Fréttablaðið - 24.05.2018, Qupperneq 52
Ketilhús Listasafns Akureyrar er með skemmtilegri sýn-ingarrýmum og þar er oft að finna ólíkar og skemmtilegar
sýningar. Ein slík var opnuð fyrir
skömmu en þar sýnir Aníta Hir-
lekar textílhönnuður undir yfir-
skriftinni Bleikur og grænn en í
hugmyndafræði hennar sameinast
handverk og tískuvitund með ein-
kennandi og skemmtilegum hætti.
Aníta segir sjálf að hún hafi haft
áhuga á textílhönnun frá unga aldri
og að hún hafi ekki átt áhugann
langt að sækja. „Ég hef verið að vinna
með höndunum síðan ég man eftir
mér og er alin upp í þessu umhverfi.
Mamma er textíl-listakona og afi
og amma voru að vinna mikið með
leður, þannig að þetta hefur alltaf
verið í fjölskyldunni og hluti af lífinu.
Þannig að ég ákvað að láta á þetta
reyna og hef ekki litið um öxl síðan.“
Innblástur á bakhliðinni
Aníta lauk BA-námi í fatahönnun
með áherslu á textílprent 2012
og MA-gráðu í textílhönnun fyrir
tískufatnað frá Central Saint Mart-
ins í London 2014. Hún hefur tekið
þátt í fjölda sýninga bæði á Íslandi
og erlendis, m.a. á tískuvikunni í
London og París, Espoo Museum of
Modern Art í Finnlandi og í Hönn-
unarsafni Íslands. Hún hlaut Fash-
ion Special Prize í International Tal-
ent Support hönnunarkeppninni á
Ítalíu 2014. Fyrir tveimur árum flutti
Aníta heim til Íslands og í dag rekur
hún sýningarrými og verslun að
Garðastræti 2, A.M. Concept Space,
ásamt kollega sínum Magneu Ein-
arsdóttur.
Aðspurð um það hvað hún sé að
sýna í Ketilhúsi á Akureyri segir
Aníta að það séu verk sem hún hafi
unnið á tímabilinu 2014 til 2018.
„Þetta er allt unnið í höndunum og
allar mínar flíkur eru handsaumað-
ar. Innblásturinn sæki ég í rauninni
í bakhliðina á gömlum útsaums-
verkum, eitthvað sem flestir sem
hafa fengist við þetta þekkja vel,
en það er bakhliðin sem er alltaf
það sem ég horfi á. Þar myndast
einhver óregla og dramatík sem ég
nota mikið, ásamt því að sækja mér
innblástur í myndlistina með því
að vera dugleg að fara á listasöfn og
sýningar.“
Aníta segir að vegna þess að
verkin eru öll handgerð frá a til ö
hugi hún mikið að því að hvert og
eitt verk, eða öllu heldur flík, sé
með sínum séreinkennum. „Það
eru engar tvær flíkur eins en ef þetta
væri gert í vél þá væri þarna ákveðin
symmetría sem ég vil í raun forðast.
Þannig að ég geri svona talsvert í
því að skapa flíkinni sérstöðu og
sýna að hún er handgerð með því
að láta kannski einhvern sérstakan
lit birtast hér eða þráð þarna ef svo
má segja.“
Hver flík einstök
Aníta segir að þó svo að á sýningin
Bleikur og grænn sé innan veggja
listasafns sé það sem hún gerir ekki
hugsað sem textílverk heldur alltaf
sem flíkur. „Ég hugsa allt sem ég geri
út frá líkamanum og að það sé hægt
að ganga í þessu. Því þó svo að þetta
sé uppi á vegg þá er ég að nota létt
efni og það er gott að klæðast þess-
um flíkum þó að þær séu kannski
eilítið þungar að sjá en það er alls
ekki raunin.“
Aðspurð hvort þessi samruni
textíl- og fatahönnunar sé á mörk-
um hönnunar og myndlistar segir
Aníta að það sé fín lína þarna á
milli. „Í mínum huga er gildi mynd-
listar og hönnunar eitt og hið sama
þegar það er unnið með þessum
hætti.
Hver flík er sérstök og aðeins til í
þessu eina eintaki og þannig mætti
áfram telja. Í heimi fatahönnunar
er hins vegar alltaf stutt í fjölda-
framleiðsluna þar sem fólk vill fá
stærðir og útfærslur en það er eitt-
hvað sem ég get ekki gert innan þess
ramma sem ég er að vinna í. Ég hef
líka verið að prófa mig áfram með
því að prenta á efnið en ég hef engu
að síður þann háttinn á að það eru
aldrei tvö eins. Þetta er meira svona
eins og að skrifa nafnið sitt aftur
og aftur, það verður aldrei alveg
nákvæmlega eins, ekki einu sinni í
tvö skipti.“
Bransi sem blómstrar
Aníta kýs að kalla sig hönnuð en
ekki myndlistarkonu og hún segir
að hvað varðar íslenska fatahönnun
eigum við helst til langt í land til
þess að komast upp að hlið til að
mynda Norðurlandanna. „Það er
alltaf viðskiptahliðin sem heldur
aftur af okkur vegna þess að það
er mikil krafa um að geta framleitt
mikið og það er erfitt á litlum mark-
aði. Sjálf reyni ég að koma með tvær
línur á ári en verð að játa að það
getur reynst ansi erfitt vegna þess
að það tekur tíma að þróa áfram
það sem maður er að fást við hverju
sinni. Þannig að óneitanlega væri
gott að fá aðeins meiri stuðning við
viðskiptahliðina til þess að ná fram
góðum vexti.“
Aníta bendir þó á að það sé vissu-
lega margt sem er vel gert til þess að
styðja við hönnun í landinu og að
það megi ekki gleyma því sem vel
er gert. „HönnunarMars er til að
mynda gríðarlega mikilvægur. Per-
sónulega finnst mér líka að það sé
mikilvægt að hugsa um alla hönn-
un í heild, hvort sem það er vöru-
hönnun, fatahönnun eða annað, og
vinna að hagsmununum út frá því.
Þegar horft er á íslenska hönnun í
heild þá má vel sjá að þessi bransi
er blómstra.“
Meira eins og að skrifa nafnið sitt aftur og aftur
Aníta Hirlekar opnaði forvitnilega sýningu í Ketilhúsi Listasafns Akureyrar fyrir skömmu þar sem hún
sýnir flíkur sem eru hannaðar út frá innblæstri af bakhlið gamalla útsaumsverka og myndlistar.
Aníta segir að allar hennar flíkur séu einstakar og að hún leggi mikið upp úr að skapa þeim sérstöðu.
Nokkrar af flíkum Anítu á sýningunni Bleikur og grænn í Ketilhúsi á Akureyri.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
3
-4
4
E
0
1
F
E
3
-4
3
A
4
1
F
E
3
-4
2
6
8
1
F
E
3
-4
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K