Feykir - 27.11.2014, Qupperneq 13
1 32 01 4
Þær tegundir sem bragðað var á voru: Almáttugur
Steðji Jólaöl, Einstök Doppel Bock Jólabjór, Jóla
Kaldi, Gæðingur Jólabjór, Jólagull, Jóli, Steðji
Jólabjór, Víking Jóla Bock, Víking Jólabjór,
Þvörusleikir Rauðöl nr. 28 og Ölvisholt Jólabjór.
Í stuttu máli þá voru ekki allir sammála í öllum
tilfellum enda smekkur fólks jafn margbreytilegur
og mannlífið. Eftirfarandi eru niðurstöður
dómnefndar, samkvæmt útreiknuðu meðaltali
einkunna þriggja hæst dæmdu bjóranna.
Þvörusleikir þótti bera af
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Bragðað á jólabjórum ársins 2014
Jólabjórinn kom í verslanir Vínbúðarinnar þann 14. nóvember
sl. en jafnan er mikil eftirvænting hjá landanum að bragða á
ölinu sem íslensku brugghúsin reiða fram í tilefni hátíðanna.
Bjóráhugafólkið hjá Bjórsetri Íslands á Hólum í Hjaltadal fer heldur betur ekki
varhluta af því og hafa þau undanfarin ár komið saman og bragðað á úrvalinu.
Feykir fékk að fljóta með að þessu sinni og fylgdist með dómnefndinni að störfum
er hún framkvæmdi hávísindalega blindsmökkun á ellefu bjórtegundum þetta árið.
Rækjan frá Dögun er hátíðarmatur
RÆKJUVINNSLA HESTEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI & 453 5923
Gæði - Ferskleiki - Hollusta
Óskum öllum landsmönnum
nær og fjær
gleðilegra jóla og farsældar
á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Selma & Tómas
HÓTEL TINDASTÓLL - MIKLIGARÐUR
info@arctichotels.is / www.arctichotels.is
Sími 453 5002 / 453 6880
Þvörusleikir
Rauðöl
Bronslitaður tær bjór með fallega
gulleita froðu. Lykt af kryddi og
pipar. Bragð af pipar, ögn af kanil.
Eftirbragðið er gott þar sem biturt
humlabragðið vex eftir því sem
drukkið er meira.
7,8/10
Almáttugur
Steðji Jólaöl
Rauðbrúnleitur tær með brún-
leita þétta froðu. Í lyktinni má
finna lykt af áfengi, rúsínum
og smákökum. Bragðið er sætt,
rúsínur með sterkum lakkrís í
eftirbragðinu.
7,2/10
Víking
Jóla Bock
Dökkbrúnn, tær með gulleitri
froðu. Hint af malti og kökum
í lyktinni. Bragð af malti,
karamellu með mildu sætbitru
eftirbragði.
6,7/10
Dómnefnd að störfum. Frá vinstri: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Guðmundur Björn Eyþórsson, Bjarni Kristófer Kristjánsson,
Broddi Reyr Hansen og Jón Sveinsson. MYNDIR: BÞ