Fréttablaðið - 24.05.2018, Side 4

Fréttablaðið - 24.05.2018, Side 4
UMBOÐSAÐILI FIAT · ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · S. 534 4433 WWW.FIAT.IS · WWW.ISBAND.IS · ISBAND@ISBAND.IS · OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 · LAUGARDAGA 12-16 ÁRA5ÁBYRGÐ SUMARTILBOÐ Á FIAT TIPO TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI. STAÐALBÚNAÐUR: 120 HÖ, LOFTKÆLING, BAKKMYNDAVÉL, BLUETOOTH, SNERTISKJÁR, HITI Í SÆTUM OG SPEGLUM, 16” ÁLFELGUR, AKSTURSTÖLVA O.FL. FIAT TIPO HATCHBACK TILBOÐSVERÐ FRÁ 2.390.000 KR. LISTAVERÐ FRÁ 3.090.000 KR. FIAT TIPO STATION WAGON TILBOÐSVERÐ FRÁ 2.490.000 KR. LISTAVERÐ FRÁ 3.290.000 KR. fiat.is BANDARÍKIN Skólaskotárásin í Parkland í Flórída, þar sem sautján nemendur voru myrtir, hafði engin varanleg áhrif á afstöðu Bandaríkja- manna gagnvart skotvopnaeign. Reuters greinir frá og vísar í nýja könnun. Samkvæmt henni hefur stuðningur við að herða löggjöf um skotvopn þokast upp á við undan- farin ár. Venjulega, þegar skólaskot- árás er gerð, tekur stuðningur kipp áður en hann fer aftur niður í það hlutfall sem var fyrir árásina. Könnunin sýnir 69 prósenta stuðning við að herða löggjöfina. – þea Skotárásin í Parkland virðist litlu hafa breytt DÓMSMÁL Lögreglustjórinn í Vest- mannaeyjum hefur ákært mann fyrir hatursorðræðu vegna ummæla sem birt voru í kommentakerfi DV í nafni eiginkonu hans. Aðalmeðferð fer fram í dag. Ummælin voru rituð í júlí 2016 við frétt sem bar yfirskriftina „Sema Erla sökuð um herferð gegn Útvarpi Sögu: Birtir hatursfull skilaboð“ og undir fréttinni var skrifað: „Vona að Sema Erla Serðir farist í næstu hryðjuverkaárás skítmenna af hennar tagi (múslimaskítmenna).“ Í ákæru eru þessi orð talin fela í sér sér ógnun, háð, rógburð og smánun á opinberum vettvangi í garð ótil- tekins hóps manna hér á landi vegna trúarbragða þeirra. Ummælin birtust undir nafni og starfsheiti eiginkonu hins ákærða, en hún er leikskólakennari í Eyjum. Ummælin komu eiginkonunni sjálfri í opna skjöldu þegar hún varð þeirra vör, en skjáskot af þeim fóru eins og eldur í sinu um samfélags- miðla og furðuðu sig margir á því að leikskólakennari gæti viðhaft svo hatursfull ummæli opinberlega. Í samtali við DV eftir að ummælin féllu sagðist hún enga hugmynd hafa um hver gæti hafa skrifað athuga- semdina, sem var rituð í gegnum Facebook-aðgang konunnar á komm entakerfi miðilsins. Þá lýsir konan því að henni sé þetta ekki eingöngu þungbært hennar vegna heldur einnig vegna þess hve margir hafi farið að rakka Eyjar niður með orðum um að þetta yrði þaggað niður því þannig væru Eyjar. Þvert á þá spádóma virðist lögreglan í Eyjum hafa tekið frum- kvæði í málinu, því ummælin voru aldrei formlega kærð. „Það er verið að setja fólki mörk og ákveða hversu langt má ganga í garð ann- ars fólks og tiltekinna hópa á internetinu og það skiptir máli að fá skýrar línur um það,“ segir Sema Erla Serdar aðspurð um væntingar sínar til niðurstöðu málsins. Hún ber vitni við aðal- meðferðina í dag, en nokkur sam- skipti munu hafa átt sér stað milli hennar og hjónanna eftir að ummælin komust í hámæli á samfélagsmiðlum. Aðspurð segist Sema ekki hafa gert upp við sig hvort hún muni sjálf leita réttar síns vegna ummælanna. „Sjáum fyrst hver niðurstaðan í þessu máli verður.“ – aá Ákærður fyrir að bera út hatur í nafni konu sinnar Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu hefur sektað 113 ökumenn fyrir að nota farsíma við akstur frá 1. maí. Reglugerð um sektir og umferðarlagabrot breyttist 1. maí og hækkaði sektin fyrir að tala í far- síma án handfrjáls búnaðar úr fimm þúsund krónum í 40 þúsund. Lögreglan fór í átak og hefur verið dugleg að sekta ökumenn á mun hærri taxta en áður. Miðað við þann fjölda sem tekinn hefur verið við að gjamma í og glápa á farsímann sinn á þessum þremur vikum hefur lög- reglan sótt rúmar 4,5 milljónir króna úr vösum þeirra í formi sekta. – smj 4,5 milljónir í símasektir Sektir fyrir að tala í síma undir stýri hækkuðu 1. