Fréttablaðið - 24.05.2018, Side 36

Fréttablaðið - 24.05.2018, Side 36
Það er mikið hlaupið í fótbolta. Knattspyrnumenn hlaupa hraðar og meira þegar þeir vinna leik en þegar þeir tapa. Þegar þeir vinna leikinn hlaupa þeir 8.850 metra en 8.200 metra ef þeir tapa. Þetta er að minnsta kosti niðurstaða rannsóknar sem ungur háskólastúdent og fótboltaþjálfari gerði fyrir Viking, knattspyrnu- félag í Stavanger í Noregi. Það er vefmiðillinn forskning.no sem greindi frá niðurstöðunni. Unnið var úr 28 knattspyrnu- leikjum á árinu 2016. Fylgst var með hversu langt og hratt hver leikmaður hljóp í hverjum leik. Leikvöllur Viking er 105 metra langur. Hver leikmaður hleypur völlinn um það bil sex sinnum í leik. Leikmenn eru oft í miklu spretthlaupi og geta farið fimm og hálfan metra á sekúndu. Í ljós kom að leikmenn voru sprettharðari í sigurleikjum. Leikmenn sjálfir höfðu afar mikinn áhuga á rann- sókninni. Tekið er fram að niðurstöðurnar segja ekki að leikmenn sem sigra séu í raun betri hlauparar en áhugi er fyrir því að rannsókninni verði haldið áfram. Góðir hlauparar Eflaust ætla margir að taka fram hlaupaskóna og nýta sumarið til að hlaupa. Hlaup hafa þann stóra kost að hægt er að hlaupa hvar og hvenær sem er, hvort sem er innan lands eða utan. Hlaupin auka framleiðslu á hamingjuhormóninu serótóníni og auka þannig vellíðan og minnka streitueinkenni. Eitt af því mikil- vægasta við hlaup er að hita vel upp áður en lagt er af stað. Þannig er hægt að koma í veg fyrir meiðsli, auk þess sem hlaupið sjálft verður auðveldara. Ágætt er að nota 10-15 mínútur í upphitun, t.d. með því að ganga rösklega og skokka inni á milli. Að loknu hlaupi er nauðsyn- legt að teygja vel á til að minnka líkur á harðsperrum. Ekki ætti að gera þau mistök að hlaupa of hratt og mikilvægt er að klæða sig eftir veðri. Loks má ekki gleyma að bera á sig sólarvörn og hafa með sér vatn í brúsa til að drekka á meðan hlaupið er. Upphitun og teygjur lykilatriði Mikilvægt er að hita vel upp fyrir hlaup. NORDICPHOTOS/GETTY Bananahýði er ekki síður hollt en bananinn sjálfur. Mörgum dettur fyrst í hug slys þegar minnst er á hlaup og bananahýði í sömu andrá. En bananahýði er ekki síður næringarríkt en inni- haldið og lítið mál að bæta því í morgunþeytinginn. l Bananahýði inniheldur mikið af A-vítamíni sem er gott fyrir augun og ónæmiskerfið. l Hýði af þroskuðum banana er troðfullt af skapléttandi efnum eins og tryptophani og seró- tóníni. l Bananahýði inniheldur fullt af kalíum sem leiðir af sér hvítari tennur svo hlauparinn sést betur í myrkri. l Bananahýði inniheldur mikið af andoxunarefnum sem geta til dæmis unnið á krabbameini í myndun. l Bananahýði eru troðfull af trefjum sem hafa góð áhrif á meltinguna og lækka kólesteról. l Bananahýði er tvö ár að verða að jarðvegi, ferli sem þú getur hraðað umtalsvert með því að borða og brenna. Það er því um- hverfisvænt að borða banana- hýði auk þess sem það minnkar hættuna á því að hlaupari stígi á það og detti. Bananahýði í morgunmat Bæjarlind 4 - 201 Kópavogur - Sími: 55 77 100 www.gongugreining.is Hypersphere - Nær djúpt í vöðva og erfið svæði Venom bakbelti - Hiti og víbringur Raptor - Kra‡mesta og tæknilegasta nuddtækið á markaðnum Hypervolt - Lé‹ og kra‡mikið nuddtæki Vyper - Öflugasta nuddrúllan á markaðnum Víbrandi snilld! 8 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R úT AÐ HLAuPA 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E 3 -4 E C 0 1 F E 3 -4 D 8 4 1 F E 3 -4 C 4 8 1 F E 3 -4 B 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.