Fréttablaðið - 24.05.2018, Side 18
Íslendingar vilja gjarnan skipta sér í andstæðar fylkingar. Stundum er eins og andstæðir hópar sameinist
um að einfalda ágreiningsefnin til að
auðvelda stríðsreksturinn. Borgar-
línan er gott dæmi um þetta. Á meðan
menn reita hár sitt yfir stuðningi eða
andstöðu við Borgarlínu, þá losna
allir við að ræða flóknara viðfangs-
efni sem sannarlega ætti að vera
aðalatriðið í umræðunni. Aðalatriðið
snýst um að bæta þjónustu á breiðum
grunni fyrir bílminni lífsstíl. Já, ég
segi bílminni, ekki bíllausan lífsstíl
því ég ætla ekki að opna á barnalega
og gamaldags orðræðu um „aðför að
einkabílnum“.
Það græða nefnilega allir á víð-
tækari möguleikum á bílminni lífs-
stíl. Þetta er einfaldlega lífskjara-,
umhverfis- og lífsgæðamál. Það er
bæði dýrt og mengandi að reka bif-
reið. Allar lausnir sem geta minnkað
bílnotkun, bæði fyrir þá sem eiga bíl
og þá sem eiga ekki bíl, skipta máli.
Ungt fólk í heiminum er þegar farið
að átta sig á þessu. Það vill aðgang að
fjölbreyttum lausnum, ekki bara að
strætó eða hjólreiðum eða deilibílum,
heldur blöndu af öllu saman.
Vilja sveigjanleika
Nútímalegt fólk vill sveigjanleika, það
vill stökkva upp í strætó þegar hentar
með nettengingu og háa ferðatíðni.
Það vill nota hjólið sitt eða leigu-
hjól þegar vel viðrar eða þegar það
er í stuði til þess. Það vill geta leigt
deilibíl til að skreppa í lengri ferðir
eða flytja eitthvað en nennir kannski
ekki að eiga hann þess á milli. Það
vill líka aðgang að nútímalegri og
afar aðgengilegri leigubílaþjónustu
eins og Über þegar sá gállinn er á
því. Krafan er einföld, sveigjanleg
og fjölbreytt þjónusta eftir þörf og
stemningu hverju sinni. En þetta
snýst ekki bara um að eiga eða eiga
ekki bíl. Þetta snýst líka um að þurfa
ekki að eiga tvo bíla eða jafnvel bara
að geta keyrt báða bílana sína aðeins
minna. Þetta er framtíðin og sú þjón-
ustuaukning sem þarf að huga að í
nútímalegu samfélagi.
Eins og áður segir er þetta ekki
bara umhverfismál heldur líka lífs-
kjaramál því að fjölskylda getur t.d.
sparað ótrúlega mikla peninga með
því að losa sig við, þó ekki væri nema
annan bílinn. Samkvæmt FÍB er
rekstrarkostnaður á nýjum, ódýrum
bíl um 1.117.600 krónur ári. Það er
margt hægt að gera fyrir rúma millj-
ón. Fjögurra manna fjölskylda gæti til
dæmis keypt fjögur rafhjól í IKEA og
árskort í strætó handa öllum og samt
átt um 500 þúsund króna afgang til að
nýta sér deilibíla, hjólaleigur, Über,
bílaleigur og leigubíla. Best væri svo ef
hægt væri að nota eitt samgöngukort
eða app til að greiða með einföldum
hætti fyrir alla samgönguþjónustu.
Auðvitað þarf svo að stuðla að því að
öll þessi fjölbreytta samgönguþjón-
usta keyri á umhverfisvænni orku.
Stóra verkefnið að mínu mati er
því fyrst og fremst að stuðla að ein-
faldri, aðgengilegri og umfram allt
fjölbreyttri almenningssamgöngu-
þjónustu til að opna möguleikana á
bílminni lífsstíl. Það er allra hagur en
Borgarlínan er í raun bara eitt brot af
þeirri framtíðarsýn.
