Fréttablaðið - 24.05.2018, Page 10

Fréttablaðið - 24.05.2018, Page 10
Tækni Valdir notendur Facebook í Bandaríkjunum, Kanada, Bret- landi og Ástralíu fá nú að taka þátt í tilraunaverkefni samfélagsmið- ilsins þar sem þeim býðst að senda Facebook nektarmyndir af sjálfum sér áður en myndin er síðan er send öðrum. Ýmsar öryggisstofnanir í löndunum fjórum taka þátt í verk- efninu með Facebook. Frá þessu greindi Antigone Davis, yfirmaður öryggismála hjá Facebook, en um er að ræða nýtt skref í baráttu Facebook gegn staf- rænu kynferðisofbeldi og framhald á tilraun sem gerð var í Ástralíu í nóvember síðastliðnum. Notendur, sem óttast að nektar- mynd af þeim verði deilt án sam- þykkis, geta nú haft samband við eina af þeim stofnunum sem vinna með Facebook að verkefninu og fyllt út eyðublað. Þá fær viðkomandi ein- nota hlekk til að hlaða upp nektar- myndinni. Sérþjálfaður starfsmaður Facebook fer svo yfir beiðnina og býr til sérstakan einkenniskóða (e. hash) fyrir hana. Samkvæmt Davis mun mynd- inni svo verða eytt úr tölvukerfi Facebook innan sjö daga. Kóðinn er hins vegar geymdur svo hægt sé að loka á að myndinni sé hlaðið inn á Facebook eða Instagram. „Það er niðurlægjandi og hrika- legt þegar nektarmyndum er deilt án samþykkis. Við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þolendum stafræns kyn- ferðisofbeldis,“ sagði Davis í til- kynningunni. – þea Facebook vill nektarmyndir fyrirfram Bandaríkin Toppar bandarískra eftirlits- og löggæslustofnana munu funda með leiðtogum Repúblikana á þinginu í dag. Þar munu topparnir deila með leiðtogunum leyniskjölum sem tengjast uppljóstrara FBI sem ræddi við starfsmenn forsetafram- boðs Donalds Trump á árdögum rannsóknar alríkislögreglu á meintu samráði framboðsins við rússnesk yfirvöld og afskiptum Rússa af kosn- ingunum. Uppljóstraramálið er forseta hug- leikið. Ákvað hann meðal annars um helgina að krefjast þess að dóms- málaráðuneyti hans rannsakaði þessar „njósnir“ alríkislögreglunnar og spurði hvort Barack Obama, fyrr- verandi forseti, hefði fyrirskipað aðgerðirnar. Þá hefur Trump fullyrt að uppljóstrarinn hafi komið sér inn í framboðsteymið áður en hin svokall- aða Rússarannsókn hófst, aðgerðin hafi sem sagt verið í pólitískum til- gangi, en samkvæmt The New York Times er sú fullyrðing röng. „Sjáið bara hvernig þetta hefur snúist í höndunum á hinu glæp- samlega djúpríki. Það reynir að elta falsað samráð við Rússa, uppskáldað svindl, og er síðan gripið glóðvolgt í risavöxnu NJÓSNAhneyksli af stærðargráðu sem þetta land hefur jafnvel aldrei séð áður,“ tísti Trump og hélt áfram: „SPYGATE gæti orðið eitt stærsta pólitíska hneykslismál allra tíma.“ Forseti og stuðningsmenn hans hafa haldið fram að rannsókn Roberts Mueller, sérstaks saksókn- ara, á meintu samráði sé hluti af samsæri hins svokallaða djúpríkis (e. deep state) gegn sér. Djúpríkið á að vera samsett af áhrifamönnum innan ríkisstofnana, leyniþjónustu- og löggæslustofnana og hersins. Eru ásakanir Trumps nú áþekkar þeim sem hann setti fram á fyrstu dögum forsetatíðar sinnar, þegar hann sagði Obama hafa látið hlera Trump-turn- inn. Dómsmálaráðuneytið hrakti síðar þær fullyrðingar. Til fundardagsins var boðað eftir að forseti kallaði Christopher Wray alríkislögreglustjóra og Rod Rosen- stein varadómsmálaráðherra á sinn fund til að krefjast rannsóknar á mál- inu sem forseti kallar Spygate. Þá er fundurinn einnig haldinn í tengslum við stefnu þingmannsins Devins Nunes. Sá krafðist þess að öll skjöl um uppljóstrarann, banda- rískan fræðimann, yrðu afhent upp- lýsingamálanefnd neðri deildar þingsins. Þeirri beiðni var í upphafi hafnað en vegna þrýstings Trumps er ljóst að Repúblikanar fá allavega hluta skjalanna í hendurnar. Demókratar hafa ítrekað gagnrýnt Nunes fyrir að reyna að grafa undan rannsókn Muellers með kröfum sínum og fullyrðingum um samsæri gegn forsetanum. Hafa meðal annars sagt Nunes misnota stöðu sína sem formaður upplýsingamálanefndar- innar. Þá hafa Demókratar lýst yfir óánægju með að vera skildir út undan á fundi dagsins. thorgnyr@frettabladid.is Funda um uppljóstrara með leiðtogum Repúblikana í dag Leiðtogar Repúblikana funda með toppum eftirlits- og löggæslustofnana og fá leyniskjöl um uppljóstrara al- ríkislögreglu í forsetaframboði Trumps. Forseti segir alríkislögreglu hafa njósnað um sig í pólitískum tilgangi, áður en Rússamálið kom upp, en sú staðhæfing er umdeild og The New York Times fullyrðir að hún sé röng. Trump hefur oft sagt alríkislögregluna hafa njósnað um sig. NordicphoTos/AFp SPYGATE gæti orðið eitt stærsta pólitíska hneykslismál allra tíma. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Nýr Dacia Sandero Dacia bílar hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt með framúrskarandi endingu og hagstæðu verði. Nýr Dacia Sandero er rúmgóður millistærðarbíll á verði smábíls. Verið velkomin í reynsluakstur! E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 0 8 1 D a c ia S a n d e ro 5 x 2 0 m a í Stór bíll, lágt verð! 1.990.000 kr. www.dacia.is 2 4 . m a í 2 0 1 8 F i m m T U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 3 -6 7 7 0 1 F E 3 -6 6 3 4 1 F E 3 -6 4 F 8 1 F E 3 -6 3 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.