Sanita naut þess að skoða nátt- úruna. Hér er hún í hellaferð. Sanita Brauna ólst upp í bænum Ventspils í Lettlandi. Fjölskylda Sanitu Brauna fær mikinn stuðning víða að á þessum erfiðu tímum að sögn Sigurðar Freys Sigurðssonar sem tilnefndur hefur verið réttargæslumaður barna hennar og foreldra. „Þetta er fjárhagslega þungt fyrir þau að koma hing- að til lands,“ segir hann en fjölskyldan er væntanleg til Ís- lands í næstu viku. „Fjöl- skyldan hefur fengið góða að- stoð. Það eru allir af vilja gerðir að aðstoða þau eftir fremsta megni.“ Samstarfsfólk hennar og vinir hér á landi stóðu fyrir því að stofnaður yrði söfnunar- reikningur fyrir fjölskylduna svo fjárhagsáhyggjur þurfi ekki að íþyngja þeim ofan á sorgina. SÖFNUNARREIKNINGUR rn. 0140 - 26 - 001053 kt. 670812 - 1540 Öll framlög sem lögð eru inn á þennan fjárvörslureikn- ing, sem hýstur er hjá lög- fræðistofunni Land lögmenn, renna beint til barna Sanitu. Söfnun fyrir fjölskylduna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.