Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Tónlistarmaðurinn og upp-tökustjórinn Þórður Ingi Jónsson, betur þekktur sem Lord Pusswhip, situr aldrei auðum höndum. Undanfarna mánuði hefur hann m.a. verið að undirbúa mikið af nýjum útgáfum og spilað víða. „Fyrsta vínylplatan mín, The Hand of Glory EP, kom út í mars á bbbbbb records, íslensku raftónlistarút- gáfunni hans Bjarka. Einnig gaf ég nýlega út Stationz Ov Tha Puss, safnkassettu á Ladyboy Records. Ég hef einnig verið að pródúsera lög fyrir ýmsa listamenn hér á landi og erlendis auk þess sem ég hef farið í tónleikaferðalög. Tónlistin er í fyrirrúmi en utan hennar hefur hann sinnt ýmsu öðru undanfarin ár. „Ég er mest að einbeita mér að tónlist þessa dagana en ég hef líka starfað mikið í blaðamennsku, seinast fyrir Indie Magazine í Berlín og nú fyrir útvarpsþáttinn Lestina á Rás 1. Undanfarin tvö ár hef ég búið í Berlín en flutti heim í bili síðustu jól.“ Þórður hefur lengi vakið athygli fyrir persónulegan fata- stíl en hvernig skyldi hann lýsa honum sjálfur? „Stóri bróðir minn lýsti fatasmekknum mínum sem „flóamarkaðsgeðsýki“ eða „thrift store psychosis“. Mér finnst það smá viðeigandi. Ég á mér ekki beint tískufyrirmyndir heldur reyni bara að vera ég sjálfur. Þegar ég var yngri var ég hins vegar pönkari og sótti mikinn innblástur þaðan, fór t.d. oft í BYKO til að kaupa keðjur. Annars finnst mér klæðaburður minn ekki hafa þróast mikið undanfarin ár. Þó er ég kannski almennt ekki í alveg jafn villtum og áberandi klæðnaði og þegar ég var yngri. Meira smekklegur í dag.“ Hvar kaupir þú helst föt? Ef ég kaupi eitthvað nýtt þá er það vanalega á flóamörkuðum eða í gegnum netið. Bolurinn er nýr Pusswhip-bolur sem Þórður hannaði fyrir Tim Rosenbaum sem rekur fatafyrirtækið Atelier Rosenbaum í Berlín. „Skyrtan er kúrekaskyrta sem bróðir minn, myndlistarmaðurinn Þórarinn Ingi Jónsson, stenslaði með hvítri málningu. Skórnir eru magnaðir rúskinnsskór með gullkeðju en þeir voru keyptir í Bandaríkjunum. Mjög „pimpy“.“ Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Hvaða litir eru í uppáhaldi? Ef ég ætti að nefna einn lit væri það fjólublár. Ég, mamma og bróðir minn erum þó vana- lega klædd í svart, smá eins og Addams-fjölskyldan. Hvernig fylgist þú helst með tískunni? Ég er voða lítið að fylgjast grannt með nýrri tísku en þekk- ingin smýgur smá í gegnum Twitter. Áttu minningar um gömul tísku- slys? Þegar ég var tólf ára pönkari keypti ég fjólubláan leðurjakka og málaði „DVERGAKLÁM“ á bakið. Veit ekki alveg með þessa týpu í dag. Hvaða flík hefur þú átt lengst og notar enn? Það er græna úlpan sem ég klæðist á einni myndinni hér. Ég passa enn í hana þótt ég hafi keypt hana fyrir meira en tíu árum síðan. Áttu einhverjar uppáhaldsversl- anir? Firmament í Berlín er mjög töff og Radd Lounge í Tókýó. Áttu þér uppáhaldsflík? Kannski bara Lil Ugly Mane jakkann minn frá Radd Lounge. Bestu og verstu fatakaupin? Bestu kaupin voru Jazz Jack- rabbit jakki sem ég fann í Hjálp- ræðishernum sem var greinilega framleiddur þegar leikurinn kom út á sínum tíma. Verstu kaupin voru flest gerð í H&M. Eyðir þú miklu í föt miðað við jafnaldra þína? Nei, ég er allt of blankur eins og er. Notar þú fylgihluti? Ég elska hringa og keðjur en er samt dálítið gjarn á að týna þeim, því miður. Appelsínugula peysan er ein af uppáhalds hettupeysum Þórðar, Dickies- peysa sem hann keypti í vinnufatabúðinni á Karl Marx Strasse í Berlín. „Þeir sem vinna við að þrífa Berlínarborg klæðast svona appelsínugulum fötum með endurskinsmerkjum. Mér fannst þetta svo gott lúkk að ég varð að stela því. Skórnir eru augljóslega Timberland-skór. Ég ætti kannski að þrífa þá en það er samt smá hluti af lúkkinu.” Lord Pusswhip hefur verið iðinn við kolann undanfarin ár. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook Glæsilegir jakkar Verð 12.900 kr. 3 litir: bleikt, álgrátt, olivugrænt stærð 36 - 46 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 3 -7 6 4 0 1 F E 3 -7 5 0 4 1 F E 3 -7 3 C 8 1 F E 3 -7 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.