Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Síða 29
Þessi mynd af umslagskjól
Balenciaga frá 1967 er
áberandi í kynningarefni
V&A um sýninguna.
einnig til sýnis málverk og húsgögn
úr eigu meistarans.
Sýningin stendur yfir til 7. janúar
2018.
Yfirlitssýning á verkum
Yves Saint Laurent
Næstkomandi fimmtudag verður
ennfremur opnað safn tileinkað arf-
leifð Yves Saint Laurent við Avenue
Monceau númer fimm í París þar
sem hönnuðurinn starfaði lengi en
þar voru höfuðstöðvar tískuhússins.
Fyrsta sýningin verður yfirlitssýn-
ing á verkum hönnuðarins sem
stendur yfir í ár. Á eftir því fylgir
sýning á þeirri hönnun Saint Laur-
ent sem fékk innblástur frá Asíu.
Ný sýning í MoMA
Í New York stendur líka mikið til en
sunnudaginn 1. október verður opn-
uð sýning tileinkuð tískuheiminum í
MoMA. Sýningin ber nafnið „Items:
Is Fashion Modern“ og stendur til
28. janúar 2018. Það eru liðin 70 ár
frá síðustu sýningu nútíma-
listasafnsins þar sem tíska er út-
gangspunkturinn svo það má vænta
mikils af henni. Þarna verða 111
þekktar flíkur til sýnis, þeirra á með-
al bómullarstuttermabolur, mót-
orhjólaleðurjakki og Converse All
Stars-íþróttaskór. Þarna verða einn-
ig flíkur frá fjarlægum löndum og
líka dýrar hönnunarvörur á borð við
Rolex-úr og Birkin-tösku frá Her-
mès.
Tilgangurinn með sýningunni er
að fá fólk til að velta fyrir sér merk-
ingu ýmissa flíka og gripa sem við
tökum sem sjálfsögðum hlut.
Eitt er víst, að með þessum spenn-
andi sýningum verður auðvelt fyrir
ferðalanga að auðga andann í borg-
arferðunum sem framundan eru.
Í París er 70 ára afmæli tísku-
húss Christians Dior fagnað
með stórri yfirlitssýningu.
AFP
’Bestu ferðirnar inni-halda yfirleitt sittlítið af hverju; mat,drykk, verslun, göngu-
ferðir og síðast en ekki
síst safnaferðir.
Skissur eftir Yves Saint Laur-
ent við hlið myndar af hönnun
hans í nýja safninu í París.
1.10. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli
Safn tileinkað hönnuðinum
Yves Saint Laurent verður
opnað í Marrakesh í Marokkó
19. október næstkomandi.
Það er því líka hægt að fara á
framandi og fjarlægari slóðir
til að skoða tískusafn. Saint
Laurent kom fyrst til Marra-
kesh árið 1966 og varð fyrir
miklum áhrifum af menning-
unni. Hann ákvað að kaupa
hús þar og heimsótti landið
reglulega.
Safnið stendur við götu sem
er tileinkuð hönnuðinum, Rue
Yves Saint Laurent, og er
beint á móti hinum þekktu
görðum Jardin Majorelle, sem
eru vinsæll ferðamannastaður
í Marokkó.
Safnið er hannað af arkitektastofunni Studio KO.
LÍKA Á FJARLÆGARI SLÓÐUM
YSL-safn í Marokkó