Feykir - 27.11.2014, Side 22
2 01 42 2
150 g soðnar heitar kartöflur
1 kg flórsykur
suðusúkkulaði
kókosmjöl
¼ tsk möndludropar
¼ tsk piparmintudropar
Aðferð: Kartöflur og flórsykur
hnoðað saman í hrærivél og
síðan í höndum. Deiginu
skipt í tvennt, dropum bætt
í sinn hvorn hluta deigsins
og hnoðað vel. Litlar kúlur
gerðar úr deiginu og hjúpaðar
með bráðnu suðusúkkulaði,
velt upp úr kókosmjöli og
látnar kólna.
20132 2
Páll Sigurðsson
Ostakaka
Botn:
300 g LU Bastogne kex (kanilkex)
150 g smjör
Aðferð: Kexkökur muldar
niður og smjörið brætt.
Þessu blandað saman og sett
t.d. í eldfast mót. Kælt.
Fylling:
250 g rjómaostur
100 g flórsykur
1/2 l rjómi
Aðferð: Rjóminn þeyttur.
Þeytið saman flórsykur og
rjómaost, blandið varlega út
í rjómann. Sett yfir botninn,
síðan kælt eða fryst.
Hjúpur ofan á kökuna:
200 g suðusúkkulaði
1/2 dós sýrður rjómi (má vera
meira)
Aðferð: Brætt saman við
vægan hita og sett yfir kalda
eða frosna kökuna. Gott er
að setja ferska ávexti ofan á
t.d. jarðaber, bláber og kíví.
Gómsætar uppskriftir
í boði Karlakórsins Lóuþræ
la
Karlakórinn Lóuþrælar
starfar í Húnaþingi vestra
og var stofnaður árið
1985. Í dag eru starfandi
kórfélagar 32 og þar
Sigfús Ívarsson
Ingu-Lárukökur
SAMANTEKT
Kristín S. Einarsdóttir
MYNDIR
Berglind Þorsteinsdóttir
af eru fimm sem hafa verið meðlimir frá
upphafi.
Kórinn dregur nafn sitt af því að fyrsti stjórnandi
hans var Ólöf Pálsdóttir, kölluð Lóa. Kórfélagar eru
sammála um að það sé söngurinn, félagsskapurinn
Þetta er mjög gömul uppskrift sem
tengdamóðir mín bakaði alltaf
fyrir jólin.
500 g hveiti
150 g sykur
300 g smjörlíki
1 msk vanilludropar
2 msk kakó
2 dl mjólk
Aðferð: Allt sett á borð og
hnoðað. Sett í hakkavél og
búnar til lengjur sem síðan
eru skornar í hæfilegar
kökur. Bakað við 200°C þar
til þær byrja að dökkna.
Lagðar saman tvær og tvær
með smjörkremi á milli.
Guðmundur St Sigurðsson
Vínarterta að hætti
Vestur-Íslendinga
225 g smjör
225 g sykur
2 egg
500 g hveiti (meira eftir þörfum)
1 tsk lyftiduft
1 tsk kardimommur,
helst nýmalaðar
4 msk mjólk
Aðferð: Smjör og sykur
hrært vel saman, eggjunum
hrært saman við. Síðan er
þurrefnunum hrært saman
við, ásamt mjólkinni. Hveiti
bætt við ef þarf svo að deigið
verði vel hnoðunarhæft
(samt fremur lint). Kælt í
a.m.k. hálftíma. Deiginu
skipt í 5-7 hluta og hver
þeirra flattur út í hring
og kringlótt kaka skorin
út undan diski. Kökurnar
settar á pappírsklæddar
bökunarplötur og bakaðar
í um 9-10 mínútur ofarlega
í ofni við 190°C þar til þær
eru farnar að taka lit. Best
að leggja kökuna saman á
meðan bæði hún og sultan
eru volgar.
Sveskjusulta
500 g sveskjur, steinlausar
175 g sykur
1 msk kanill
1 tsk kardimommur
200 ml vatn
Aðferð: Allt sett í pott og látið
malla þar til sveskjurnar fara
að maukast og nær allur
vökvi gufaður upp. Hrært vel
á meðan. Látið kólna ögn og
síðan sett í matvinnsluvél og
maukað. Ef sultan er of þykk
má bæta svolitlu vatni við.
Bjarni Þór Einarsson
Bessastaðajólakonfekt
Þorvaldur Böðvarsson
Brún lagterta
250 g smjörlíki
300 g sykur
3 egg
600 g hveiti
1,5 bolli mjólk
2 msk kakó
2 tsk kanill
2 tsk negull
2 tsk natron
Aðferð: Smjörlíki og sykur
hrært létt og ljóst og eggjum
bætt við. Þurrefnunum
blandað saman og sett
út í ásamt mjólkinni og
hrært vel. Bakað í fjórum
rúllutertumótum við 175 °C í
15 - 20 mín.
Smjörkrem á milli:
250 g smjörlíki
700 g flórsykur
2 tsk vanillusykur
1 egg
Aðferð: Hrærist mjög vel.
og tækifærið til að skipta um viðfangsefni í
amstri dagsins sem geri það eftirsóknarvert að
vera í kór.
Lóuþrælar fara reglulega í söngferðir og hafa
fjórum sinnum farið út fyrir landssteinana. Þá
hafa þeir gefið út fimm geisladiska. Aðventan
er líka annatími í kórstarfinu, en þeir gáfu sér
þó, með góðri hjálp eiginkvennanna, tíma til að
slá upp glæsilegu kaffihlaðborði. Feykir fékk að
njóta afrakstursins og uppskriftirnar færum við
lesendum hér.
Vísur um kökufund Lóuþræla
„Ég neitaði að mæta með öll þessi kolvetni
en sagðist mæta með prótein,“ sagði Árni Jón
Eyþórsson og orti svo:
Þó kruðerí sé kannski falt
og kórinn verði sæll.
Víst ávalt þú varast skalt
að verða tertuþræll.
Árni Jón Eyþórsson
Kjötbollur
800 g hakk
2 egg
2-3 paprikur, skornar í bita
4-5 tómatar, skornir smátt
1 laukur skorinn
1 dós tómatpúrra (170 g)
Aðferð: Hrært saman og
steiktar kjötbollur.
Piparostasósa:
1 piparostur
300 g rjómaostur
Aðferð: Brætt saman, má þynna
ef vill með rjóma.
Meðlæti: Nýjar íslenskar
kartöflur, soðnar. Hvítkál,
gulrætur og laukur skorið
niður og steikt á pönnu og
haft með.