Fréttablaðið - 24.05.2018, Page 28
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt,
fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Leikkonan og viðskiptajöfurinn Priscilla Presley er heims-byggðinni kunnust fyrir að
hafa verið eiginkona og barns-
móðir rokkkóngsins Elvis Presley.
Hún er norsk í móðurættina en
faðir hennar var bandarískur
orrustuflugmaður sem fórst í flug-
slysi þegar hún var hvítvoðungur.
Priscilla eignaðist ung fósturföður-
inn Paul Beaulieu sem var liðs-
foringi í bandaríska flughernum
og reyndist henni góður faðir.
Fjölskyldan flutti á milli herstöðva
og bjó í Þýskalandi þegar þau Elvis
kynntust þar sem hann gegndi her-
þjónustu. Þá var hún fjórtán ára.
Priscilla vakti ung athygli fyrir
einstaka fegurð og hefur alltaf
tollað í tískunni. Eftir skilnað við
Elvis 1973 opnaði hún tísku-
verslunina Bis & Beau þar sem hún
seldi eigin fatahönnun til ársins
1976. Meðal dyggra viðskiptavina
voru leik- og söngkonurnar Cher,
Gullfalleg á áttræðisaldri
Priscilla var eina konan sem rokkkóngurinn Elvis Presley kvæntist. Hér er hún við sundlaugina heima 1975.
Glæsileg með blásið hár og stórar
krullur á diskótímabilinu.
Priscilla sem þokkafullur spæjari úr
tískumyndatökum frá því um 1980.
Priscilla og Elvis Presley á brúð-
kaupsdaginn, 1. maí 1967. Takið
eftir tísku sjöunda áratugarins í hári,
förðun og brúðarskarti Priscillu.
Priscilla viðheldur æskuljómanum vel, þarna orðin 71 árs, árið 2016. Með
henni er ömmubarnið og leikkonan Riley Keough, dóttir Lisu Marie Presley.
Glæsikvendið
Priscilla Presley er
73 ára í dag. Hún
ber aldurinn vel.
Lana Turner, Barbra Streisand og
Natalie Wood.
Elvis og Priscilla gengu í hjóna-
band 1. maí 1967 og einkadóttir
þeirra, Lisa Marie, fæddist sléttum
níu mánuðum eftir brúðkaups-
nóttina, þann 1. febrúar 1968.
Priscilla hefur sýnt að hún hefur
gott viðskiptavit. Þegar Elvis féll
frá 1977 skildi hann eftir sig tals-
verðar skuldir og stóð Priscilla
frammi fyrir því að selja setrið hans
Grace land. Dóttirin Lisa Marie
var einkaerfingi og ákvað Priscilla
að tefla á tvær hættur og breyta
setrinu í safn til að sjá hvort arfur
dóttur þeirra yrði meiri. Á aðeins
einum mánuði hafði kostnaður
við safnið borgað sig og allar götur
síðan hefur Graceland verið einn af
eftirsóttustu ferðamannastöðum
Bandaríkjanna.
Elvis var af gamla skólanum og
vildi hafa Priscillu sína heima en
hún þráði mest að sitja fyrir og
leika í kvikmyndum. Henni bauðst
að leika einn af englum Charlies en
hennar þekktustu hlutverk eru úr
sjónvarpsþáttunum Dallas og kvik-
myndaþrennunni The Naked Gun.
Priscilla kom fram með eigin
ilmvatnslínu 1988 sem gekk vel
árum saman. Í dag er hún enn
viðloðandi Graceland og sinnir
góðgerðarmálum af kappi.
Priscilla hefur alltaf íðilfagrar og
kvenlegar línurnar í lagi.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
3
-5
D
9
0
1
F
E
3
-5
C
5
4
1
F
E
3
-5
B
1
8
1
F
E
3
-5
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K