Borgarlínan sig?
Breytinga er þörf í Kópavogi, við þurfum nýjar áherslur í bæjar-málunum og ekki síst nýtt fólk
við stjórnvölinn í bænum. Þaulseta
við kjötkatlana er engum holl og
tækifærið til breytinga er núna.
Hefjumst handa fyrir unga fólkið
Við þurfum að taka til hendinni og
bæta aðstæður ungra Kópavogsbúa
ekki síst í húsnæðismálum. Tölur um
fjölgun íbúa í bænum sýna okkur að
uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur
ekki mætt þörfum unga fólksins sem
vill búa í Kópavogi. Aðeins 3% fjölgun
ungs fólks en 21% fjölgun fólks milli
60 og 80 ára síðastliðin fjögur ár. Við
viljum fjölbreytt húsnæði sem ungt
fólk og þeir sem eru efnaminni hafi
tök á að eignast. Samvinna við hús-
næðisfélög sem ekki eru rekin í hagn-
aðarskyni er lykilatriði.
Það eru 100 ónýtt leikskólapláss í
bænum, því viljum við breyta með
því að stytta vinnutíma starfsfólks í
leikskólum og bæta starfsaðstæður og
kjör. Við ætlum að brúa bilið og sjá
til þess að börn frá 12 mánaða aldri
komist í leikskóla. Í grunnskólum
þarf að draga úr álagi á kennara og
bæta starfsaðstæður og kjör. Styrk
til íþrótta- og tómstundastarfs barna
og ungmenna munum við hækka í
80.000 kr. á ári og gæta þarf þess að
öll börn geti tekið þátt í slíku starfi án
tillits til efnahags eða uppruna.
Gleymum ekki öldruðum
Eldri borgarar eiga skilið bestu
þjónustu mögulega og við viljum
samþætta heimaþjónustu og heima-
hjúkrun í bænum og auka mögu-
leika þeirra á þátttöku í íþrótta- og
tómstundastarfi enda slíkt besta for-
vörnin.
Umhverfismálin eru okkur mikil-
væg og stórt skref er að gera Kópa-
vog plastpokalausan í samstarfi við
þjónustuaðila í bænum. Við styðjum
borgarlínu og framfarir í samgöngum
sem vinna með umhverfinu. Grænn
og vænn Kópavogur þar sem menn-
ing og listir dafna er framtíðarsýn sem
við munum vinna að.
Byggjum betri bæ
Samfylkingin mun áfram vinna í anda
jöfnuðar, réttlætis og jafnréttis með
það að markmiði að efla og styrkja
Kópavog sem sveitarfélag þar sem
ungir sem aldnir una hag sínum vel.
Við hvetjum bæjarbúa til að leggja
okkur lið.
Betri Kópavogur
Þau eru víða í borginni. Gömul verslunar- og þjónusturými sem nú standa auð eða hefur
verið breytt í íbúðir. Við þekkjum
þau sums staðar á stórum gluggum og
breiðum inngöngum. Annars staðar
til dæmis í Breiðholti eða í Árbænum
má líka sjá gamla hverfiskjarna sem
nú standa illa nýttir. Það væri frábært
að lífga upp á þessa staði að nýju. En
hvernig má gera það?
Af hverju hverfur þjónustan?
Tökum raunverulegt dæmi um hverf-
isverslun sem deilir húsi með íbúð.
Fasteignamat verslunarinnar er um
30 milljónir. Fasteignamat íbúðar-
innar sem er jafnstór og verslunin
er um 60 milljónir. Fasteignagjöld
vegna verslunarinnar eru um 500
þúsund á ári. Fasteignagjöld vegna
íbúðarinnar eru um 100 þúsund á ári.
Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt að
fasteignagjöld séu hærri á atvinnu-
húsnæði en íbúðarhúsnæði. Staðan
er engu að síður sú að ef eigandi
verslunarinnar ákveður að hætta
rekstri og fær að breyta húsnæðinu
í íbúð þá getur hann tvöfaldað verð-
mæti eignarinnar og fengið 80%
lækkun á fasteignagjöldum í leið-
inni. Hvatinn til að gera þetta er því
svo sannarlega til staðar og skiljan-
legt að þeir sem eigi húsnæðið vilji
gjarnan fara þessa leið. En vandinn
er að ef allir sem eiga atvinnuhús-
næði í hverfinu gera það þá hverfur
öll þjónusta.
Viðreisn í Reykjavík hefur, eitt
framboða, sett fram stefnu um að
lækka fasteignaskatta á atvinnu-
húsnæði. Við ætlum að lækka þá
í áföngum úr 1,65 í 1,60% á seinni
hluta kjörtímabilsins. Þar með
verða gjöldin þau sömu og í Kópa-
vogi. Samkeppnisstaða Reykjavíkur
mun batna.
Atvinnumál fá almennt lítinn
sess í borgarkerfinu. Ekkert fagráð
borgarinnar setur sérstakan fókus
á atvinnumálin. Samkvæmt vefsíðu
Reykjavíkurborgar veitir borgar-
sjóður styrki, m.a. til félags- og vel-
ferðarmála, skóla- og frístundamála,
íþrótta- og æskulýðsmála, mann-
réttindamála og menningarmála.
Hvergi er minnst á styrki til atvinnu-
þróunar.
Við í Viðreisn viljum að á árunum
2019-2021 verði 30 milljónum árlega
varið í atvinnuuppbygginu í hverfum
borgarinnar. Þar eigum við við sam-
keppnissjóði, þar sem hægt væri
til dæmis að sækja um styrk til að
breyta eða endurnýja atvinnuhús-
næði á stöðum þar sem þjónustan á
undir högg að sækja eða hefur þegar
lagst af.
Það á að vera einfalt að reka fyrir-
tæki í Reykjavík. Til þess ætlum við
í Viðreisn að setja fé í atvinnuupp-
byggingu, lækka fasteignaskatta,
tryggja framboð af húsnæði undir
nýjan rekstur og einfalda allar leyfa-
veitingar á vegum borgarinnar. Allar
þessar aðgerðir munu skila sér í ein-
faldara rekstrarumhverfi reykvískra
fyrirtækja. Þannig tryggjum við fjöl-
breytta atvinnu og þjónustu í öllum
hverfum borgarinnar.
Reykjavík þarf atvinnustefnu
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Pawel Bartoszek
Pétur Hrafn
Sigurðsson
oddviti Sam-
fylkingarinnar í
Kópavogi
Við þurfum að taka til
hendinni og bæta aðstæður
ungra Kópavogsbúa ekki síst
í húsnæðismálum.
Viðreisn í Reykjavík hefur,
eitt framboða, sett fram
stefnu um að lækka fast-
eignaskatta á atvinnuhús-
næði.
Sigurður
Friðleifsson
framkvæmda-
stjóri Orkuseturs
Stóra verkefnið að mínu
mati er því fyrst og fremst
að stuðla að einfaldri, að-
gengilegri og umfram allt
fjölbreyttri almenningssam-
gönguþjónustu til að opna
möguleikana á bílminni
lífsstíl. Það er allra hagur en
Borgarlínan er í raun bara eitt
brot af þeirri framtíðarsýn.
skipa 1. og 2. sæti á lista Viðreisnar
í Reykjavík
Rekstrarland er hluti af Olís
Hleyptu lífi í veisluna þína með fallegum veisluvörum frá Rekstrarlandi.
Pappírsdúkar, renningar, servíettur í mörgum litum, einnota diskar, glös
og hnífapör, kerti og fleira. Útskriftir, brúðkaup, afmæli, ættarmót og
endurfundir verða enn glaðlegri með veisluvörunum okkar.
LEGGÐU Á
BORÐ MEÐ
OKKUR
Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17.
2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
3
-3
B
0
0
1
F
E
3
-3
9
C
4
1
F
E
3
-3
8
8
8
1
F
E
3
-3
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K