Feykir - 27.11.2014, Qupperneq 33
3 32 01 4
Anna Margrét Sigurðardóttir og Sigurður Þorkelsson
Melabraut 19 Blönduósi : Jólahús ársins 2011
„Allt sem viðkemur jólun-
um á að vera skemmtilegt“
„Ég byrja að setja upp
jólaskrautið í kringum 1. í
aðventu, byrja á seríum í
gluggana og svo seríur úti.
Annað jólaskraut kemur upp
úr miðjum desember og svo
er jólatréð sjálft alltaf skreytt
á Þorláksmessu,“ segir Anna
Margrét á Melabraut 19 og bætir
við að gott sé að hafa frágang
skrautsins í huga þegar verið
sé að setja það upp, þar sem
mesta umstangið getur verið í
kringum það. „Við pössum okkur
á því að vera samt ekkert í neinu
stresskasti. Allt sem viðkemur
jólunum á að vera skemmtilegt
þannig að ef það er ekki tími eða
stuð til þess að skreyta mikið þá
bara gerum við minna það árið.
Jólin koma samt.“ Fallegastar
þykja Önnu Margréti seríur með
hvítum perum. Aðspurð um
hvort hún eigi uppáhalds skraut
svarar Anna Margrét að það sé
jólaþorpið hennar sem stækkar
smátt og smátt með hverju
árinu.
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
En verðið þið vör við að fólk
komi að skoða hjá ykkur?
„Það er hefð fyrir að taka
jólaljósarúnt hjá mörgum á
staðnum en ég held ekki að
það séu margir að koma og
skoða sérstaklega hjá okkur,“
segir Anna Margrét. Þegar
hún er innt um hvort þetta sé
kappsmál hjá þeim hjónum
svarar hún: „Flestir sem þekkja
mig vita að ég á töluvert til af
keppnisskapi. En gleðin verður
að vera ofan á, annars er
engin tilgangur með þessum
skreytingum.“
Sigurvegari myndasamkeppni Feykis
er Emilía Ásta Örlygsdóttir á Hólum
í Hjaltadal og prýðir falleg mynd
hennar Jólablað Feykis 2014. Emilía
hlýtur fyrir vikið glæsileg verðlaun,
Canon EOS 1200D myndavél með
18-55mm IS linsu, frá Tengli og þar
að auki fær hún vinningsmyndina
prentaða og festa á blindramma
í boði Nýprents.
Þátttaka í myndasamkeppninni fór
fram úr björtustu vonum og þakkar
Feykir fyrir gríðargóðar undirtektir.
Alls bárust um 150 myndir frá 52
þátttakendum, hver önnur fallegri,
og var valið þrautinni þyngri en
mynd Emilíu af börnum hennar, Úlfi
Hnefli og Völvu Nótt, fangaði hjarta
dómnefndar. Hún þótti einstaklega
falleg og ævintýraleg í senn og jafn-
framt minna á gleðileg jólin, séð með
augum barnanna. Nokkrar myndir úr
samkeppninni verða birtar í Feyki fram
að jólum.
Feykir óskar Emilíu til hamingju
með sigurinn og lesendum Feykis sem
og öllum landsmönnum gleðilegrar
jólahátíðar! /BÞ
Ævintýraleg og gleðileg jól
á forsíðu Jólablaðs Feykis
Munið
eftir
jólatrésölu
UMF Tindastóls
í húsakynnum
Timbursölunnar
Versluninni Eyri
VELKOMIN
Hlýjar og vandaðar vörur frá 66°Norður
Frábært í jólapakkann
Forsíðumyndasamkeppni Feykis