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR DÓMSMÁL Stefán Þór Guðgeirsson hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun. Dómurinn var birtur í gær. Brotaþoli dró kæru sína til baka en rannsókn og saksókn náði samt fram að ganga. Nauðgunin átti sér stað í desember 2016 en þá voru Stefán og konan í sambandi. Eftir nauðgunina leitaði brotaþoli á neyðarmóttöku. Inga Lillý Brynjólfsdóttir var skipaður réttargæslumaður konunnar. Síðar óskaði brotaþoli eftir því að skipun hennar og kæran yrði dregin til baka og að Sveinn Andri Sveinsson yrði skipaður réttargæslumaður hennar. Rannsókn lögreglu á íbúð Stefáns leiddi í ljós að blóð var að finna á baðherberginu og að hár væri á víð og dreif um íbúðina. Kom það heim og saman við lýsingar brotaþola á neyðarmóttöku um að hún hefði verið beitt miklu ofbeldi. Tveimur dögum síðar kom brota- þoli á lögreglustöð. Vildi hún þá ekki að málið færi lengra og sagði að ef sér yrði gert að tala frekar um það myndi hún segja að frásögn sín hefði öll verið lygi. Það væri „best fyrir hana og hennar fjölskyldu“. Degi síðar ritaði hún undir umboð til Sveins Andra til að vera réttar- gæslumaður sinn í málinu. Þá ritaði hún undir yfirlýsingu þar sem fram kom ósk hennar um að rannsókn yrði látin niður falla. „Ég vil taka það skýrt fram að [Stef- án] braut á engan hátt gegn kynfrelsi mínu, né beitti hann mig ofbeldi. Ég var reið út í [Stefán] og undir áhrifum MDMA þegar ég gaf skýrsluna hjá lögreglu, þannig að atburðir nætur- innar ýktust upp í huga mínum, auk þess sem ég miklaði þá fyrir mér og ýkti,“ segir í yfirlýsingunni. Þremur dögum síðar aflaði lög- regla dómsúrskurðar til að hlera síma brotaþola. Meðal gagna voru upptökur af símtölum. „Veistu það sko þarna textinn sem þeir sömdu sem að ég átti að skrifa undir, þetta er bara það mest niður- lægjandi sem að ég hef á ævi minni þurft að skrifa undir í lífinu,“ sagði brotaþoli í símtali við systur sína þann 16. desember. Síðar sagði hún við systur sína að henni hefði verið boðin milljón ef hún héldi kjafti. Fyrir dómi neitaði Stefán sök og sagði að um „röff“ kynlíf hefði verið að ræða með samþykki beggja. Fram- burður brotaþola var eins. Í málinu lá fyrir að brotaþoli var undir áhrifum MDMA. Fyrir dóminn kom lyfja- fræðingur sem sagði lyfið geta valdið ranghugmyndum. „Upphaflegur framburður brota- þola á neyðarmóttöku, bæði fyrir heilbrigðis starfsmönnum og lög- reglu, fær verulega stoð í gögnum og skýrslum læknisins og hjúkr- unarfræðingsins fyrir dómi. Á hinn bóginn þykir síðari framburður brotaþola um ranghugmyndir sem hún hafi verið haldin frá því atvik málsins urðu heima hjá ákærða og fram á nótt á neyðarmóttöku, ekki sennilegur. Þykir mjög ósennilegt að brotaþoli hafi samþykkt og jafn- vel óskað eftir endaþarmsmökum og öðrum mökum, sem hafi skilið hana eftir með alla þá áverka sem sannað er að hún var með við skoðun á neyðarmóttöku,“ segir í dómnum. Stefán var sakfelldur fyrir nauðgun og dæmdur til að greiða sakarkostn- að, um tíu milljónir. joli@frettabladid.is Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun Hleruð símtöl úr símtæki brotaþola voru meðal sönnunargagna í nauðgunarmáli. Konan hafði þó óskað eftir því að falla frá kæru um nauðgun. Í dómi segir að upprunalegur framburður konunnar hafi fengið „verulega stoð“ í gögnum málsins. Þetta er í annað skipti sem maðurinn hlýtur dóm fyrir nauðgun. Fyrir dómi neitaði Stefán sök og sagði að um „röff“ kynlíf hefði verið að ræða með samþykki beggja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 3 -4 4 E 0 1 F E 3 -4 3 A 4 1 F E 3 -4 2 6 8 1 F E 3 -4 1 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.